29.10.2009 | 02:20
Það var nefnilega aðferðarfræðin.
Einhvern veginn kemur þetta mér ekki á óvart..þetta er búið að liggja í loftinu...og samt setur mann hljóðan liggur við. Þvílík framkoma ríkistjórnar við þjóðina, svo algjör að að hún er að verða sér til skammar og minnkunar. Íslendingar lesa í fréttum hver staða þeirra er, frá ráðherrum sínum, þar sem þeir meira að segja tala í kross..Hann segir..íslendingar vilja ekki ganga í ESB.. Hún segir það er þjóðin sem ræður í þjóðaratkvæðagreiðslu... Og þá kemur Hr.Bjarni Benediktsson alþingismaður í pontu,,og mikið varð ég fegin að sjá hann, því hann er þó málefnalegur og kann sig.. og heyrði ég að hann talaði fyrir því að meiri hluti þjóðarinnar vildi ekki inn. þetta segja þau á fundi erlendis. Sama dag og stöðugleikasáttmálinn er í upplausn. En allar kannanir sína afdráttarlaust að þjóðin vill ekki inn í ESB. Forsetisráðherra neitar þjóð sinni um þýðingu á spurningarlistanum, og hvað þá, að þjóðin fái einhverja kynningu á honum, svo sem um hvað spurningarnar væru, nei þjóðin skyldi bara lesa hann á netinu ef hún vildi.. og það á ensku..hverslags framkoma er þetta...þetta er brot á þjóðinni. hún hlítur að eiga rétt á að hann verði þýddur, þó of seint sé, og ennþá meiri rétt á að svörin verði þýdd líka.
Þetta er allt saman búið að valda mér miklum heilabrotum, því hvernig sem ég skoða þessa aðferðarfræði sem ríkisstjórnin er að nota þarna , og væntanlega hlítur hún að sjá sér einhvern hag í henni , og þessari skuldarsetningu á fólkið sitt sem á endarlaust að bæta ofan á sig, þó hún geti ekki meir, þá get ég ekki nokkur staðar séð þessa aðferðarfræði vera að ganga upp fyrir þjóðina. Ég er aftur á móti farinn að velta því fyrir mér hvort ríkisstjórnin sé ekki að geta horfst í augu við fólkið sitt, og sé hreinlega hrædd við að horfast í augu við þá staðreynd að þjóðin vill ekki inn í ESB..
Kosningaloforðin muna allir. Og þau voru ekki þessi staða sem búið er að setja þjóðina í. Að við skulum heyri það sagt eftir fjármálaráðherra okkar að það sé eiginlega búið að ganga frá ICESAVE, og þjóðin þar með sett í skuldakafald... Á EKKI AÐ GETA VERIÐ , Á MEÐAN ALÞINGI Á EFTIR AÐ GREIÐA ÞESSU SAMÞYKKI SITT er ekki búið að ganga frá ICESAVE...fjárlaganefnd á eftir að skila sinni vinnu...NEMA þetta sé aferðarfræðin sem Jóhanna og Steingrímur nota..fara á bak við sitt fólk á meðan er verið að gera..svo þegar búið er að gera.. þá er fólkinu þeirra stillt upp, því neitað um að fá að standa með því sem það var kosið fyrir, og það látið samþykkja alla þessa vitleysu sem þau eru búinn að gera SVO ÞAU VERÐI NÚ EKKI formönnum sínum, og ÖÐRUM ÞJÓÐUM TIL SKAMMAR...
Ég vil að við fáum þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB núna, áður enn þjóðin eyðir meiri pening sem hún á ekki til, í einhvað sem hún vill ekki jafnvel.
Eru ekki fleiri sammála mér í því.. Að óska eftir þjóðaratkvæðagreiðslu núna.. Það á ekki að vera hægt að valta svona yfir launagreiðendur sem þjóðin er hér, af launþega sem ríkisstjórnin er . Ríkisstjórnin á að virða þjóð sína og vilja hana, Ríkisstjórnin á að hugsa um íslenska fólkið..og hag þess....Ríkisstjórnin vinnur fyrir okkur, og hún er ekki að standa sig á neinu sviði.
![]() |
Á methraða inn í ESB? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.10.2009 | 17:18
Þau kunna að bjarga sér fyrir horn..en hversu lengi.
![]() |
Fundað um yfirlýsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2009 | 16:25
Óásættanleg þessi aðferðarfræði sem er verið að beita.
Það sem formaður bændasamtakanna er að segja þarna er mjög alvaralegt og verður að kanna þetta betur.
Hverslags vinnubrögð eru þetta einu sinni en...en eins og allt annað sem kemur frá ríkistjórn.. ólesin, fljótfærnis vinnubrögð..aldrei hugsað um afleiðingar og hvert leiðir, og allt yfirbragð virðist vera í endalausri samkeppni við......ja við hvað spyr maður.. af hvaða tíma eru þau að missa af..
Bændasamtökinn ættu jafnvel að athuga það hvort þau geti ekki kært þessi vinnubrögð til ESB...
![]() |
Bændasamtökin fóru ekki yfir svörin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2009 | 12:51
Og þar innan dyra eiga hagsmunir fólksins að vera...
Að horfa á alþingi í morgun og hlusta, þá fæ ég sorg í hjarta fyrir hönd íslendinga ef þetta icesave verður samþykkt. Endalaust kennt þessum flokki um þetta og þessum flokki um hitt ...allt snýst um að enda þetta mál er sagt...að enda þetta mál á þennan hátt ef samkykkt verður..er fyrir hvern spyr ég í hag....
Af hverju ræða þau ekki um áhrif þessa máls sem þetta mál icesave er að hafa á fjölskyldurnar í landinu og á eftir að hafa ef fram fer sem er..
Nýjasta hjá fjármálaráðherra núna er lífeyrir landsmanna ..að lífeyrissjóðir borgi icesave með lífeyrir landsmanna til að borga stuld Björgúlfs feöga á sparnaði breta og hollendinga......ekki nóg að fólk missi eigur sínar herði sultarólina á beltinu enn frekar, sem hefur þó takmörkuð göt...láti af öllum, já öllum lífsgæðum líka heldur er nýjasti vasi ráðherra lífeyrir fólksins í landinu fyrir efri ár þess....
Ég spyr bara....finnst fólki þetta allt í lagi...er það tilbúið að sjá á eftir lífeyrir sínum í þetta...
Ég held að við ættum að fara að spyrja okkur....fyrir hvern er hann að vinna...okkur fólkið eða hvern.. það er augljóst að það er ekki hagsmunir fólksins þarna..skyldi fjálaganefnd eiga að reikna icesave dæmið út frá því að gert sé ráð fyrir að lífeyrir landsmanna þar til....
![]() |
Icesave til fjárlaganefndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2009 | 13:38
Alþingi kallar..
er að mæta saman aftur hlé.. allir þeir sem eru sammála því að icesave eigi allavega að fara fyrir dómstóla áður en við erum skikkuð til að borga..mætum og sínum alþingi samstöðu þar. Lilja segir jafnframt að það þurfi mótmæli frá fólkinu til að AGS verði endurskoðað...gefum alþingi þennan stuðning sem það þarf..mætum þau okkar sem geta núna þó seint sé og byrjum að sína að við líðum ekki þetta einræði.
Stöndum saman í þögn og horfum á þetta fallega hús til að byrja með...
![]() |
Þung orð falla um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2009 | 11:50
Jóhanna lofaði þjóðinni þjóðaratkæðagreiðslu um þetta ef..
![]() |
Umræða um Icesave hafin á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2009 | 10:25
Öllu fórnað.
Já var það ekki...Þjóðin á ekki fyrir reikningum sínum, mat sínum, eða hvað þá fyrir öðru sem til fellur við rekstur heimilis.
En það er til peningur til að borga þessa vexti..af láni sem þjóðin er látin halda að sé óhreyft á reikning. Látin halda segi ég , því það flaug sagan að það hefði verið notað til að styrkja krónunna okkar blessaða. En jafnframt hefur blessaður fjármálaráðherra okkar komið fram og sagt þjóðinni að lánið sé óheyft..liggi á vöxtum sem séu okkur svo góðir, en borgum til baka hærri vexti fyrir að hafa lán á reikning...ÓTRÚLEGT..en satt.
Á sama tíma les maður..Ísland eitt af 22 aðildarríkjum sameinuðu þjóðarinnar sem hafa greitt aðildargjöld sín þetta árið. HVAÐ BORGAÐI ÍSLAND MIKIÐ..fylgir ekki sögunni bara hvað aðrir skulda mikið og að Ísland sé eitt af 192 ríkjum sem eiga aðild að samtökunum en aðeins 11,4 prósent skuldlaus. Gott og blessað...þessi skuld frá..en hvað með fólkið ykkar Jóhanna og Steingrímur.. þjóðin horfir á þetta..það er til peningur fyrir þessu..en ekki til peningur til að hækka launin hjá þjóðinni, þjóðinni sem er búinn að taka nú þegar á sig hverja skerðinguna á fætur annari, og getur hreynlega ekki tekið meir á sig..en veit samt af öllum hækkunum á öllu sem skellur á fljótlega.. mikil skerðing í viðbót fyrir lífskjör okkar,en svo á eftir að koma icesave skerðingin líka..Atli Gíslason sagði í viðtali við Pétur Blöndal í morgun uss suss Pétur, ekki tala þjóðina niður...
Nei það er betra að ljúga að þjóðinni, að hún geti einhvað sem fyrirfram er vitað að hún geti ekki. Allar tölur segja sitt og skuldarstaða þjóðarinnar segir að hún ráði ekki við þetta..en að vísu ef icesave væri eina skuldin okkar sem er stór, svo stór að ísland ætti í sjálfu sér í fullu fangi með hana..en hún er ekki eina skuldin..að vísu skuld sem er ekki okkar enn og ætti aldrei að verða..en það er þessi fyrirvari um samþykki alþingis sem ræður því hvort þessu verður skellt á okkur. Þessa AGS lánatöku verður að endurskoða , stoppa strax, þjóðin getur ekki meir en hún gerir. Allar staðreyndir tala og raunveruleikinn líka og hann segir að þjóðin hafi ekki efni á þessum lánatökum hjá AGS. Hafi ekki heldur efni á því að borga þennan icesave reikning í formi láns frá bretum og hollendingum..sem er ekki skuld flestra íslendinga, en sumra þó því miður, og það á að gera þá ábyrga. Af hverju ríkistjórn kýs að koma svona fram við þjóð sína er allveg óskiljanlegt og á ekki að líðast undir neinum kringumstæðum.
Eina sem ríkistjórn hefur gert liggur við að ég segi er að skuldsetja okkur upp fyrir haus...var kosinn til valda vegna hruns sem átti sér stað , var kosin til að bjarga heimilum í landinu , halda skjaldborg utan um þau..en hver eru skilaboð ríkistjórnar í dag...jú þið fólk gott..eigið að þegja bara og borga, svelta meira og þegja líka..missa eigur ykkar allar líka enn bara að þegja..þegja og þegja. Allt gert fyrir fyrirtækin til að þau geti sukkað aðeins meir..en við gott fólk kjósendur sem voru nógu góðir til að kjósa, hvort sem það var að kjósa þau sem eru til valda eða aðra..eigið bara að þegja og borga hvort sem þið getið eður ei.Þetta var þetta ekki það sem okkur var lofað...jú allir vissu að Jóhanna vildi í ESB en Steingrímur ekki..en allir voru sammála um að icesave var ekki okkar að borga...eins og komið hefur í ljós..en samt..það er komið fram að það var aldrei við fólkið sem áttum að hafa forgang og það gengur ekki..þetta er ekkert annað svik við þjóðina og það er ekki hægt lengur að bjóða henni þetta. Að réttlæti skuli ekki ríkja hér og vera með ríkistjórn sem kemur svona fram okkur segir eitt enn meinar annað gengur ekki..
Það er til peningur til að gera þetta allt..en ekki til að mæta þörfum heimilanna ....
Jóhanna Sigurðardóttir, þú lofaðir þjóð þinni þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta icesave ef til þyrfti..og nú þarf það að gerast..það er það mikið í húfi fyrir okkur íslensku þjóðina, og þið ríkistjórn eruð að fara fram á að við fólkið í landinu borgum þessa óreiðuskuld, svo það er réttur hennar að kjósa um það hvort hún geti, treysti sér , og vilji borga þetta. Stöndum á sjálfstæöi okkar sem sjálfstæð þjóð og látum ekki bjóða okkur þessa vitleysu, sem þetta er og ekkert annað.
![]() |
Greiðum tvo milljarða til AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2009 | 05:23
Hið besta mál.
já þetta er hið besta mál , og fyrir alþýðu manna er þetta stór frétt myndi ég halda. Mér sýnist þetta vera hárréttur úrskurður á dómi hjá bretum.
Kaupþings menn greinilega búnir að ræna eða stela þessum peningum þegar þarna er komið í sögu, og bresk stjórnvöld að hugsa um hag fólksins síns.
Það sem er merkilegt þarna líka er að breska fjámálaeftirlitið skuli hafa verið búið að senda skriflegar viðvaranir til KAUPÞING nokkru sinnum í ljósi versnandi fjárhagstöðu bankans.
Nú spyr ég, af hverju fær þjóðin ekki að vita nöfnin á þessum mönnum sem stóðu að baki þessum banka. Þjóðin gæti þá leitt breta og hollendiga inn í rétta mynd að því sem gerðist..það er hverjir þeir eru sem rændu þá og íslendinga líka....
Það er einfaldlega ekki hægt að krefjast þess að þjóðin borgi þennan reikning .. í formi láns, hún einfaldlega getur það ekki nema setja sig í þvílíka ánauð og hreinlega hætta að lifa..hún mun ekki geta leyft sér að eignast húsnæði yfir fjölskyldu sína vegna þess að hún mun ekki hafa efni á því. Hún mun ekki hafa efni á því að geta menntað sjálfan sig, og hvað þá börn sín, sem þurfa hina ýmsu þjónustu á vaxtarskeiði sínu svo sem tannlækningar svo ég nefni einhvað, vegna þess að hún mun ekki eiga afgang til að geta mætt þessu. Þjóðin mun hugsanlega geta greitt ódýra húsaleigu til að geta haft efni á að hafa rafmagn og heitt vatn. Þjóðin mun ekki hafa efni á að geta fætt sig matarlega ef vel ætti að gera í næringu vegna hækkunar á öllum vörum. Ég segi er hægt að gera þetta...krefjast þess að íslenska þjóðin borgi einhvað sem hún tók ekki...
En allavega þá ætti þessi frétt að hjálpa öllum að nálgast sannleikann, svo það ætti að vera auðveldara fyrir alþingi okkar að hafna þessum icesave samningi út af borðinu. Þetta gæti gefið íslendingum annan flöt til að vinna með þetta leiðindar og hörmungar mál sem icesave er. Stöndum með okkur íslendingar í að halda landi okkar og þjóð, og látum ekki koma svona framm við okkur, ekki allavega án þess að láta reyna á dómstólaleiðina.
![]() |
Mál Kaupþings óraunhæft |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.10.2009 | 16:36
Núna reynir á ALÞINGI landsmanna...
Núna reynir á alþingi þjóðarinnar að standa með fólkinu sínu..sem er þjóðinn en ekki ríkisstjórnin. Hjartað í Ögmundi segir, að réttast væri að fella samninginn...enn... segir hann líka. Skynsemin býður honum að fara varlega, segir að það leiði ekki endilega til réttari og betri niðurstöðu...það getur ekki verið verra en það sem er verið að gera okkur. þröngva þjóðinni til að borga skuld sem hún stofnaði ekki til. Skynsemin..það er nefnilega það.
Hann veltir einnig fyrir sér stöðunni sem upp myndi koma ef ríkistjórnin myndi springa vegna málsins.. Hangir hún ekki á bláþræði eins og maður myndi segja...
Nei það er betra að skella heillri þjóð í ánauð frekar en að fylgja því að rétt á að vera rétt. Þetta eru ekki skuldir okkar sem er verið að skella á okkur.
Ég segi þetta vegna þess að mér finnst hvorki ég eða þjóðinn vita hvers vegna ég eða hún ætti að borga þetta icesave...setja sig og sína í ánauð næstu 100 árin eða svo.
AF HVERJU ÆTTI ÞJóÐINN AÐ BORGA JóHANNA OG STEINGRíMUR..... Vegna ímynd okkar út á við..
Ég vil ekki heyra vegna ímynd okkar út á við..heyrt það nokkru sinnum . Því hver verður hún ef það verður látið undan geðþótta breta og hollendinga..
Vegna AGS... Nei segi ég þar líka, það er ekki rétt heldur, að þjóðinn verði að taka þessa skuld annara .icesave. á sig til að geta fengið hjálp fjárhagslega vegna stöðu sem fjárglæfra menn komu henni og heiminum í. Að AGS geti hagað sér svona er ekki góð fyrirmynd fyrir okkur eða aðrar þjóðir, og er sjóðnum til þvílíkrar skammar og niðurlægingar.Nú ef það á að skella þessari skuld á þjóðina vegna landsbankann og klúður hans, þá eru nöfn þar á bak við...landsbankinn var orðin einkabanki sem allir vita og banki með enga ríkisábyrg á bak við sig heldur , sem er náttúrulega allveg skelfileg fyrir fjármagnseigendur..en einkabanki með enga ríkisábyrgð..svo hvar voru bretar og hollendingar þar..þeir áttu að vita það..og það er ekki rétt að skella þessu á okkur Íslendinga fyrir fáfræði þeirra. Nú landsbankinn var banki landsmanna í sína tíð og ef Jóhanna eða Steingrímur..eða hver sem er þar innandyra í núverandi eða fyrrverandi ríkistjórnum hafa hagsmuni að gæta þar , þá eiga þau að stíga til hliðar því þá er ekki verið að hugsa um hag þjóðarinnar og hvað henni er fyrir bestu.
Við íslenska þjóðinn , flest okkar, erum alinn upp í góðri trú sem færir okkur vonina , sem nærir hjörtu okkar af kærleika ástúð og umhyggju. Við íslendingar erum líka alinn upp í sterku siðferði og það má ekki taka frá okkur. Siðferðið hefur nefnilega að gera með mun á hvað er rétt og hvað er rangt..og siðferðislega þá er ekki rétt að skella þessu á þjóðina, það voru einstaklingar með nöfn sem ollu þessum ósköpum........
Ríkistjórn á að hugsa um hag þjóðar og lands. Hvað er fólkinu í landinu fyrir bestu, og ætti það að vera metnaður hverjar ríkistjórnar að gera það sem er fólkinu hennar réttast og best. Að fólkið hennar lifi í sátt og samlyndi og finni að það sé verðugt. VERÐUGT TIL ANNARS EN VINNA UPP SKÍTINN FYRIR AÐRA.
Svo að ætla að skella þessari icesave skuld á okkur íslendinga, skuld sem við tókum engan þátt í að stofna, skella þessu á íslendinga, sem eru siðferðislega meðvitaðir um hvað er rétt og hvað er rangt, getur aldrei verið rétt. það hrópar allt hjá þjóðinni að þetta sé siðferðislega rangt..og það verður að hlusta á það... það eru breyttir tímar..þeir eru byrjaðir..og leiðarljósið á að vera hvað er rétt gagnvart okkur íslendingum, og taka ákvörðun út frá því. Vissulega er þetta hræðileg staða fyrir breta og hollendinga..en þeir áttu að vita inn á hvaða reikninga þeir voru að leggja inn á .
Hvað okkur íslendingum er fyrir bestu á að vera markmið. ekki hvað öðrum þjóðum er fyrir bestu. Að verða fyrir sveiflu í lífsgæðum mun alltaf koma og fara. sum ár gefa betur en önnur og það eru eðlilegar sveiflur fyrir þjóðarbú að takast á við, en þessi sveifla icesave, er tilbúinn sveifla af manna völdum, og þá á að gera ábyrga. Ekki heila sjálfstæða og þvílíkt duglega þjóð sem átti sér einskis ílls von, og hefur alltaf allt fyrir alla vilja gera. En þarna hrópar ranglæti...og það verður að hlusta á það.
Við mannfólkið teljum okkur vera vitiborinn....og hvað þýðir að vera vitiborinn..svo mikið veit ég .. það þýðir ekki að geta keypt sig á kostnað annarra og eða vera yfir aðra hafin. Allir vinna sér inn traust og virðingu sem byggjist á heiðarleika númer eitt tvö og...
svo mikið veit ég líka , að þegar hlutir eru ekki að ganga upp, þá eru þeir ekki í réttum farveg, og þetta icesave er ekki í réttum farvegi vegna þess að það er verið saka rangt fólk þarna. Fólk sem hefur ekkert gert að sér, og það er aldrei rétt.
Höfnum þessu og tökum sénsinn..það er ástæða fyrir því að bretar og hollendingar vilja ekki réttláta meðferð á þessu..gangi okkur íslendingum allt í hag í þessu og höfum trú á okkur.
![]() |
Kvittað fyrir Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2009 | 23:59
Að ljúka málinu frekar en...
Jóhanna segir að hagsmunir íslensku þjóðarinnar væru að ljúka málinu...
Frekar enn að skilja það eftir í uppnámi.....
Hvað á hún við að skilja eftir í uppnámi..er hún að fara frá. Það má lesa það út úr þessu . Mikið væri það gott fyrir okkur. Og fyrir okkur Íslendinga að það komi Forsætisráðherra sem þorir að tala máli þjóðarinnar. Ekki einhver sem hagar sér eins og einn að sökudólgunum ..því jú þeir kenna alltaf hinum um. Einhvern sem er til í að láta reyna á þessa dómstólaleið fyrir þjóðina. Allavega svo í það minnsta að þjóðin verði sáttari við að borga ef henni bæri skylda , sem hún mun samt ekki vera sátt við að borga , en sáttari.
En hjá forsætisráðherra vor hangir allt á þessari spýtu, annars á hún ekki séns í ESB.
Að segja nei . Þetta er ekki okkar að borga er endir.
![]() |
Lengra varð ekki komist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar