Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011

Er þetta brandari eða hvað....

Ég tek heilshugar undir með Advice hópnum.

Ég vil ganga lengra og segja að Ríkisstjórnin verði að fara frá vegna þess að henni var mikið í mun að skella þessari skuld á bak okkar Íslendinga alveg sama hvað og það er enginn búinn að gleyma því því miður fyrir Ríkisstjórnina.

Ríkisstjórn sem er búin að haga sér eins og þessi Ríkisstjórn er búin að gera í þessu máli er ekki stætt með þetta mál fyrir okkar hönd segi ég, Ríkisstjórn sem var hótandi okkur Þjóðinni öllu íllu ef við samþykktum ekki bara að borga alveg sama hvað þó svo að okkur bæri ekki skylda til getur aldrei borið trúverðuga vörn fyrir okkar hönd eða hag í þessu máli. 

Að láta þetta mál í hendurnar á Össuri Skarphéðinssyni segir allt um álit Ríkisstjórnarinnar á þjóðinni sinni og er nauðsynlegt að það verði kallað eftir kosningum sem allra allra fyrst vegna þessa...

Össur Skarphéðinsson vissi ekki neitt um þetta mál þó svo að hann hafi rómað það hæðstu hæðum á sínum tíma og vantaði ekki talandann á hann þegar hann varð skyndilega í miðri umræðu á Alþingi að viðurkenna það að samning þann sem hann var að róma sem þann besta hafði hann ekki lesið...

Össur Skarphéðinsson er ekki menntaður til þess að geta verið með þetta mál og að Ríkisstjórninni skuli finnast það allt í lagi segir líka allt sem segja  þarf um hæfni þessara gjörsamlegu vanhæfu Ríkisstjórn...

Ég kalla eftir því að Forseti vor blandi sér inn í þetta mál og setji þessa Ríkisstjórn út vegna vanhæfni hennar...


mbl.is Össur gæti ekki hagsmuna Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hann Steingrímur vill er ekki málið...

Hvað hann Steingrímur vill í þessum ESB málum í dag er bara ekki málið og á ekki að koma okkur Þjóðinni við...

Samkvæmt öllu eðlilegu þá ætti hann að vera að vinna þá vinnu sem hann var kosin til þess að vinna og það er sú vinna sem kosningarloforðin lofuðu...

Skjaldborg utan um heimili og fyrirtæki Landsmanna...

Ekki í ESB sagði Steingrímur...

Allt upp á borðum...

Ekki Þjóðarinnar að borga óreiðuskuld eins og Icesave...

Það átti aldrei að fara í þennan ESB leiðangur án þess að hafa umboð til þess frá Þjóðinni...

Steingrímur hafði ekki heldur leyfi til þess að fórna heimilum sem og smærri fyrirtækjum Landsmanna til þess að geta bjargað þeim sem komu Þjóðinni í þessa stöðu...

Ég vil þessa Ríkisstjórn í burtu tafarlaust vegna þess að hún er ekkert búin að gera hér á Landi til þess að henda hagvexti eða atvinnulífi í gang og það er ekki líðandi lengur frekar en þessar endarlausu skattahækkanir og niðurskurður út um allt. 

Það er heldur engin leiðrétting komin á húsnæðislánamál Landsmanna...


mbl.is Ekki sjálfgefið að taka upp evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takmarkið sem lagt var af stað með að koma segir maðurinn...

Ég verð ekkert annað en reið yfir þessum orðum hans Steingríms þar sem hann segir að það sé búið að takast svo vel með bankana og stóru fyrirtækin... 

EN HEIMILIN STEINGRÍMUR OG ÖNNUR FYRIRTÆKI...

Það má ekki gleymast að flest þessara stóru fyrirtækja ef ekki öll eru búin að fá sinn þvott hjá endurreistu bönkunum...

Hann segir líka að með þessum fjárlögum sé TAKMARKINU sem stefnt hafi verið að í upphafi að takast...

Orðið takmark fær mig til þess að staldra við vegna þess að hann Steingrímur J. var kosinn meðal annars til þess að bjarga heimilum og fyrirtækjum Landsmanna án þess að það yrði gerður greinarmunur á stórum eða litlum heimilum eða fyrirtækjum...

Það er alveg ljóst að skattgreiðendur sem erum við fólkið erum ekki á lista hjá þessum manni þó svo að hann viti að þangað þurfi hann að ná í stóran hluta af innkomu Ríkissjóðs...

Mér finnst allt hafa snúist um að bjarga fjármálafyrirtækjunum sem og stóru fyrirtækjunum hjá fjármálaráðherra eins og hann segir reyndar og hrósar sér fyrir en hann gleymir að láta það koma fram að það sé nú reyndar allt á kostnað heimilana sem hann var kosin til þess að bjarga sem og smærri fyrirtækjunum leyfi ég mér að segja vegna þess að það eru svo margir búnir að missa heimili sín og fyrirtæki vegna þess að þeim hefur ekki staðið þessi sama hjálp til boða og bankarnir og stóru fyrirtækin fengu sem greinilega hefur reynst vel eftir orðum Steingríms að dæma, og er ekki laust við að mér hafi fundist hlutunum stillt þannig upp fyrir fólkið með heimilin og smærri fyrirtækin að ef það sættir sig ekki við að skulda 110% í eign sinni þá getur fólkið átt sig og komið sér úr eigninni eða fyrirtækinu vegna þess að eignin eða fyrirtækið sé þá ekki þeirra lengur...

Það er allt í upplausn hér vegna þess að það er ekkert búið að gera til þess að koma hjólum þjóðfélagsins í gang eða leiðrétta eðlilega leiðréttingu til fólksins með skuldsettu heimilin eða fyrirtækin leyfi ég mér líka að segja og það eina sem við fólkið fáum að heyra er að það er ekki til peningur og vegna þess að þá er ekkert hægt að gera nema skera meira niður, en á sama tíma þá koma fréttir af ferðalögum Ríkisstjórnarinnar erlendis yfir 9 mánaða tímabil og reiknast mér þær ferðir vera rúmar 14 flugferðir á dag, já kæra fólk rúmar 14 flugferðir á hverjum einasta degi í 9 mánuði... 

Mér finnst að það verði að snúa þessari forgangsröðun á skattfé okkar við og það verður ekki gert ef þessi fjárflög fyrir árið 2012 verða samþykkt vegna þess að í þeim er ekkert annað en um meiri niðurskurð til samfélagsins að ræða á sama tíma og útgjöld til ráðuneyta eru aukin...

Svei þér Steingrímur Jóhann Sigfússon fyrir að stinga kjósendur þínar svona íllilega í bakið segi ég bara...

 


mbl.is Viðunandi heildarniðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta rétt...

Er það rétt að það hafi verið gengið frá þessu fyrir síðustu kosningar...

Er það rétt að VG. hafi gengið frá þessu á pappírum á sama tíma og þeir voru að sækja sér fylgi fyrir síðustu kosningar með orðum eins og ekkert ESB...

Ég vil að það verði farið ofan í saumana á þessu tafarlaust vegna þess að lygar og óheiðarleiki er ekki það sem við viljum hafa í okkar samfélagi og hvað þá hjá Ríkisstjórn og ef rétt reynist þá á að reka þessa Ríkisstjórn frá með skömm og svipta hana öllum réttindum vegna þess að það sem við Íslendingar viljum er ekki lygar og óheiðarleiki frá þeim sem við kjósum okkur til þess að hugsa um velferð okkar og hag...


mbl.is ESB fær friðhelgi og eftirlitsheimildir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG slítið þessu samstarfi tafarlaust...

Það sem VG á að gera núna og það tafarlaust er að kalla eftir því að Þjóðin fái að svara til um það hvort hún vilji fara í þessa ESB aðlögun eða ekki annars sé öllu Ríkisstjórnarsamstarfi lokið...

VG hlaut fullt að atkvæðum í síðustu kosningum vegna þess að eitt helsta kosningarloforð þeirra var ekki í ESB...

Traust og virðing er það sem Þjóðin þarf, ekki einhverja fagurgala sem góla fögur loforð eingöngu til þess að komast til valda og svo um leið og valdið er komið þá er allt gert til að stinga kjósendur í bakið...


mbl.is Finnur til með Jóni Bjarnasyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband