Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012

ESB átti sig á því...

Ég held að það sé komin tími á að ESB sjálft staldri við og endurskoði mál sín hér á Landi...

Endurskoði mál sín og átti sig á því að Ríkisstjórn Íslands er að spila svo til einleik með þessa ESB umsókn sína og Íslensku Þjóðinni hefur aldrei verið gefin kostur á að svara því hvort þetta sé það sem hún gæti hugsað sér og langað í...

ESB þarf að átta sig á því að það eru bara nokkrir mánuðir í Alþingiskosningar hér á Íslandi og hvað þýðir það fyrir okkur Íslendinga, jú bara eitt og það er að þessari Ríkisstjórn verður komið frá og ESB umsóknar-aðildarferli Íslendinga verður ekki framhaldið án þess að Þjóðin gefi leyfi sitt og samþykki fyrir því eins og átti að verða í upphafi áður lagt var af stað í þetta mikla ferðalag sem meirihluti Þjóðarinnar vill ekki fara í...

Íslendingar stöndum saman í að halda vörð um það sem er okkar, það er einhver ástæða fyrir því að okkur var gefið þetta fallega Land að búa á og hlúa að...


mbl.is Vilja sérlausnir fyrir rútur og flutninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýna ábyrgð...

Var það ekki Jóhanna Sigurðardóttir sem talaði um það manna hæðst þegar ákæra átti vegna hrunsins að Forsætisráðherra væri sá sem alla ábyrgðina bæri á vinnubrögðum manna sinna...

Jóhanna Sigurðardóttir á að bera ábyrgð í þessu máli og segja af sér tafarlaust...

Það er ekki nóg að segja eitt og meina svo annað þegar á hólminn er komið og lágmark að Forsætisráðherra sýni að orð hafa ábyrgð...


mbl.is Áfellisdómur yfir ráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er rúllettu-leikur í gangi...

Styrmir veit hvað hann er að tala um enda maður með mikla yfirsýn í farteskinu sínu.

Ríkisstjórn Íslands virðist vera er að leika rúlettuleik með Þjóðina sína sem fær engu ráðið í för þó svo að Þjóðin búi í Fullvalda Sjálfstæðu ríki með Lýðræðisskipulag í farabroddi sem virðist vera algjört aukaatriði hjá þeim sem fengu völdin síðast enda ekki von á öðru frá Ráðamönnum sem nota lygar og pretti til að koma sér að...

Það varð hrun hér á Landi sem hefur ekki fari fram hjá einum eða neinum Íslendingi, og þessi mikla og góða uppbygging sem Ríkisstjórnin talar um að sé komin í gang er tálsýn ein vegna þess að góðærið er bara sýnilegt augum Ríkisstjórnarinnar verð ég að segja vegna þess að það er alveg sama við hverja ég tala, staðan gerir ekkert annað en að versna hjá almenningi í Landinu á meðan Ríkisstjórnin talar um svo mikið góðæri að laun sín hefur hún hækkað á sama tíma og sultarólin er hert að almenningi...

Nýjasta útspil Ríkisstjórnarinnar og það sem mér finnst kóróna þessa rúllettu-aðferðarfræði er þessi eyðsla hennar á peningum þeim sem á að taka ef þetta stóra ef verður að veruleika með því að rústa einni af aðal atvinnugrein Þjóðarinnar til þess eins að geta haldið sukki sínu áfram inn í ESB sem meiri hluti Þjóðarinnar vill alls ekki fara í...

Íslendingar það er komið nóg af ótryggum aðgerðum, og með þessari aðferðarfræði sem Ríkisstjórnin er að nota, aðferðarfræði sem kom okkur þangað sem við erum og erum að reyna að klóra okkur út úr þá á ekki að lýða Ríkisstjórninni þessa vitleysu sína á þessari eyðslu sinni á því sem hugsanlega gæti komið.

Það er lágmark að Ríkisstjórnin sýni Þjóð sinni að vit er hún með á milli eyrna sinna og það það mikið vit og skynsemi að rétta forgangsröðun kann Ríkisstjórnin og rétt forgangsröðun er að sjá aflann koma í hús og verða að verðmætum sem þá er hægt að ráðstafa í eyðslu á hinu og þessu...


mbl.is Flokkarnir verði að vanda valið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband