Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012
2.2.2012 | 17:16
Á hverju hefur Þjóðin ekki jafnað sig...
Á hverju hefur Þjóðin ekki jafnað sig væri nær að Ólína Þorvarðardóttir velti fyrir sér vegna þess að ef það var eitthvað frekar en annað sem sló þjóðina algjörlega útaf laginu þá voru það þessi svíknu kosningarloforð ykkar...
Loforð um skjaldborg fyrir heimilin í Landinu sem er ekki en þá komin....
Fögur fyrirheit um að það yrði sko allt gert til að það yrði ekki Þjóðarinnar að borga óreiðuskuldina Icesave....
Þjóðin er búin að horfa upp á þvílíka ósvífni í sinn garð frá ykkar hendi og þið kjósið enn þá að kenna öðru um en því sem er...
Svikin loforð er það...
Það veit öll Þjóðin að það varð hrun og ég get ekki hugsað mér annað en að flestir hafi gert sér grein fyrir því að þetta tæki sinn tíma til að vinna úr, ég held aftur á móti að það hafi fæstir og ég þori eiginlega að fullyrða að fæstir hafi átt von á þessari lyga stungu sem kom svo frá ykkur Ríkisstjórninni...
Heimilum Landsmanna fórnað fyrir fjármagnið og skammist ykkar fyrir...
Það var mikið reynt af ykkar hálfu að láta Þjóðina borga Icesave þrátt fyrir loforðin fögru þar og skammist ykkar fyrir.
Þjóðin horfir á ESB ferlið ykkar og margir velta því fyrir sér núna á hvaða túni er Ríkisstjórnin eiginlega vegna þess að hún virðist vera allt annarstaðar en þar sem Þjóðin er...
Þjóðin hefur ekki jafnað sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2012 | 12:27
Beinasta leiðin núna...
Beinasta leiðin núna er að Íslendingar komi sér saman um að reka þessa Ríkisstjórn frá störfum sínum vegna þess að hún er ekki búin að vinna þá vinnu sem hún var kosin til að vinna....
Það vantar að það sé tekin ákveðin og föst stefna hér á Landi fyrir okkur Íslendinga sem hér búum en ekki ákveðin stefna sem kemur ESB vel á okkar kostnað....
Ákveðin og opin leið með allt upp á borði þar sem að meirihluti ræður er bein lýðræðisleg leið og til þess að fá að vita hvað Þjóðin vill í þessum ESB málum þá verður að fara fram Þjóðaratkvæðagreiðsla núna um það hvort Íslendingar vilja halda þessum ESB viðræðum áfram...
Beinasta leiðin að ganga í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar