31.12.2009 | 16:17
Gleðilegt ár.
Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekkert með það að segja hvort við getum kosið eða ekki.
Þetta voru Einkabankar með enga Ríkisábyrgð á sér, það er alveg komið í ljós. Það er líka alveg komið í ljós að það var engin Ríkisábyrgð á Innistæðutryggingasjóði þessa Banka.
Þð er líka alveg ljóst að þetta voru EINKABANKAR. Það er líka alveg komið í ljós að Bretar og Hollendingar vissu þetta allt saman.
Að skella stærðar ránsskuld á þjóð sína sem persónulegir vinir Ríkistjórnarinnar urðu uppvísir af að koma sér í og finnast það bara allt í lagi, er ekki allt í lagi.
Að vera búinn að taka þessa ránsskuld og umbreyta henni í einhverjar Þjóðréttarfarslegar skuldir er ekki hægt að gera, ætti ekki að vera hægt að gera.
Það er ekki hægt að fara fram á að við þjóðin borgi þessa skuld fyrir þessa menn nema spyrja okkur fyrst.
Ef þetta væri lánaskuld sem væri komin í vandræði hjá Seðlabanka til dæmis vegna slæmra vinnubragða þar, þá bæri okkur skylda vegna þjóðréttarfarslegrar stöðu okkar að borga sem Íslendingar í formi hærri álaga og skatta. Þetta er ekki okkar skuld, nægar eru okkar skuldir fyrir. Svo miklar reyndar að við eigum í fullu fangi með að borga þær. Það verður að spyrja þjóðina hvort hún vilji gefa Fjármálaráðherra sínum honum Steingrími J. Sigfússyni samþykki sitt fyrir ríkisábyrgð á þennan samning. Þetta voru Einkabankar svo þjóðréttarfarslegar skyldur okkar eru engar þar... Ég hef fulla trú á að Forsetinn okkar hafni þessum nýja búningi og krefjist þess að fyrri búningur standi. Gleðilegt ár til ykkar. Kveðja.
Gerir ekki athugasemd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.