Er rúllettu-leikur í gangi...

Styrmir veit hvað hann er að tala um enda maður með mikla yfirsýn í farteskinu sínu.

Ríkisstjórn Íslands virðist vera er að leika rúlettuleik með Þjóðina sína sem fær engu ráðið í för þó svo að Þjóðin búi í Fullvalda Sjálfstæðu ríki með Lýðræðisskipulag í farabroddi sem virðist vera algjört aukaatriði hjá þeim sem fengu völdin síðast enda ekki von á öðru frá Ráðamönnum sem nota lygar og pretti til að koma sér að...

Það varð hrun hér á Landi sem hefur ekki fari fram hjá einum eða neinum Íslendingi, og þessi mikla og góða uppbygging sem Ríkisstjórnin talar um að sé komin í gang er tálsýn ein vegna þess að góðærið er bara sýnilegt augum Ríkisstjórnarinnar verð ég að segja vegna þess að það er alveg sama við hverja ég tala, staðan gerir ekkert annað en að versna hjá almenningi í Landinu á meðan Ríkisstjórnin talar um svo mikið góðæri að laun sín hefur hún hækkað á sama tíma og sultarólin er hert að almenningi...

Nýjasta útspil Ríkisstjórnarinnar og það sem mér finnst kóróna þessa rúllettu-aðferðarfræði er þessi eyðsla hennar á peningum þeim sem á að taka ef þetta stóra ef verður að veruleika með því að rústa einni af aðal atvinnugrein Þjóðarinnar til þess eins að geta haldið sukki sínu áfram inn í ESB sem meiri hluti Þjóðarinnar vill alls ekki fara í...

Íslendingar það er komið nóg af ótryggum aðgerðum, og með þessari aðferðarfræði sem Ríkisstjórnin er að nota, aðferðarfræði sem kom okkur þangað sem við erum og erum að reyna að klóra okkur út úr þá á ekki að lýða Ríkisstjórninni þessa vitleysu sína á þessari eyðslu sinni á því sem hugsanlega gæti komið.

Það er lágmark að Ríkisstjórnin sýni Þjóð sinni að vit er hún með á milli eyrna sinna og það það mikið vit og skynsemi að rétta forgangsröðun kann Ríkisstjórnin og rétt forgangsröðun er að sjá aflann koma í hús og verða að verðmætum sem þá er hægt að ráðstafa í eyðslu á hinu og þessu...


mbl.is Flokkarnir verði að vanda valið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð Björn Vals segja allt...

Orðin Björn Valur segja allt um þau vinnubrögð sem þú og þitt fólk er að sína okkur Þjóðinni...

Það er allt gert í nafni þess að geta klekkt á stjórnarandstöðunni frekar en að fara í pontu og mæla fyrir ágæti þessara breytinga okkur Þjóðinni til...

Frekar en að mæla af viti og skynsemi eða hvað þá að segja sannleikann þá er skýlt sér á bakvið  að um málþóf sé að ræða...

Mæla af viti og skynsemi fyrir hlutunum er eitthvað sem virðist ekki vera til hjá Stjórnarsamstöðunni frekar en Ríkisstjórninni...


mbl.is Segir málþófið hafa mistekist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplausn og sundrung...

Það er ekki laust við að þessi staða geri mann orðlausa...

90% eru á móti þessu og er ekki laust við að manni finnist það vera það hátt hlutfall að Borgarstjóra beri að hlusta á vilja meirihluta og koma á móts við hann...

Svo mikið er víst að þegar Borgarstjórn fór af stað með þetta verkefni þá var það ekki betur undirbúið en svo að Borgarstjórn hafði ekki hugmynd um þær strætó-samgöngur sem voru á milli hverfa í Grafarvoginum og ef þær voru almennt á milli hverfa segi ég vegna þess að svo var ekki vegna niðurskurðar...

Þessar sameiningar eru ekki að spara vegna þess að þær kosta pening...

Pening vegna breytinga, pening vegna launa sem þarf að greiða vegna uppsagna þeirra sem fyrir voru og var sagt upp vegna þessa breytinga á sama tíma og það kostar pening að ráða nýja að...

Svona miklar breytingar eiga ekki að eiga sér stað nema það sé sátt um þær hjá meirihluta þeirra sem breytingin tekur til og í þessu tilfelli er ekki um það að ræða og ef Borgarstjóri getur ekki bennt á beinan sparnað sem kemur tafarlaust vegna þessa breytinga  þá á hann ekki að gera þær vegna þess að fólkinu er sagt að þetta sé vegna sparnaðar og ef að sá sparnaður sem HUGSANLEGA gæti komið fram eftir nokkur ár verður að veruleika þá er eitt alveg víst og það er að þá verður komin nýr Borgarstjóri...

Hvort er betra að vinna í sátt við samfélagið eða valda upplausn og sundrung bara vegna....

Borgarstjóri er því miður búinn að sjá til þess að meirihluti Borgarbúa finnst hann ótrúverðugur og ekki laust við að það vilji nýjan Borgarstjóra...


mbl.is Ætla ekki að hætta við sameiningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef það væri vilji þá væri búið að gera...

Það er alveg ljóst að Hreyfingin er að láta draga sig asnaeyrunum núna vegna þess að það er ekki svo langt síðan að það var gefið út af Guðbjarti Hannessyni að vandamál heimilana væru komin í bið...

Annars er þessi flokkur Hreyfinginn ef flokk er hægt að kalla rúinn trausti vegna þess að Þjóðin er búin að horfa á þetta fólk svíkja gefin loforð eins og Samfylkingin og VG eru búinn að gera.

Svíkja kosningarloforðin um skjaldborgina heimilunum til segi ég og að ætlast til þess að fólkið í landinu trúi því núna að lausnin sé alveg að koma vegna þess að loforð er gefið frá Lúðvíki Geirssyni, Helga Hjörvar og Björgvini G.Sigurðssyni um að aðgerða sé að vænta í mai lok er fyrra leyfi ég mér að segja og eingöngu sagt til þess að kaupa tíma...

Ef það væri vilji þá væri búið að gera....

Ef það er einhver dugur í þessu fólki þá lýsir það yfir vantrausti strax, nú þegar og krefst þess að það verði boðað til kosninga tafarlaust...

Þeir sem það munu gera geta átt von á endurkosningu...

Þjóðin er búinn að upplifa hvert svikið loforðið á fætur öðru varðandi björgun heimilunum til núna á fjórða ár, ílla svikið loforð sem var gefið út eftir síðustu miklu mótmæli og þjóðin hélt virkilega að þá væri þetta að koma eftir að Forsætisráðherra kom fram og sagði að það yrði farið í þessi mál strax daginn eftir... 

Fólk er búið missa heimili sín vegna þessa sviknu loforða og að ætlast til þess að Þjóðin trúi því virkilega að það sé lausn á leiðinni núna er ekki hægt að líða vegna sviknu loforðana...

Það á að slíta þessu stjórnarsamstarfi strax vegna þess að Þjóðinni blæðir og það er ekki hægt að líða lengur...

Það er ekki hægt að líða það að Þjóðin blæði á sama tíma og hún á að vera í stakk búin til endurreisnar.


mbl.is Tilbúnir að styðja vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar dregnir á asnaeyrum verð ég bara að segja...

Við höfum ekki tekið endanlega ákvörðun segir maðurinn þó svo að það sé á 4 ár síðan þetta fólk lofaði skjaldborg utan um heimili og fyrirtæki Landsmanna...

Á 4 ár segi ég og Guðbjartur heldur því fram að það sé enn verið að greina vandann sem ég dreg í efa að sé rétt vegna þess að fyrir síðustu kosningar var þetta fólk alveg með skjaldborgina á hreinu sem átti að koma...

Það sem þessi Ríkisstjórn stendur frammi fyrir er að hún ákvað að fórna heimilum og fyrirtækjum Landsmanna og núna þegar í enda þessa kjörtímabils er að koma þá á reyna að klóra í bakkann í von um að það nægi til þess að verða jafnvel kosin áfram...

Hverjir eru að greina vandann Guðbjartur það langar mig að vita og tel ég að Þjóðin eigi rétt á að fá að vita það vegna þess að þið eruð búinn að draga heimili og fyrirtæki Landsmanna á ASNA EYRUM í á 4 ár með loforðum um þessa skjaldborg...

Það er til fullt af öðrum leiðum að fara og það góðum leiðum fyrir okkur Íslendinga, en á meðan þessi Ríkisstjórn er við völd er ekki von á einu eða neinu sem gæti komið sér vel fyrir okkur Íslendinga vegna þess að þessi Ríkisstjórn er Ríkisstjórn sem þolir ekki Sjálfstæði þó svo að Þjóðin öll sé Sjálfstæð og er ég ekki fjarri því að það hefði mátt koma fram fyrir síðustu kosningar þessi mikla andstaða við Sjálfstæði Íslendinga hjá þessum mönnum.

Það sem Íslendingar verða að spyrja sjálfan sig að í dag er það hvort þeir geti beðið, beðið eftir lausnum á sínum málum á meðan þessi Ríkisstjórn klárar tíma sinn, beðið segi ég vegna þess að það mun engin lausn koma frá Ríkisstjórninni það er Ríkisstjórnin búinn að sína okkur Þjóðinni með þessari aðferðarfræði sinni í aðgerðum á björgun ef björgun er hægt að kalla, eða er kannski að verða komið nóg af lygum og svikum... 


mbl.is Skuldamál heimila í biðstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

11 apríl kom ein inn til mín...

Já ég var einmitt að hugsa þetta á miðvikudaginn þegar það flaug ein Mæja býfluga eins og við köllum þær inn um gluggann hjá mér hvort þetta væri nú ekki frekar snemma og feit var hún.

En það er ekki mikið mál að taka þessar elskur í glas og setja þær út aftur.

Sá ég þrjár þennan dag og eina daginn eftir og svo ekki meir.

Þessi sem kom inn var ekki rauð á bakinu eins og sumar voru hér á ferð í fyrra, en þetta er merki um að vorið er á leiðinni og ber að fagna því.


mbl.is Húshumlur snemma á ferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB eða ekki...

Það er það mikill ágreiningur um þetta ESB mál hjá stórum hluta Þjóðarinnar að það verður þess vegna að leyfa Þjóðinni að segja vilja sinn um það hvort hún vilji áframhald á þessari ESB aðlögun eða ekki...

Hvort sem að samningur verður tilbúinn eða ekki þá munu næstu kosningar snúast um vilja Þjóðarinnar í ESB eða ekki og vegna þess þá er eins gott að Utanríksráðherra spýti í lófana sína og vinni hratt og vel...

Ef að Utanríkisráðherra er ekki fær um þá vinnu þá á hann að segja af sér tafarlaust vegna þess að þjóðinn er búin að fá nóg af öllu þessu bulli sem búið er að vera í kringum þetta mál...

Að setja þessa umsókn á bið á ekki að líðast vegna þess að það mun hefta framgang okkar Íslendinga sem Sjálfstæð og Fullvalda Þjóð...

Þjóðinni á að fá að segja hug sinn svo það verði hægt að taka ákveðna framtíðarstefnu fyrir Þjóðina segi ég....


mbl.is Ekki lokið fyrir kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er þessi staða...

Af hverju þessi staða er uppi er eingöngu vegna þess að þessir menn lugu að okkur þjóð sinni til þess að komast til valda og er það ljótt...

Lugu að okkur Þjóðinni að það værum við sem málin ættu að snúast um og vegna þessa lyga aftur og aftur þá eru þessir menn ekki öruggir...

Hvað er þetta að kosta okkur aukalega spyr ég og eru það upplýsingar sem við Þjóðin eigum rétt á að vita vegna þess að það erum við Þjóðin sem erum látin borga...

Ég vil Ríkisstjórnina burt...

Ég vil fá Ríkisstjórn sem Þjóðin getur treyst, Ríkisstjórn sem vinnur fyrir okkur Þjóðina og velferð okkar en ekki fjármagnið og vogunarsjóðina eins og við erum að horfa upp á að þessi Ríkisstjórn er að gera og þess vegna eru þessir menn ekki öruggir...

Það er greinilegt að siðblinda er á ferðinni ef að þessum mönnum finnst allt í lagi að staðan sé svona á sama tíma og það er niðurskurður á öllum þáttum samfélagsins vegna þess að  það er ekki til peningur...

Þegar sú staða kom upp að öryggisverði þurfti til að gæta þessara manna áttu þessir menn að sjá sóma sinn í því að segja af sér vegna þess að þessi staða er eingöngu tilkomin vegna  þess að þessir menn eru ekki að standa við kosningarloforð sín, kosningarloforða sem komu þeim í þessi sæti sem þeir eru í og eru ekki öruggir í...

Þá er betra að viðurkenna að menn eru ekki meiri menn en það að orð sín geta þeir ekki staðið við og víkja í burtu vegna þess, víkja burtu vegna þess að svona staða þar sem að peningum okkar er sóað í gæslu á þeim mönnum sem eiga að vera að hugsa um okkar hag og velferð er ekki það sem á að vera ef að allt er í lagi...


mbl.is Vakta heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimmtungur fórst...

Já eitt er víst og það er að við eigum von á þessu aftur og vil ég koma inn á forvarnir og fræðslu sem mér finnst algjörlega vanta hérna á Íslandi varðandi hættuna sem gæti stafað frá þessum eiturgufum...

Fimmtungur Þjóðarinnar og 75% af búfénaði fórust vegna eiturgufa frá Skaftáreldum og núna erum við í startholunum vegna þess að þessar eldstöðvar okkar eru komnar á tíma eins og talað er um sem segir okkur það að svona getur gerst aftur...

Getur gerst aftur segi ég og þar sem að það liggur fyrir að eiturgufur verða þar á ferð líka þá finnst mér að það eigi að fræða þjóðina um þessa hættu og gera allar þær ráðstafanir sem hægt er að gera til þess að við Íslendingar lendum ekki aftur í svona hörmung...


mbl.is Íhaldssemi bjargaði Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stopp á þessa ESB umsókn...

Í fyrsta lagi á að stoppa þessa umsókn tafarlaust vegna þess að meirihluti Íslendinga er ekki að fara í ESB...

Í öðru lagi þá er Utanríkisráðherra búinn að ljúga upp í opið geðið á Íslendingum varðandi þessa ESB umsókn sem komst ekki öðruvísi í samþykkt á Alþingi, samþykkt þar sem flestir voru látnir halda ásamt allri Þjóðinni að það væri eingöngu verið að fara í viðræður og gekk Utanríkisráðherra svo langt í lýgi sinni til að ná þessu fram að hann líkti þessu við að fara í kaffiboð til frænku þar sem umræðan snérist bara um daginn og veginn...

Það er verið að snúa öllu samfélaginu við til þess að uppfylla reglugerð ESB, og þrátt fyrir að þær henti okkar samfélagi enganvegin þá er það samt gert, og núna horfum við á það að kúgunum og hótunum er beitt af hálfu ESB til þess eingöngu að ná fram sínu og er ég þá að tala um Makrílinn sem er komin meira og minna innfyrir okkar Landhelgissögu og ef að þetta er það sem koma skal í þessum pakka sem Utanríkisráðherra hefur svo mikið talað um og viljað að við fáum að sjá í eða kíkja þá má hann sjálfur eiga þann pakka vegna þess að hann er ekki það sem er okkur Íslendingum til hins betra og hvað þá til góðs...

Íslendingar eru duglegir og Sjálfstæðir að eðlisfari og vandamál okkar Íslendinga í dag er að Ríkisstjórnin gengur ekki erinda meirihluta Þjóðarinnar í einu eða neinu og vegna þess þá er mikilvægt að stoppa þessa umsókn tafarlaust í það minnsta þar til Þjóðin hefur sagt sitt orð um hvort þetta er það sem hún vill ESB eða ekki...

Ég vil fá þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort við Íslendingar viljum áframhald á þessum ESB samningum eða ekki þegar Forsetakosningar fara fram í Júní næstkomandi vegna þess að Þjóðinni er að blæða í dag vegna þessara ESB umsóknar segi ég...

Kv.góð

 


mbl.is Aðild hafi ekki áhrif á eignarhald á auðlindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband