Færsluflokkur: Bloggar

Þjóðaratkvæðagreiðsla núna um ESB.

Finnst mér einni að það sé löngu komin tími til að þjóðin ákveði um framhald á þessari ESB aðild sinni ef hún vil.

Það hefur margoft komið fram og allar skoðannakannanir sína að þjóðin vil ekki í ESB.. svo ég spyr af hverju á að vera að kasta meiri pening í þessa umsókn ef þjóðin vil þetta ekki.

Það er ekki eins og íslendingar eigi nóg af peningum..og sumir hverjir eiga ekki fyrir reikningum sínum og hvað þá mat.

Hvað er þessi umsókn búinn að kosta íslensku þjóðina nú þegar...

Það á að stoppa þetta ferli núna áður en lengra er haldið og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB hvort þjóðin vil inn eða ekki.

Íslendingar vilja ekki vakna upp einn morgun og  lesa það í blöðum að þjóðin sé gengin í ESB. og hún hafi bara ekkert um það að segja... EN ÞAÐ ERU NEFNILEGA LÍKUR Á þVÍ... og af hverju ég segi það.. Jú Jóhanna fékk breytingu í gegn á alþingi um þjóðaratkvæðarétt okkar íslendinga gagnvart atkvæðagreiðslu um ESB..og gildir þessi breyting bara um ESB þjóðaratkvæðagreiðslu.. það þarf nefnilega ekki atkvæðagreiðslu svo hún geti samþykkt inngöngu okkar.

Það er nóg að við íslendingar lesum að ríkistjórn sé búinn að ganga frá ICESAVE láni og samþykkja það, án þess að alþingi sé búið að afgreiða það.   Kveðja.


mbl.is Samninganefnd vegna ESB skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphaf af hverju..

Það er nú þegar ekki til fjármagn til að reka heilbrigðiskerfið eins og það er, og mikill niðurskurður búinn að verða á þessari stétt, eins og alþjóð veit. Og niðurskurðurinn ekki búinn...var ekki skipt um  heilbrigðisráðherra núna um daginn, meðal annars vegna þess að sá sem var í þessum stól treysti sér ekki til að fara í þann niðurskurð sem honum var ætlað að gera á embætti þessu....en reyndar var það kannski vegna afstöðu hans í ICESAVE málinu..

Hvernig er ríkistjórnin að sjá þetta sjúkrahús rekið í framtíðinni spyr ég.. Eða er þetta kannski eitt að þessum málefnum sem hún veit að hún mun ekki þurfa standa skil á vegna þess að hennar líf tími verður búinn þegar þessi bygging verður tilbúinn ef verður.. eins og með ICESAVE.

Íslendingar eru búnir að heyra reglulega síðustu árin hversu ílla það hefur gengið með rekstur sjúkrahúsa hér, og reglulega fengið að heyra, þessari deild lokað núna, þetta mörgum verið sagt upp, og sumarlokanir þarna og vetrar lokanir hér.

Svo það er eðlileg spurning núna sem hlítur að brenna á fleirum en mér...hvernig er verið að sjá þennan spítala ganga frekar upp í rekstri, en þá sem eru nú þegar í rekstri og eru ekki að ganga upp..

Eru Íslendingar tilbúnir að horfa á eftir lífeyrir sínum hjá lífeyrissjóðunum fara í þessa byggingu...

Væri ekki nær að vita að lífeyrissjóðir gætu lagt þennan pening til betri uppbyggingu á atvinnulífinu sem væri öruggari...en byggingu á sjúkrahúsi sem á kannski aldrei eftir að bera sig... nú eða lífeyrissjóðirnir greiddu þeim eigendum sem eiga inni í sjóðunum arð... hefur það nokkurn tímann verið gert hér á íslandi..að eigendur sjóðanna fái borgaðan arð.. það tíðkast erlendis.


mbl.is Nýtt upphaf markað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verði það talið gagnlegt...

Jóhanna tilbúinn til fundar við kollega sína í Bretlandi og Hollandi eins fljótt og auðið er, verði það talið gagnlegt...það sem stingur mig er þetta.. verði það talið gagnlegt..

Finnst Forsætisráðherra þetta ICESAVE klúður vera ekkert mál..alla vega ekki meir en það, að það þurfi ekkert að tala fyrir hönd okkar saklausra þegna hérna á íslandi .

Hvernig getur það annað en verið gagnlegt fyrir okkur..saklaus maður reynir allt til að tala máli sínu og fá sannleikann upp á borð svo hann verði ekki hafður að rangri sök.....

þennan fréttaflutning þarf að skoða betur og hver samskipti forsætisráðherra okkar og fjármálaráðherra hafa verið við þarlend stjórnvöld.

Á þessum tíma var þjóðin nefnilega að fá önnur skilaboð frá Hollandi allavega... Og þau voru... Að þarlend stjórnvöld skyldu þetta ekki.. það heyrðist nefnilega ekkert frá íslenskum stjórnvöldum um þetta.. 

Með fullri virðingu við Forsætiráðherra vor og fjármálaráðherra , þá hefði maður haldið að öll umræða um þetta hefði verið okkur íslendingum öllum, sem stálum ekki þessum peningum til góðs, og að ríkistjórn skuli ekki tala máli meirihluta þjóðar sem hefur ekkert gert af sér er meir en skrítið.... og þyrfti að fara ofan í saumana á því.. og af hverju ekki.. spyr ég ...erum við Íslendingar kannski með ríkistjórn sem er svo spillt í þessa fjármálaspillingu að það þyrfti rannsóknar við....hún gerir alla vega ekkert fyrir heimilin og fjölskyldurnar..en allt til að þeir sem ollu þessum ósköpum geti lifað áfram... Hingað og ekki lengra segi ég einu sinni enn.

Mér þykjir vænt um landið mitt Ísland, sem og vonandi fleirum.

Í dag þá erum við íslendingar ekki sjá virðingu hjá ríkistjórn fyrir landi eða þjóð.. og þess vegna verður þessi stjórn að fara...


mbl.is Jóhönnu hafa ekki borist svör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VEGNA LÁNS SEM TEKIÐ VAR VEGNA ICESAVE...

Hvað erum við íslendingar að lesa hér í þessari skýrslu..Jú þar segir AGS að miklar skuldir Íslands séu að stórum hluta tilkomnar vegna láns sem tekið var vegna ICESAVE skuldbindingar....

Er ekki enn verið að rífast um icesave á alþingi...á ekki eftir að fara fram önnur atkvæða greiðsla um það...og hvernig er hægt að skilja þetta öðruvísi enn að Steingrímur og Jóhanna séu hreynlega sjálf búinn að taka þetta mál í sínar hendur og ákveða að ÞJÓÐIN og ALÞINGI eigi bara að skammast sín, þau hafi ekkert um þetta að segja hvort þjóðin borgi eða ekki...hún á bara að borga.

Það er ekki skrítið að Guðbjartur Hannesson formaður fjárlaganefndar segir í alþingi að það sé samstaða innan nefndar að fjalla ekki um ICESAVE frá grunni. Heldur einblína á breytingar sem Alþingi samþykkti í sumar á icesave.

Breytingar sem hann tala um eru fyrirvararnir sem voru samþykktir af alþingi sem lög.

Bretar og hollendingar henntu þessum fyrirvörum, BREYTINGUM sem Guðbjartur kýs að kalla, út af borðinu, sem þýðir hvað...Jú það þýðir ORGINAL reikningur gildir og ekkert annað.

Að fjárlaganefnd og ríkistjórn  skuli ekki sjá þetta svona  er hugsunarefni....en og aftur. Hvar er ríkistjórn og fjárlaganefnd ekki að geta horfst í augu við stöðuna eins og hún er...að það hefur aldrei komið annað til greina hjá bretum og hollendingum en að fá allt borgað í topp og meira til.  Hvernig stendur á því þessar þjóðir hafa þá mynd af okkur Íslendingum að allir íslendingar hafi rænt þá..jú ríkistjórn okkar hefur með þá mynd að gera...eina sem hún segir fyrir okkar hönd er að við séum reið..og viljum ekki borga.. 

Okkur Íslendingum ber ekki að borga þessa óreiðu...og ég get ekki séð það fyrir mér að nokkur þjóð myndi láta koma svona fram við sig steinþeigjandi og hljóðalaust eins og er verið að koma fram við  okkur ÍSLENDINGA.

Að skikka hana til að borga rán sem var framið frá fólki sem í FÁFRÆÐI sínu lét glepjast af galgopum... HVAÐA LEIK ER RÍKISTJÓRN ÍSLANDS AÐ LEIKA HÉRNA....og fyrir hvern er hún að vinna..

Það er komið nóg núna og þessi ríkistjórn er svo rúinn trausti nú þegar, og ekki bætir þetta uppá hjá henni. Hún á að segja ef sér strax.


mbl.is Skuldastaðan ekki jafn slæm og áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar eiga að fá ódýrt rafmagn.

Samstaða þarna númer 1. 2. og 3.  Að Orkan sem Móðir jörð okkar íslendinga er að gefa okkur íslendingum skuli vera orðið þvílíkt þrætuefni sem er, Peningar, er hugsunarefni.. út af fyrir sig. En þetta er landið sem okkur íslendingum er gefið og er okkar...

Landið okkar býr yfir þessum gæðum, gæðum sem gefa okkur íslendingum þau forréttindi að geta ræktað undir betri kringumstæðum, sem gefur auknar afurðir af sér, sem aftur á móti gefur meiri tekjur í ríkisjóð. Ísland á ekki bara þessa auðlind rafmagnið, það er vatnið sem er gefandi hérna í þessari hringrás, sem gefur okkur líka þennan kjarna jarðveg til ræktunnar sem íslenskur jarðvegur er. Allt þetta er samspil í hringrás okkar. 

En íslendingar eiga ísland, og þessi hringrás sem er verið að fara þarna er ekki rétt. Orkan á Íslandi er gjöf sem landinu okkar er gefið, og við eigum að nýta  hana til velfarnaðar fyrir þjóðina númer eitt og tvö, og heiminn í útfluttningi á frammleiðslu á afurðum sem eiga eftir að gefa tekjur í ríkisjóð.

Íslendingar eiga að fá ódýrt rafmagn.... 


mbl.is Garðyrkjubændur mótmæla í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilfærsla á peningum...

Að ríkistjórn Íslands skuli ekki vera búin að taka á þessu atvinnuleysi er alveg hreint með ólíkindum. Að hún skuli ekki vera búinn að virkja þessa einstaklinga út á vinnumarkaðinn, til að auka frammleiðslu í landinu á afurðum sem gætu aukið útflutning og tekjur ríkisjóð sem svo sannarlega er þörf á í dag, er hreint og beint að verða ríkistjórninni til skammar, og sýnir eiginlega hversu vanhæf hún er.

Þessi ríkistjórn er búinn að hafa tímann fyrir sér þarna til að gera einhvað... Alla vega eitt ár...

Enn ekkert hefur gerst og ekkert í sjónmáli þarna sem lofar bættum hag til landanns. Að það skuli vera 15,436 manns án atvinnu er okkur þjóðinni til skammar, á sama tíma og það er ætlast til að þjóðinn borgi sukk og svínarí fyrir einhverja einstaklinga. Einhverja einstaklinga sem virðast vera í náðinni hjá ríkistjórninni, einstaklingar sem virðast  fá allt niðurfellt, og fá svo nýjan pening upp í hendurnar til að geta haldið áfram, og öll niðurfelling gerð okkar að borga í formi hækkandi skatta... Það er til fullt af leiðum til að leysa þetta atvinnuleysi.. leiðum til að hafa hvetjandi áhrif á fólkið. Að virkja það í útrás á frammleiðslu á afurðum, að virkja það í að láta sammfélagið ganga og rúlla.. að virkja einstaklinginn þannig að hann finni að hann er verðugur og góðra gjalda verður..

Þessa tilfærslu á peningum þarna verður að skoða betur, því eins og einn frá lögreglunni sagði vegna uppsagna þar innandyra..menn fara heim..og fá borgað fyrir það, af hverju má þá ekki frekar leyfa þeim að vinna, og leyfa þeim að gera gagn.. svo sannarlega er þörf í þjóðfélaginu núna á duglegum höndum, og jú þetta er allt kannski bara tilfærsla á peningum sem þarna þarf.

Þjóðinn þarf að fara fá ríkistjórn sem hefur trú á henni.

Ekki ríkistjórn sem tekur bara lán og lán..án þess að vera búinn að hugsa hvernig á að borga þau. Ekki ríkistjórn sem lítur svo niður á fólkið sitt að hún vill ekker fyrir það gera annað en troða endalaust á það skuldum annara..


mbl.is 1,6 milljarðar í atvinnuleysisbætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FÓLKS FLÓTTI.

Hvernig það var ákveðið,  að hinn almenni íslendingur í landinu skyldi borga þessa óreiðuskuld ICESAVE er mér mikið hugleikið..og fjármagnseigendur skuli sleppa..

þetta er mjög alvaralegt mál fyrir fólkið að missa eigur sínar, og er hægt að rekja þessa óðaverðbólgu beint í þessa banka vitleysu. svo maður spyr..að hverju er ekki komið meir á móts við heimilin í landinu..   maður spyr sig ósjálfrátt..hvað ef þær fjölskyldur sem eiga þessar eignir þarna , það er þessar 783 fasteignir...flytja nú úr landi.. því þetta er nú alveg örugglega ekki 783.manns..heldur hlítur þessi tala að hækka töluvert ef manneskjurnar sem búa í þessum eignum eru taldar..og höfum við efni á því að missa þetta fólk úr landinu...

Getur það verið að við íslendingar séum staddir í þessari skuldasúpu vegna þess að það var maður fenginn frá háskólanum til að vega það og meta, hvort fjármagneigendur ættu að taka þessa óreiðu á sig, eða hinn almenni skattborgari hér á íslandi.

Þessi staða er engan vegin ásættanleg fyrir okkur íslendinga á neinn hátt. Eins og er að sína sig núna.. segjum NEI...við þessu....það er lámark að fólkið haldi eignum sínum og fjölskyldu saman. Þessar aðgerðir ríkistjórnar ná engri átt...og þeim verður að breyta tafarlaust svo þetta gerist ekki...og svo ein spurning í lokinn..hver mun eignast allar þessar eignir...verða það íslendingar eða útlendingar....


mbl.is 783 eignir á uppboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óábyrgt fram úr hófi.

Enn og aftur..þetta er alveg ótrúlegt sem maður er að lesa hérna.  Ríkistjórn Íslands búinn að beita þvílíkum þvingunum á flokksbræður sína sem sitja með þeim til borðs, til að þessi reikningur ICESAVE verði samþykktur í formi láns.

Svo miklum að menn hafa sagt frá stjórn, labbað út eins og maður segir, stigið upp í pontu á alþingi og sagt skoðun sína á af hverju þeir eru ekki sammála, en samþykkja samt til að verða ekki sá sem veldur því að ríkistjórnin springi..þeir sem hafa ekki verið sammála Steingrími og Jóhönnu hafa kvartað undan því..að fá það framan í sig að verða gerðir ábyrgir fyrir stjórnarslitum ef þau samþykkja ekki vilja þeirra.

Það verður að stoppa þetta strax...Íslendingum ber ekki skylda að borga þetta ICESAVE..og þessi framkoma Jóhönnu og Steingríms núna til að knýja þetta lán fram nær ekki nokkri átt.. í hvaða  stöðu eru þau að setja alþingi núna...

Jú í þá stöðu sem ég hef verið að tala um í fyrri skrifum mínum....þessa aðferðafræði þeirra nefnilega.. stilla alþingi upp þannig að það verði að samþykkja svo þau sjálf verði sér ekki til skammar einu sinni enn. 

Núna hvet ég Alþingi til að hafna þessum ICESAVE og láta reyna á dómstóla leið.. þjóðin veit að hjá Jóhönnu kemur það ekki til greina..því þá kemst hún ekki í ESB..en fyrir mitt leiti og margra annara þá verð ég bara að segja að mér er svo alveg nákvæmlega sama um hvað Jóhanna vil og vil ekki.  Hún sem forsætisráðherra er ekki að hugsa um fólkið sitt og hefur engan áhuga á að gera það.. segi ég þetta vegna orða hennar sjálfrar AÐ HÚN HEFUR ENGAN ÁHUGA Á EFNAHAGSMÁLUM ÞJÓÐARINNAR. og sem sitjandi forsætisráðherra þegar hún segir þetta, er óábyrgt fram úr hófi , og á hún þá að segja sig frá embætti sínu til að geta þó allavega leyft einhverjum sem hefur áhuga á starfi sínu að starfa.  Hingað og ekki lengra segi ég. Þjóðina vantar að fá að vita hvenær ICESAVE verður tekið fyrir á Alþingi aftur...svo hún geti hafið mótmæli á ný ef hún vil.

Eins langar mig að vita frá einhverjum marktækum.. Hversu mikið þurfum við Íslendingar á þessu láni frá AGS að halda.. þurfum við að taka þetta allt.. Ríkisstjórn Íslands lifir greinilega ekki í takt við þjóð sína . Því þetta allt sem er búið að gerast í þjóðfélaginu og leggja á herðar hennar er of mikið fyrir hana.. og hún sjálf er ekki að sjá sig ráða við stöðu sína eins og hún er orðin hjá mörgum.. að verða hjá öðrum, allt farið hjá sumum og kemur ekki til baka...svo les maður líka að ráðamenn bankanna krefjist BÓNUS..

Núna segi ég.. og vonandi fleyri..ÉG MUN TAKA HATT MINN AÐ OFAN, FYRIR ÖLLUM ÞEIM ALÞINGISMÖNNUM SEM STANDA MEÐ KOSNINGARLOFORÐUM SÍNUM OG VORU KOSIN FYRIR ... ÞETTA ER EKKI OKKAR AÐ BORGA....


mbl.is Hver bendir á annan í Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚNA VANTAR SVÖR...

Það er búið að draga þjóðina á ASNA eyrum.. þessi ríkisstjórn er rúinn öllu trausti segi ég, og af hverju ég segi það...JÚ...einn daginn þá er þjóðin látin halda það að hún sé nú  bara í nokkuð góðum málum.. alla vega ekki svo slæmum að hún þurfi öll þessi lán sem var búið að sækja um...og hver var staðan þá þegar okkur þjóðinni bárust þessar fréttir..JÚ.. RÍKISTJÓRNIN búinn að missa mark sitt og halli komin á hana..og hver var ástæðan..JÚ..þjóðin sjálf farin að gera sér grein fyrir því að þessi skuldarklafi sem er verið að setja á hana muni aldrei ganga upp...skatta hækkanir,  matvöru hækkanir, öll þjónusta hækkar, og laun lækka. ICESAVE er skellt á okkur, þó svo að seinni afgreiðsla þess eigi eftir að fara fram á alþingi, skellt á okkur algjörlega gegn vilja okkar, sem táknar þá meiri skattahækkanir á okkur, og á sama tíma, rísa hinar ýmsu raddir vel menntaðra manna og fræðinga fram, og segja okkur að það muni aldrei geta gengið að við gætum borgað þetta. þeir segja okkur líka að ICESAVE sé ekki okkar að greiða, en ríkistjórnin er greinilega sökudólgur á þessu klúðri þarna, og í staðin fyrir að viðurkenna það fyrir okkur þá gerir hún okkur sökudólga þar og kennir okkur um að hafa bruðlað. Lánin frá AGS eru ekki góð.. og það veit þjóðin um, og hafa verið miklar óánægju raddir um töku ríkissins á þessu láni.. en þjóðin er róuð niður að sama skapi  með lygum um að þessi lán verði sko ekki notuð.. þjóðinni sagt að þau muni liggja inni á vöxtum, sem eru jú reyndar minni en hún þurfi sjálf að borga fyrir að hafa lánið....og þegar hér er komið hjá mér í þessum skrifum þá fer ég ósjálfrátt að spyrja mig hvort ríkistjórnin haldi virkilega að almenningur sé ekki að sjá í gegnum í þessa leikfléttu hjá þeim...og hvort ríkistjórnin sjálf sjái þessa fléttu sína enda.

EN ÞETTA ER ALLT gert til að halda svikulli ríkistjórn saman....og núna þegar það er búið að fara þvílíkt á bak við þjóðina til að ríkistjórnin geti fengið lánin sín, og staða fólksins ætti að batna vitandi að það er komið lán í geymslu sem ætti að geta hjálpað til við að búa til stöðuleika í þjóðfélaginu, en nei...þetta átti nefnilega aldrei að geymast þetta lán, eins og er að sína sig núna. 

Svo ég spyr núna...hvar á að fá peninga til að borga þessi AGS lán....og til að borga vextina af því..

Hvar á að fá peninga til að borga ICESAVE þjófnaðinn...og vextina að honum...

Stöðugleikasáttmálinn enn í upplausn, og ekkert nema stundar frestanir aftur og aftur þar, frestanir á einhverjum loforðum sem verða svo aldrei. . þessi ríkistjórn ætlar ekki að gera neitt fyrir fólkið sitt..EKKI NEITT segi ég, því ef hún bæri hag okkar landsmanna fyrir brjósti sér þá væri ÍSLAND ekki statt þar sem það er í dag. Ég vil nýjar kosningar núna..fá ríkistjórn sem þykjir vænt um fólkið sitt, er tilbúinn að rísa upp fyrir það, telja kjark í hana, og leiða hana inn til velfarnaðar, en ekki til  óskapnaðar sem núverandi ríkistjórn er að gera.

 


mbl.is Nota forðann í afborganir lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var nefnilega aðferðarfræðin.

Einhvern veginn kemur þetta mér ekki á óvart..þetta er búið að liggja í loftinu...og samt setur mann hljóðan liggur við. Þvílík framkoma ríkistjórnar við þjóðina, svo algjör að að hún er að verða sér til skammar og minnkunar. Íslendingar lesa í fréttum hver staða þeirra er, frá ráðherrum sínum, þar sem þeir meira að segja tala í kross..Hann segir..íslendingar vilja ekki ganga í ESB.. Hún segir það er þjóðin sem ræður í þjóðaratkvæðagreiðslu... Og þá kemur Hr.Bjarni Benediktsson alþingismaður í pontu,,og mikið varð ég fegin að sjá hann, því hann er þó málefnalegur og kann sig.. og heyrði ég að hann talaði fyrir því að meiri hluti þjóðarinnar vildi ekki inn. þetta segja þau á fundi erlendis. Sama dag og stöðugleikasáttmálinn er í upplausn. En allar kannanir sína afdráttarlaust að þjóðin vill ekki inn í ESB. Forsetisráðherra neitar þjóð sinni um þýðingu á spurningarlistanum, og hvað þá, að þjóðin fái einhverja kynningu á honum, svo sem um hvað spurningarnar væru, nei þjóðin skyldi bara lesa hann á netinu ef hún vildi.. og það á ensku..hverslags framkoma er þetta...þetta er brot á þjóðinni. hún hlítur að eiga rétt á að hann verði þýddur, þó of seint sé, og ennþá meiri rétt á að svörin verði þýdd líka.

Þetta er allt saman búið að valda mér miklum heilabrotum, því hvernig sem ég skoða þessa aðferðarfræði sem ríkisstjórnin er að nota þarna , og væntanlega hlítur hún að sjá sér einhvern hag í henni , og þessari skuldarsetningu á fólkið sitt sem á endarlaust að bæta ofan á sig, þó hún geti ekki meir, þá get ég ekki nokkur staðar séð þessa aðferðarfræði vera að ganga upp fyrir þjóðina. Ég er aftur á móti farinn að velta því fyrir mér hvort ríkisstjórnin sé ekki að geta horfst í augu við fólkið sitt, og sé hreinlega hrædd við að horfast í augu við þá staðreynd að þjóðin vill ekki inn í ESB..

 Kosningaloforðin muna allir. Og þau voru ekki þessi staða sem búið er að setja þjóðina í.   Að við skulum heyri það sagt eftir fjármálaráðherra okkar að það sé eiginlega búið að ganga frá ICESAVE, og þjóðin þar með sett í skuldakafald... Á EKKI AÐ GETA VERIÐ , Á MEÐAN ALÞINGI Á EFTIR AÐ GREIÐA ÞESSU SAMÞYKKI SITT er ekki búið að ganga frá ICESAVE...fjárlaganefnd á eftir að skila sinni vinnu...NEMA þetta sé aferðarfræðin sem Jóhanna og Steingrímur nota..fara á bak við sitt fólk á meðan er verið að gera..svo þegar búið er að gera.. þá er fólkinu þeirra stillt upp, því neitað um að fá að standa með því sem það var kosið fyrir, og það látið samþykkja alla þessa vitleysu sem þau eru búinn að gera SVO ÞAU VERÐI NÚ EKKI formönnum sínum, og ÖÐRUM ÞJÓÐUM TIL SKAMMAR...

Ég vil að við fáum þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB núna, áður enn þjóðin eyðir meiri pening sem hún á ekki til, í einhvað sem hún vill ekki jafnvel.

Eru ekki fleiri sammála mér í því.. Að óska eftir þjóðaratkvæðagreiðslu núna.. Það á ekki að vera hægt að valta svona yfir launagreiðendur sem þjóðin er hér, af launþega sem ríkisstjórnin er . Ríkisstjórnin á að virða þjóð sína og vilja hana, Ríkisstjórnin á að hugsa um íslenska fólkið..og hag þess....Ríkisstjórnin vinnur fyrir okkur, og hún er ekki að standa sig á neinu sviði.


mbl.is Á methraða inn í ESB?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband