Siðblinda er það kallað...

Siðblinda er það kallað þegar menn sjá ekki sinn eigin nafla, en sjá allra annara nafla sem þeir vilja sjá.

Er VG ekki búin að vera að kvarta undan því að það sé ekki hægt að halda áfram vinnu vegna þessara skotgrafa sem menn fara beint í á Alþingi...

Hvað er þetta annað hjá honum Birni Val Gíslasyni en að fara beint ofan í skotgröfina...

Og horfa svo á þessa siðblindu sem er hjá honum Árna Þór Sigurðsyni, sem finnst það að þiggja styrk sé refsivert og brotlegt og allt í lagi að ræða, en að græða svo og svo margar milljónir á innherjaviðskiptum með sölu á bankabréfum sem olli svo meðal annars hruni bankans svo maður tali mannamál... það má ekki ræða það...

Ég vil að Alþingi ræði það mál, þar sem að hann Árni Þór Sigurðsson VG sem og Utanríkisráðherra okkar hann Össur Skarphéðinsson Samfylkingin græddu tugir milljóna....

Þetta er siðblinda og á að vera búið að víkja þessum mönnum frá fyrir löngu síðan, þessir menn hafa sína eigin hagsmuni að verja, og þar af leiðandi þeirra hagsmunir teknir fram fyrir okkar hagsmunum.   Situr hann Árni Þór Sigurðsson ekki í fjármálanefnd á Alþingi líka...


mbl.is Þurfti að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband