Trúverðugur og öflugur leiðtogi.

Er ég mjög ánægð með störf hennar, og hefur hún unnið vinnuna sína vel. Það er ekki auðvelt að vera í þessum stól í dag og stýra borginni vel svo meiri hluti líki, en það er það sem mér finnst hún gera Borgarstjórinn okkar. 

Markmið hennar í þessum þrengingum í þjóðfélaginu  gætu ekki verið betri finnst mér, fjölskyldan skólarnir velferðarmálin, og litlu ungarnir okkar hafa forgang í hennar málum, og á hún heiður skilið fyrir störf sín hérna með tilliti til þessara stöðu sem við Íslendingar erum í, í dag.  Trúverðugleiki og öflugur leiðtogi er í henni og traust einkennir störf hennar, og er það það sem við þurfum núna. Verður spennandi að fylgjast með störfum hennar í framtíðinni. Kveðja.


mbl.is Ánægja með störf Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband