Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Sammála...

Ég hef bara eitt orð um þetta að segja og það er SAMMÁLA...

Ekkert ESB...


mbl.is Vilja að umsókn verði afturkölluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað veldur að hún var ekki kölluð til...

Ég velti því fyrir mér af hverju Ásta Sigrún Helgadóttir ekki kölluð til og boðin staðan...

Þar sem það kemur fram að þau 2 hafi verið metin hæfust allra umsækjenda hún Ásta Sigrún Helgadóttir ásamt Runólfi Ágústssyni þá hefði manni þótt skynsamlegast að kalla hana til strax og þetta lá fyrir og athuga hvort hún væri en samasinnis á að vilja þessa stöðu Umboðsmaður skuldara....

Þetta segir mér að annaðhvort er um meiriháttar vanrækslu á vinnubrögðum að ræða hjá þeim sem að sjá um ráðningarnar og á ég erfitt með sjá það fyrir en maður veit aldrei, eða að þetta er enn ein pólitíska vinaráðningin sem hefur verið gerð og ef svo er þá á þessi maður Árni Páll Árnasson Félagsmálaráðherra að segja af sér tafarlaust vegna þessa...


mbl.is „Það eina rétta í stöðunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krefst þess að Félagsmálaráðherra segi af sér.

Allt þetta átti að vera upp á borði áður en þessi maður var ráðinn í þessa stöðu.

Hann Árni Páll Árnason segir að hann hafi ráðið þann sem hæfastur var metin eftir hæfnismat og vegna þessa orða hans þá á hann að segja af sér.

Það er komið fram að þetta VAR vinur Félagsmálaráðherra og vegna þessa stöðu sem er komin upp með Runólf þar sem það er gefið í skyn að hann hafi fengið kjör á skuldum sínum sem standa ekki hinum almenna borgara til boða þá krefst ég þess líka að allt þetta mál verði rannsakað og okkur almenningi verði sýnd þessi hæfnismöt sem umsækjendurnir voru látnir fara í. Það var ráðið út frá niðurstöðu hæfnismatsins í þessa stöðu segir maðurinn...

Það er líka komið fram að Árni Páll vissi sitt og hvað um fjármál Runólfs svo ekki getur hann verið að koma ofan af fjalli þar segi ég. Hann á að segja af sér tafarlaust...


mbl.is „Ég hef tekið tvær ákvarðanir í málinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magma Energy...

Mér finnst þetta vera óhugnaleg tilhugsun og afar slæmt ef nær fram að ganga þessi markmið hjá þessu fyrirtæki sem við vitum ekki einu sinni hverjir eiga en ber nafnið Magma Energy...

Þetta sem hún Björk er að segja okkur og Heiminum er háalvaralegt og að hugsa til þess að það séu fleiri staðir á Íslandi sem er búið að skoða og jafnvel komið svo langt í hugsun að kaup séu komin langt á leið er alveg skelfilegt finnst mér og verður vonandi stoppað strax í hugsun...

Þetta eru Auðlindir okkar Íslendinga allra en ekki Ríkisstjórnarinnar einnar eða Bæjarstjóranna í landinu segi ég og það er við fólkið Íslendingar á landinu sem eigum að segja til um það hvort við viljum eiga þessar Auðlindir okkar eða ekki...


mbl.is Ranglega haft eftir Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi Aðferðarfræði...

Að selja það í burtu sem hefur verið að gera vel er ekki hægt að skilja...

Hvernig það geti verið betra að selja nýtingarrétt af afkomu Auðlindar er ég ekki að skilja nema það séu þvílíkir skussar við stjórn sem kunna ekki að reka fyrirtæki og er ég á því að það sé frekar svo en að fyrirtækið borgi sig ekki eða geti ekki rekið sig sjálft, svo það á frekar að skoða reksturinn...

Þessi kaup virðast vera eitt stórt klúður og algjörlega vanhugsuð aðgerð hjá HS orku og ekki hugsuð til enda...

Það á ekki að borga kaupverðið með gjaldeyri heldur aflandskrónum er maður að lesa og þá hugsar maður hvað er í gangi eiginlega...

Auðlindir okkar eiga að vera okkar sem og afkoman af þeim og annað á ekki að vera til í stöðunni segi ég. Þetta er okkar Rafmagn og okkar vatn. Þessu fyrirtæki Magma finnst alveg sjálfsagt að ryðjast hingað inn nafnlaust á eigendur fyrirtækisins og undrast að fá ekki viðmót sem kóngur hjá þjóðinni...

Burt með þetta fyrirtæki en nöfnin á eigendum þess vil ég að við Íslendingar fáum að vita hverjir séu...

Stöndum vörð um Landið okkar fagra Ísland það er okkar...


mbl.is Beaty: Vilja ekki hætta við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er sekur...

Þetta er alveg ótrúlegt að lesa...

Það er ekki verið að taka á því sem Wikileaks er að birta fyrir augu Heimsins og jafnframt að sína Heiminum spillinguna sem er í gangi...

Nei Bandaríkin bregðast hin reiðustu við og krefjast þess að menn sem er að reyna að hjálpa skynsömu og vitibornu fólki sem veit munin á réttu og röngu, veit munin á því að gera ólöglegt og löglegt verði sóttir til saka vegna þess að þeir komu upp um spillinguna sem var og er í gangi jafnvel ennþá...

Að það skuli vera til heil stórþjóð eins og Bandaríkin sem finnst það alveg sjálfsagt allt saman sem kemur fram í þeim gögnum sem Wikileaks er að birta, sjálfsagt allt saman til framkvæmdar en bara ekki fyrir augum Heimsins er hreint með ólíkindum og segir manni að mikið er að á þessum bæ Bandaríkjunum...

Stöndum saman um að vernda þetta fyrirtæki það er að gera hinni almennu manneskju hvar sem í Heiminum er stödd, gott eitt til. Að það skuli aftur á móti ennþá vera til þessi tegund af fólki sem finnst sjálfsagt að pína, nauðga, drepa nú eða gera eins lítið úr manneskjunni eins og hægt er, og virðist hafa viðgengist innan hersins í Bandaríkjunum er ekki hægt að líða og á ekki í Heimi sem er staddur á því herrans ári 2010...


mbl.is Vill loka fyrir Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband