Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Hvað táknar fátækramörk...

 Ég velti stundum fyrir mér við hvað sé miðað við þegar sagt er svona við fátækramörk...

Er þá átt við þegar fólk á hvorki fyrir mat né öllum reikningum hverju sinni ! maður hefur heyrt svo marga segja ég er yfir þessum mörkum og hef ég fengið sjálf að heyra það einu sinni.. Er átt við þegar þú ert með yfir þessa tölu sem eru fátækramörk...

Það er mikilvægt að það verði farið ofan í saumana á þessari fátækt og til komu hennar. Hún gæti verið komin að stórum hluta til vegna þess að það er stuðst við tölu sem er í engum takt við raunveruleikan á það hvað það kostar að lifa. Ég veit ekki hver þessi tala er í dag en það er ekki nóg að fólk eigi bara fyrir reikningum eða bara fyrir mat, en þannig er það búið að vera hjá stórum hluta fjölskyldna sem og einstaklinga allt of lengi og allt kannski bara vegna þess að þessi tala sem er stuðst við hefur ekki fengið að hækka í takt við allt annað í þjóðfélaginu...


mbl.is Búa á betur að fátækum í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draga þessa umsókn til baka.

Það á að draga þessa umsókn tafarlaust til baka vegna þess að það er ekki stuðningur með henni...

Það á að stoppa allt samningsferli tafarlaust þar sem að það liggur fyrir inn á Alþingi tillaga til þingsályktunar um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og Flm.: hennar eru Unnur Brá Konráðsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Gunnar Bragi Sveinsson og Birgitta Jónsdóttir.

Það er ekki stuðningur með þessari aðild frá stórum meirihluta þjóðarinnar og það er afgerandi.

Vegna þess og þessara þingsáligtunartillögu sem liggur inn á Alþingi þá myndi ég halda að það væri komin stór flötur til að stoppa þetta allt tafarlaust og kalla Alþingi saman strax til að afgreiða þetta mikla mál sem aðildarumsókn inn í ESB er og þar til það er komin niðurstaða á það hvort þetta sé það sem að við Þjóðin viljum, eða viljum ekki ( inn í þessa Aðild ) þá er hægt að taka næsta skref..


mbl.is Harma samþykkt landsfundar um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverra er ákvörðunin...

Er það ekki Ríkisstjórn sem þarf að gefa fyrirmæli...

Það er ljóst á þessu að allar þessar stofnanir eru flæktar á einhvern hátt í þetta peningasukk, Ríkisstjórnin Fjármálaeftirlitið sem og Seðlabanki í samvinnu við AGS...

Það er ljóst á þessu að heimilin skulu það vera sem áfram eiga að blæða...

Það er alveg ljóst að þessi Ríkistjórn verður að fara ef að við ætlum að fá þessu breytt...

Það er verið að taka framyfir hendur Hæstaréttar sem sagði sitt ákveðna í þessu máli og það á að standa... Það er ljóst að Ríkistjórnin er í stríði við fólkið sem kaus hana, komin í stríð við Dómstóla sem dæmdu okkur fólkinu í hag !!!


mbl.is Segir tilmælin ómarktæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almannahagsmuna eða ...

Ég verð að segja það að mér finnst þetta svívirða við alla Íslendinga sem að kusu Ríkistjórnina vegna fögru kosningarloforða hennar að bjarga heimilum og fyrirtækjum, og tryggja það að óreiðuskuldir annarra yrðu ekki okkar að borga.

Það er með ólíkindum þær aðferðir sem hafa verið notaðar af Ríkstjórninni til að hræða almenning segi ég, vegna þess að hver er annars tilgangurinn með svona hótunum út og suður annar en að hræða fólk til skrefa í ákveðna átt, átt sem fólk vill ekki einu sinni fara , þetta er búið að viðgangast í Icesave málinu sem er komið á byrjunarpunkt aftur. Það er notuð þessi aðferð inn á Alþingi af Ríkistjórninni til að Ríkistjórnin nái sínu fram og gekk upp varðandi ESB aðildarferlið án meirihluta segi ég vegna þess að þeim sem voru á móti var logið að til um hvað væri að fara í þessa aðild og látið vera að það væri bara að skreppa í kaffi til frænku til að fá samþykkt.

Þessi Ríkistjórn kann ekki aðra aðferð en lánatökur til að vinna á skuldarvanda þjóðarinnar og er hann orðin alveg gígantískur í dag myndi maður halda... Þætti vænt um ef það væri hægt að fá stöðu birta og þá sérstaklega hversu mikið Fjármálaráðherra er búinn að skuldbinda ríkisjóð með útgefnum bréfum sem og lánatökum frá því að hann tók við embætti.

Þessar fréttir sem að við erum búin að vera heyra síðustu daga eru alveg með ólíkindum eins og að kreppan sé búinn og við ekki að sjá eða finna fyrir því en það sé alveg á næsta leiti eftir orðum þessara háttsettu manna er alveg með endemun að lesa. Ég veit ekki betur en það séu yfirvofandi þvílíkar hækkanir frá Ríkistjórn á skatta gjöld álög vask og hvað nú þetta allt saman heitir og kreppan búinn...

Það verður að stoppa þetta bull núna. Það er ekki nóg að þjóðin er búin að ganga í gegnum það að Ríkistjórnin VAR tilbúin og ER tilbúin að fórna heimilunum og auðlindum okkar fyrir eitthvað sem okkur er ekki sagt, heldur eru margar fjölskyldur búnar að missa húsaskjól sitt og allt sitt og hvað gerði Ríkistjórnin á meðan ! Ekki neitt, ekki neitt annað en að segja.. já ykkur var nær að fjárfesta svona upp í rjáfur og núna ætlast þessi Ríkistjórn til þess að fólkið finni til með sér og sjái aumur á sér og hjálpi henni með samúð miskun...   Ef þetta er það besta sem að Ríkistjórnin getur gert þá á hún að viðurkenna það fyrir okkur að á leiðarenda er hún komin vegna þess að það stóð aldrei til að bjarga heimilum né fyrirtækjum landsmanna og hafa vit á því að koma sér frá störfum tafarlaust og láta okkur sjá um að kjósa fólk í þessa vinnu sem kemur með raunhæf plön sem farnast vel í framtíð okkar og eru rétt og best fyrir okkur...


mbl.is Í þágu almannahagsmuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra Samfylkingarinnar...

Forsætisráðherra Íslendinga og RÁÐHERRA Samfylkingunar...

Þetta segir manni að það er einræði og þessi flokkur er samansafn af hjörð sem er ósjálfstæð og fer best að láta segja sér fyrir verkum. Það sem veltist fyrir mér er af hverju flytur þessi flokkur sig ekki bara með allt sitt hafurtask í ESB umhverfi...

Íslendingar flestir hafa marg sagt það að þarna inn vill ekki meirihluti þjóðarinnar og hvað er erfitt við að skilja það...

Hvað er erfitt að skilja... Að okkur var lofað 2 þjóðaratkvæðagreiðslum varðandi þessa aðild og við svikin um það...

Að hún Jóhanna Sigurðardóttir skuli láta titla sig sem Ráðherra Samfylkingarinnarflokksins segir það sem segja þarf um einstaklingana innan þessa flokk...

Gunguflokkur sem þorir ekki að mæta vilja þjóðarinnar segi ég...


mbl.is Lýsa yfir stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótti við þjóð sína...

Það skyldi þó aldrei vera að það sé ótti við niðurstöðu um vilja þjóðarinnar inn í ESB sem er að stjórna þessu.

Hvað verður svona öðruvísi í haust spyr ég bara...

Það er allveg ljóst að það er ekki vilji okkar meirihluta þjóðarinnar sem fær að ráða...

Það á að stoppa þetta bull tafarlaust og til að taka allan þennan vafa í burtu þá á að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu strax og þjóðin að fá að segja sitt orð um vilja sinn inn í þessar aðildarviðræður ef þessi umsókn verður ekki dregin tafarlaust til baka.

Það er ekki hægt að segja við okkur að það sé ekki til peningur, ef svo verður sagt þá er bara að taka þessa hækkun á ferðar og dagpeninga sem að Ríkistjórnin gaf sjálfri sér núna rétt fyrir sumarfrí til baka og nota þá peninga í þessa fyrri þjóðaratkvæðagreiðslu sem þarf greinilega að verða og friður verður ekki fyrr...


ÆJÆJÆ...

Það gerðist svona atvik fyrir mig þegar ég var 12 ára og bar út Moggann í Garðinum.

Ætlaði ég að stytta mér leið yfir tún eitt og viti menn tuddi staddur á túninu og ég held að ég hafi aldrei hlaupið eins hratt á ævi minni með tuddann á eftir mér og Moggatöskuna í eftirdragi. Ég man að ég náði að henda mér yfir girðinguna og þetta var sko ekkert grín að lenda í, en það er óskandi að konan eigi eftir að jafna sig og sé ekki mikið slösuð eftir þessi átök. Það er aðalmálið núna.  Ég var meira búinn eftir hlaupin og sjálfsagt heppin þegar maður hugsar til baka að tuddagreyjið náði mér ekki þó annsi mjótt hafi verið þegar ég náði loksins girðingunni..


mbl.is Nautgripur réðst á konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert ESB...

Þetta er að verða ljóta bullið allt saman...

Það sem ég legg til er að það verði þjóðaratkvæðagreiðsla um vilja Íslendinga í áframhaldandi viðræður inn í þetta ESB samfélag, og ef það er meirihluti fyrir að hætta við, þá verður bara að kyngja því alveg eins og við sem viljum ekki þarna inn munum þá kyngja því ef það er meirihluti fyrir vilja í þessa aðild.

Þetta er búið að kosta þvílíkar deilur, sundrung og töf þetta rifrildi um vilja þjóðarinnar þarna inn...

Samfylkingin virðist vera alveg örugg með sitt og með það á hreinu að meirihlutinn vilji inn í þetta samfélag svo hvað er að óttast...

Þetta er GUNGUHÁTTUR hjá Samfylkingunni sem heldur að þessi öfugsnúna hugmyndafræði hennar virki og fólk sjái ekki í gegnum það. Hann Árni Páll var komin með sjálfan sig í vandræði í sjónvarpinu í gærkvöldi þar sem þetta var allt saman annarsvega krónunni okkar að kenna eða Sjálfstæðisflokknum hvernig Ísland varð allt í einu peningalaust....

Hvar eru þeir sem að tæmdu peningana úr bönkunum en og aftur spyr ég... Útrásavíkingarnir vinir Ríkistjórnarinnar....

Það er lágmark að við höfum Forsætisráðherra sem fer að lögum og vilja þjóðar sinnar. Það er veruleikafyrring að halda að 20 og eitthvað % af þjóðinni sé meiri hluti og hann eigi að ráða... Ef það er ekki hræðsla sem er að stjórna Forsætisráðherra við niðurstöðu þjóðarinnar þá veit ég ekki hvað er að stjórna því hjá henni að leyfa ekki okkur þjóðinni að segja okkar vilja hvort við viljum í þessar viðræður og svo í framhaldi á því þá hvort við viljum inn í þetta ESB...

Það á bara að stofna einn ESB flokk eða að allir þeir sem eru ESB sinnar verða bara að fara yfir til Samfylkingarinnar sem veitir alveg örugglega ekki af atkvæðum vegna þess að það hefur fækkað í þeim flokki og ef heldur sem heldur þá á eftir að fækka meira vegna þessara einræðis sem ríkir þar innandyra...


mbl.is Óþarfi að sundra flokksmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar kosningar...

Það á ekki að bíða til hausts, það á að taka á þessu núna strax segi ég. Þessi flokkur náði sinni glæsilegu kosningu í síðustu Alþingiskosningum vegna þessa kosningaloforða sinna og eitt að þeim var ekki í ESB... Svo hversvegna að bíða !!! 

Af hverju ekki að fara strax í þessar breytingar sem þarf að gera og er fyllilega þörf á innan flokksins eftir öll þessi svik....


mbl.is Gagnger endurskoðun á umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segðu þig frá störfum maður...

Það er bara eitt sem að mér finnst um þennan mann og það er það að hann á að segja af sér tafarlaust.

Það er ekki mark takandi á einu eða neinu sem kemur frá þessum manni og ekki hægt að ætlast til þess að einu og hálfu ári seinna eigi að reyna að klóra í bakkann og standa við sviknu kosningarloforðin sem gefin voru. Það er ljóst að hans tími er búinn og sorglegt að sjá hvernig það er búið að fara með tímann sem er búinn að vera mjög afdrifaríkur fyrir margar fjölskyldur sem hafa hreinlega misst allt sitt vegna svikna loforða frá þessum manni.

Hafðu vitið fyrir fram þig og segðu af þér tafarlaust vegna þessa svika við kjósendur þína sem þú ert búinn að valda með þessum sviknu loforðum þínum...


mbl.is Koma þessum draug frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband