7.12.2009 | 09:01
Smánarleg Ríkistjórn
Eðlileg samskipti segir maðurinn, já það getur vel verið að svona vinnubrögð séu eðlileg í sumum tilfellum.
En að lesa það að Bretar og Hollendingar hafi verið svo óöruggir með lagalegu hliðina sína á þessu, og ef við munum nú öll ummælin sem eru búinn að falla um ábyrgð okkar, Axla Ábyrgð, Axla Ábyrgð, sem við erum ekki ósjaldan búinn að heyra síðustu daga. þá er forkastanlegt hvernig Ríkistjórnin okkar gefur algjöran skít í okkur Íslendinga, og reynir allt til að knésetja okkur í samvinnu með Bretum Hollendingum og AGS, og allt til að Jóhanna fái miðan sinn í ESB, og einhverjum nöfnum innan Landsbankans hlíft. Lánabók bankans upp á borð núna...
Að Bretar og Hollendingar hafi verið svo óöruggir með lagalegu hliðana, og hafi ekki viljað búa við þá lagalegu óvissu að fá kannski bara það sem hefði verið til í innistæðutryggingarsjóði og í eignum bankans, fær mann til að hugsa...er Steingrímur ekki búinn að vera að reyna telja okkur trú um að þessar endurheimtur innan bankans í eignum muni greiða þetta allt, Er hann kannski búinn að ljúga líka af okkur með þessar eignir allar, og virði þeirra, og hvað erum við að lesa hér, að ekki voru eignirnar nægar, og ótryggar líka greinilega fyrir Breta og Hollendinga. Þetta segir okkur í raun að ekki króna af þessu öllu saman er okkar að greiða. Bretar og Hollendingar vissu það allan tímann að ábyrgð okkar Íslensku þjóðarinnar var enginn, og er þá enginn. Að Jóhanna og Steingrímur hafi kosið að fórna okkur þjóðinni í þessum leik er öllu verra að heyra fyrir okkur og sárt að verða fyrir því að Ríkistjórnin virði ekki þegna sína meir.
Vanhæf Ríkistjórn. Krefst afsagnar hennar tafarlaust vegna siðleysi og siðblindu sem hún er haldinn. Kveðja.
Eðlileg samskipti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Utanflokksstjórn strax það sem er að gerast þarna er pólitísk nauðgun á almenningi
Sigurður Haraldsson, 7.12.2009 kl. 20:42
Ég mundi halda það að þjóðin verði að bregðast við þessu, ef við ætlum ekki að láta þetta gerast. Það liggur við að maður segi að það verði hreynlega að kalla alla þjóðina saman núna, og þjóðin ákveði saman hvernig ætti að taka á þessu Icesave máli, fá úr því skorið hvort hún vilji áfram með þessar ESB viðræður, sem eru nú að reynast aðeins meir en bara viðræður, hvernig við ætlum að byggja upp, fara af stað, það er svo margt sem við getum gert, bara ef við viljum. En ég er til í pælingar á þessu.
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 7.12.2009 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.