5.3.2010 | 21:12
Sláum met í mætingu...
Forsetinn sínir okkur Íslendingum virðingu og fær hann heiður í hatt sinn frá mér fyrir það. Hversu gott væri það fyrir okkur ef við Íslendingar gætum sett met í mætingu á þessa mikilvægu Þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á morgun, þar sem að við fáum að segja vilja okkar með hvort við viljum eða viljum ekki gefa Fjármálaráðherra okkar Ríkisábyrgð fyrir greiðslu á þessum Icesave reikningi sem er eign annara en okkar Íslenskra skattgreiðenda.
Notum þennan mikilvæga rétt okkar. Hann mun hafa mikið að segja um framtíð okkar og Lýðræði .
Látum ekki beita okkur svona kúgunum eins og er verið að gera í þessu máli hérna og segjum nei. Þessi van-virðing sem að Ríkistjórnin sínir okkur þjóð sinni með að ætla ekki að mæta á kjörstað segir það sem segja þarf um hug hennar til þjóðar sinnar. Kveðja.
Ólafur Ragnar ætlar að kjósa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kosningin snýst ekkert um það sem þú heldur að hún snúist. IceSave fer ekkert í burtu þótt úreltum lögum verði hafnað.
Ybbar gogg (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 22:31
Lymskan í þessu stjórnarliði,ég væri ekki hissa að þau læddu að bretum og hollendingum;gefið smá eftir svo við getum slegið þjóðaratkv.greiðsluna af,eðs gert hana marklitla".Við bætum ykkur það,því þá höldum við völdum.
Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2010 kl. 22:34
"Notum þennann mikilvæga rétt okkar. Hann mun hafa mikil áhrif á framtíð okkar og lýðræði".
Ybbar gogg talar undir dulnefni - - eins og ólyginn sagði mér -
Kosningarnar snúast NÁKVÆMLEGA UM ÞAÐ SEM BLOGGARINN SEGIR -
LÝÐRÆÐI - FRELSI - KOSNINGARÉTT - RÉTTINN TIL ÞESS AÐ VERJAST OFBELDI NÝLENDUKÚGARANNA -BÆÐI ÞEIRRA BRESKU - HOLLENSKU OG ÍSLENSKU ÞJÓNANNA ÞEIRRA.
Mætum og kjósum NEI
Ólafur Ingi Hrólfsson, 6.3.2010 kl. 06:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.