27.7.2010 | 17:16
Það er ásetningur...
HVAÐ Á AÐ GERA...
Á að rifta þessum kaupum eða hvað...
Að það sé ásetningur til staðar til að vinda ofan af einkavæðingunni í orkugeiranum hjá Ríkisstjórninni er bara ekki nóg segi ég og ekki nóg með það þá er ótrúlegt að það sé heill hugur til í því. Þetta er búið að standa yfir í marga mánuði og Ríkisstjórnin er búin að hafa allan þann tíma til að gera eitthvað í þessu máli... En samt gerist þetta sem er búið að gerast.
Að það verði skipuð ein nefndin í viðbót er bara bull og fyrirsláttur á að kaupa tíma segi ég... Annað hvort er þetta löglegt eða ekki annaðhvort er salan leyfð eða ekki...
Ég fór allt í einu að hugsa um það í hvaða stöðu við gætum verið í ef að ÞESSI Ríkisstjórn hefði fengið sitt fram án afskipta þjóðarinnar....
Jú Icesave væri komið á herðar okkar, það væri búið að bjóða upp þúsundir heimila og Auðlindir okkar væru farnar...
Ég segi að þessari Ríkisstjórn er ekki stætt lengur á þessum vinnubrögðum sínum og á að víkja tafarlaust...
Vill vinda ofan af Magma máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.