Standi með þjóð sinni..

Eftir að hafa hlustað á forseta vor Herra Ólaf Ragnar Grímsson þá kveiknar sú von að ekki sé öll nótt úti... Herra Ólafur Ragnar Grímsson hefur staðið með þjóð sinni. Ég ætla að trúa því að eins verði í þetta sinn. Það á að standa við fyrri samning algjörlega óbreyttan, kæmi mér ekki á óvart ef hann ítrekaði þá staðfestingu sína á þeim lánasamningi sem hann gerði að lögum með undirskrift sinni síðastliðið sumar, og hafnaði þar af leiðandi þessum breytingum sem er verið að fara fram á.

Forseti vor hefur notið fullt traust frá okkur þjóðinni sinni í setu sinni sem Forseti, Sýnir tíminn sem hann hefur verið í þessu Embætti það.

Gleðilegt ár til allra frá mér.   Kveðja.

 


mbl.is Forseti tekur sér frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Íslenski þrælinn stígur ekki í vitið, og það sama má nú segja um flesta kjósendur VG.  Sá FL-okkur hefur aldrei gáfulegar lausnir fram að færa, í raun bara drasl. Samspillingin er svo bara stórhættulegur EB flokkur.  Formaður VG talaði allt öðru vísi fyrir hrun, en snérist svo eins og VINDHANNI 360 gráður, í flest öllum málum, það er afrek út af fyrir sig.  Þjóðin & alþingi hefur sýnt fram á vilja í sumar að við viljum greiða tengt Icesave þó okkur beri í raun ekki lagaleg skylda til þess, þá viljum við axla "pólitíska & siðferðislega ábyrgð á okkar glæpamönnum" - en SteinFREÐUR & Svavar sömdu svo illa af sér að hér verður "frostavetur næstu 20 árin með tilheyrandi fátæk" - svo kalla þessir aular sig "Norræna velferðastjórn" - klækastjórn hjá vinstri mönnum, það liggur við að maður æli, aulaskapur þessa liðs er ótrúlegur.  Þráinn Bertelsson talaði um fyrir rúmu ári síðan að það væri aumingjarskapur hjá ríkisstjórninni að vera á hjánum fyrir nýlenduveldum UK & Hollendinga.  Svo segir hann nú (á hnjánum) að lengra verði ekki komist.  Þetta lið er óborganlegt og leiksýningar þær sem þeir setja upp á alþingi eru yfirleit til háborinnar skammar. 

Óli grís kan "klækastjórnmál & lýðskrum" enda vinstri maður í húð & hár.  Óli var UMBOÐSMAÐUR útrásarskúrkanna og það fer vel á því að maður með "skítlegt eðli" samþykki þessi (ó)lög, gegn 70% vilja þjóðarinnar, það er ekki gjá, bilið er of stórt til að vera gjá, í raun bara "himinn & haf milli þings & þjóðar" enda skilur ekki þjóðin þá ÖMURLEGU verkstjórn Jóhönnu & SteinFREÐS í þessu skelfilega máli.  Geta íslenskra stjórnmálamanna er til skammar, ef þetta lið væri að vinna fyrir einkafyrirtæki þá væri búið að reka það á staðnum.  Óli grís á að SAMEINA þjóðina, en leppalúði er snillingur í að SUNDRA þjóðinni.  Ég segi nú bara um okkar skítapakk - sorry - okkar stjórnmálamenn "helvítis fukking fukk".

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 31.12.2009 kl. 12:34

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég mun ekki trúa því að óreyndu að forseti skrifi undir þetta dæmalausa rugl..

Óskar Arnórsson, 31.12.2009 kl. 13:11

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Nei ekki ég heldur, og er sammála þér þar Óskar.  Jakop verum ekki svona svartsýn, rétt á að vera rétt, það er mjög mikilvægt að það fordæmi sé sýnt fyrir okkur þjóðina, og reyndar allan heiminn. Forsetinn er greindur maður og hlítur að gera sér grein fyrir því að þessi þáttur er einn af mikilvægari þáttum í uppeldifræðum okkar... Rétt er rétt og rangt er rangt. Höfum trú þar til annað kemur í ljós. Kveðja og gleðilegt ár strákar...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 31.12.2009 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband