Nýjar kosningar...

Það á ekki að bíða til hausts, það á að taka á þessu núna strax segi ég. Þessi flokkur náði sinni glæsilegu kosningu í síðustu Alþingiskosningum vegna þessa kosningaloforða sinna og eitt að þeim var ekki í ESB... Svo hversvegna að bíða !!! 

Af hverju ekki að fara strax í þessar breytingar sem þarf að gera og er fyllilega þörf á innan flokksins eftir öll þessi svik....


mbl.is Gagnger endurskoðun á umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Fullkomlega sammála þér það á að fara í þetta strax en ekki í haust en held bara að hugur fylgi ekki verki

Marteinn Unnar Heiðarsson, 26.6.2010 kl. 17:50

2 Smámynd: Hecademus

Hecademus styður þessa tillögu heilshugar. Við höfum ekki efni á þessari stjórn mikið lengur..

Hecademus, 26.6.2010 kl. 18:05

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já strákar þessi flokkur á að taka á þessu núna....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 26.6.2010 kl. 18:50

4 Smámynd: Umrenningur

Þetta er ágætt að því leitinu að þetta flýtir væntanlega skilnaðinum milli vinstri manna og kratavina innan vg.

Umrenningur, 26.6.2010 kl. 19:01

5 Smámynd: Rafn Gíslason

Það verður auðveldara fyrir VG að taka á þessum svikum forustunnar þegar ljóst er að Samfylkingin er búin að mála sig út í horn með þessa vitleysu, því ekki hlaupa þeir til X-D núna eins og vel hefði mátt trúa þeim til. Annars er ég ykkur sammála að það hefði átt að vera búið að taka á þessu máli fyrir löngu. Fari það svo að ekki komi endanleg niðurstaða um að ESB umsóknin og hún dregin til baka í haust þá mun VG klofna endanlega.

Rafn Gíslason, 27.6.2010 kl. 00:21

6 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Rafn það á að taka á þessu núna ekki í haust....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 27.6.2010 kl. 09:34

7 identicon

Ömurlegt ef Vg ætlar að hafa það af þjóðinni að fá að ákveða það sjálf hvort hún vill í ESB ef samningurinn verður það góður eða ekki. Hugsið ykkur að ef við göngum í ESB þá lækka vextir á öllum lánum til heimilanna og fyrirtækja um 228 miljarða á ári, já 228 miljarða á hverju ári. Þetta eru peningar sem ég og þú eigum og verðum að vinna hörðum höndum fyrir og láta síðan af hendi við fjármagnseigendur. Að ganga í ESB yrði þess vegna mesta kjarabót sem íslenskum almenningi mun nokkurn tíman standa til boða. Hugsið ykkur einnig allar vinnustundirnar sem almenningur þarf að leggja á sig til að borga þessa 228 miljarða á ári. Þetta er fórnarkostnaðurinn sem við borgum fyrir að vera ekki í nánara samstarfi við aðrar þjóðir, og husið ykkur einnig hve við gætum búið börnunum okkar betra líf ef ekki kæmi til þetta rán á hverju ári. Einnig má velta því fyrir sér allan þann frítíma sem fólk hefði ef það þyrfti ekki að vinna myrkran á milli til að borga þessa okurvexti. Áfram ESB!!!!

Svona lán munu bjóðast Íslendingum ef þeir ganga í ESB. Þeir gætu valið á milli

   1. Lán með 4 prósenta föstum vöxtum til 30 ára.

   2. Lán með breytilegum vöxtum til 30 ára. Vextirnir á því láni eru nú 1,9 prósent og geta aldrei farið upp fyrir 5 prósent.

  

Sumir Íslendingar vilja borga sín lán með verðtryggingu og vöxtum 17 falt til baka, þ.e. þeir sem eru á móti því að ganga í ESB. Þessi kjör hér að ofan standa dönskum almenningi - og öllum Evrópubúum ef út í það er farið - til boða. Og þau eru öll óverðtryggð enda slíkt fyrirbæri óþarft í heilbrigðum hagkerfum. Þau sem sagt lækka í hvert skipti sem borgað er af þeim. Ef við tökum lán til 40 ára hér á landi og miðum við 5% vexti og 5% verðbólgu, sem sagt allt í fína lagi, þá þurfum við að borga hátt í 200 miljónir til baka á þessum 40 árum. Ef við tökum lán á evrusvæðinu 20 miljónir til 40 ára, þá þurfum við að borga 24 miljónir til baka. Hvort vilt þú?

Gott fólk, út af hverju takið þið ekki afstöðu til ESB út frá því hvort það komi ykkur persónulega vel eða ekki? Kvótagreifinn tekur afstöðu til ESB út frá því sem er best fyrir hann, óðalsbóndinn tekur afstöðu út frá því sem er best fyrir hann. Hvað með þig, langar þig að borga húsnæðislánið þitt 10 falt til baka, eða rúmlega einu sinni til baka? Hættum þessu bulli að láta einhverja sérhagsmunasambönd teyma okkur út í stuðning við örfáa aðila, tökum bara afstöðu til ESB út frá því sem kemur okkur sjálfum og fjölskyldum okkar best. Hvort viltu borga til baka af 20 miljóna króna íbúðarláni, 200 miljónir eða 24? Ertu flón eða maður sem stendur með sjálfum þér?
Lestu eftirfarandi og spurðu sjálfan þig hvort það sé þess virði að styðja við bakið á kvótagreifum og óðalsbændum? Hversu miklu ertu tilbúinn að fórna svo sérhagsmunaaðilar sofi rólega á meðan þú borgar af láninu þínu?



Samkvæmt útreikinginum á kostnað við fasteignalán til fjörutíu ára í Þýskalandi á fasteignavefnum Immobilienscout:=> Fjárhæðin skiptir ekki máli fyrir útreikningana, hún vex í sama hlutfalli hversu há sem hún er, en við miðuðum við 100.000 evrur og þá 4% vexti sem gefnir eru upp til viðmiðunar. Vaxtarkostnaður við slíkt lán væri 19.475 evrur. Það er, heildarfjárhæðin sem lántaki greiðir til baka á 40 árum er 119.475 evrur. Vaxtakostnaðurinn er tæp 20% af lánsfjárhæðinni.
Kostnaðurinn við þýskt húsnæðislán til 40 ára er því undir 20% af lánsfjárhæðinni. Kostnaðurinn við íslenskt húsnæðislán til sama tíma, miðað við 6% vexti og 5% verðbólgu, er yfir 800% af lánsfjárhæðinni. Munurinn á 20% (0,2x) og 800% (8x) er fertugfaldur.

Valsól (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 11:16

8 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Það hefði sennilega verið best fyrir þá að sýna eldmóð sinn í verki og sett umræðuna út af borðinu í stað þess að ganga í Samspillinguna og verka atkvæðagreiðslu fyirr Jóhrannar.....

Óskar Guðmundsson, 27.6.2010 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband