Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
11.12.2009 | 22:36
Til hamingju..
Til hamingju stelpur, þið eruð landi ykkar til sóma.
Kveðja frá stoltum Íslendingi vegna ykkar afreka.
Settu Íslandsmet í Istanbúl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2009 | 15:57
Óréttlátt.
Ég segi bara í upphafi skyldi endir skoða...
Hvernig getur það gleymst hvernig tilkoma þessa skuldar er komin.
Það voru einstaklingar sem þjóðin hefur kosið að nefna útrásavíkingar, sem stálu almenningsfé sem þeim var treyst fyrir vegna gylliboða sem þeir buðu. Bara ávöxtun þessara reikninga átti að gefa til kynna að ekki var allt í lagi. Hvar eru þessir útrásavíkingar....
Hvar eru eignir þeirra ? Peningarnir sem þeir komu undan..?
Það er óréttlátt að við þjóðin horfum á þetta óréttlæti sem er verið að sýna okkur. Stöndum saman og segjum nei. Á meðan þjóðin horfir á þetta óréttlæti sem er að gerast, enginn af þessum útrásarvíkingum teknir höndum, engar eignir frystar eða innistæður. Svo nei af hverju eigum við að borga þetta á meðan þeir eiga bara að komast upp með þetta og halda bara áfram, og Guð má vita hverjir verða næst fyrir barðinu á þessum útrásarvíkingum, og hvað þá...við að borga. Nei við Íslenska þjóðin verðum að sína frumkvæði í því að svona er ekki hægt að koma fram. Skammist ykkar Jóhanna og Steingrímur. Mér finnst þið hafa framið alvaraleg kosningar svik til að komast til valda, og svoleiðis valdataka endar því miður í flestum tilvikum ekki vel, og er þetta að verða ljót saga sem verður sögð í bókum framtíðar, og okkar að útskýra fyrir afkomendum okkar hvers vegna þið vilduð, viljið knésetja okkur. kveðja.
Icesave mun ekki hverfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 10:05
Hverslags Bull er þetta...
Ég segi bara hverslags bull er þetta.
Að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H Haarde verði kölluð til á ekki að vera spurning.
Að Guðrún Erlendsdóttir skuli heyra það í fréttum að það er óskað eftir aðkomu hennar að þessu máli er óskiljanlegt.
Að það skuli vera háð tíma og kostnaði hvort Breska lögfræðistofan verði fengin að þessu eða ekki, er ekki hægt að líða.
Þetta er mál sem krefst faglegrar vinnu og vinnubragða, og að klukkan sé enn að stjórna þessu máli hjá Ríkistjórninni er ekki hægt að líða.
Stöndum á rétti okkar Íslendingar. Þetta er ekki okkar að borga, svo fagleg og vönduð vinnubrögð á þetta stæðsta óréttlætis mál í sögu okkar er réttur okkar. Kveðja.
Veita ekki álit um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 09:45
Þjóðréttarlegum skuldbindingum...
Ég spyr...hver batt þjóðina þessum skuldbindingum sem hann Steingrímur er mikið að tala um þessa dagana, og maður fær svona á tilfinninguna að þetta sé einhver hótun til okkar Íslendinga sem berum enga ábyrgð á þessu klúðri Breta og Hollendinga. Þetta voru Einkabankar með enga ríkisábyrgð með sér, og nú er Björgvin G Sigurðsson að segja þetta líka, hann sem var í hvaða stöðu þarna....
Hann Björgvin G Sigurðsson talaði mikið fyrir hönd Bankana, og gagnrýndi mikið orð Davíð Oddssonar þegar hann vildi stoppa þessa útrás... Svo Hver batt Íslendinga þessum þjóðréttarlegum skuldbindingum spyr ég...
Hver er ábyrgð Björgvins G Sigurðssonar.....
„Icesave erfitt og hörmulegt“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2009 | 09:13
Skert lífskjör og kaupmáttur.
Ég segi bara mikið var að einhver talar fyrir þjóðina af viti, ekki er eins og Ríkistjórnin sé búin að koma réttlátlega fram fyrir okkar hönd.
Mér finnst eitt gleymast sem er mikilvægt í þessu öllu saman.
Þetta voru Einka-bankar með enga ríkisábyrgð með sér, Bretar Hollendingar sem og aðrar þjóðir áttu að vita það. Breskir, Hollenskir sem og aðrir ráðamenn þessara landa hljóta að vita upp á sig vítavert gáleysi, gáleysi vegna þess að allt eftirlit frá þessum löndum vantaði. Ljóst er á öllu líka að eitthvað var búið að klóra þarna í bakkann af yfirvöldum elendis gagnvart þessari stöðu, en því ekki fylgt betur eftir hjá þessum ráðamönnum og vangá þeirra látin bitna á okkur.
Langar mig aftur að minna VG og Samfylkinguna á kosningarloforðin sín, kosningarloforðin sem þau hlutu kosningu fyrir, það er greinilegt á öllu að þau eru búinn að gleyma þeim, en eins og ég segi í öðrum skrifum, þá eru þau heppin að það er einhver sem man þessi loforð, og verum dugleg að minna þau á loforðin. En þau voru .. ÞAÐ ER EKKI ÞJÓÐARINNAR AÐ BORGA ÓREIÐUSKULDIR ÞESSARA MANNA.
Það er ekki hægt lengur að þessu sé troðið óréttlátlega á okkur vegna þess að þessi hataði þennan og þessi hinn.
Við Íslendingar erum búin að bjóðast til að borga lágmarks Ríkisábyrgð á þessu, þó að okkur beri engin lagaleg skylda til þess og Bretar og Hollendingar hafnað þeirri hönd sem við réttum. Má ekki gleyma því.
Stöndum á rétti okkar Íslendingar og látum ekki koma svona fram við okkur, hvorki af þessum þjóðum né eigin ríkistjórn sem er greinilega búinn að gleyma orðum sínum sem kom þeim í þessa stóla sem þau er í. Það er ekki rétt að þessu öllu saman sé troðið á herðar okkar, okkar sem gerðum ekkert af okkur. Kveðja.
Skert lífskjör og kaupmáttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.12.2009 | 10:56
Já.
Ég verð að segja að mér líst alltaf betur og betur á þessa hugmynd, og það er allveg rétt að fyrir okkur almenningin þá mun þessi leið hvergi koma aftan að okkur.
Það er líka ljóst að þessi leið sem Jóhanna og félagar eru að fara mun ganga frá heimilunum endanlega, heimilunum sem eru að kikna, kiknuð, og sum hanga en.
Það er líka ljóst að það verður eitthvað að gera, og öll Þjóðin er hjálpar þurfi.
Hvaða flokkur gerði þetta og hitt, er ekki lengur hægt að stjórni aðgerðum. Það er barnaskapur að haga sér þannig.
Það verður að treysta því að allir, allir læri af þessu hruni, við Íslendingar erum mjög vakandi yfir þessu og verðum. Með hliðsjón af því hvernig staða heimilina er að brenna inni hjá núverandi ríkistjórn, og ljóst að engin vill missa heimilin sín, þá gengur þessi leið sem er verið að fara ekki.
Flestum Íslendingum finnst óréttlátt að borga þennan Icesave reikning, og er ég engin undartekning þar, en hverjir eru tilbúnir að hjálpa okkur, og koma með leið þar sem við Íslendingar erum í fyrirrúmi er það sem við eigum að líta til.
Sjálstæðisflokkurinn hefur alltaf talað um að fara dómstólaleiðina með þetta Icesave, og ég trúi því að þeir hafi velferð okkar í fyrirrúmi,
Við gætum velt því fyrir okkur hver væri staða heimilana í dag ef þessi leið sem Sjálfstæðisflokkurinn kom með í byrjun 50% að fasteignaskuldum heimilana til hliða hefði verið farinn.
Ljóst er að leið Samfylkingarinnar og VG er að brenna allt í landinu, fyrir utan bankana, tryggingarfélögin og heimili Breta og Hollendiga, og er ljóst að ekki er lengur hægt að það sé komið svona fram við okkur. Svo Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, eða annað, málið er að það verður einhver að koma okkur til hjálpar. Kveðja.
Sjálfstæðisflokkurinn kynnir afleiðingar skattahækkana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.12.2009 | 18:52
Fyrir jól, hver verður jólagjöf Íslendinga ?
Ekki sett dagsetningu á Icesave segir hann, en vill að þetta Icesave verði orðið að lögum til greiðslu fyrir jól. Í dag er 9 desember og þess vegna ekki nema 15 dagar jóla. Svo við erum að tala um 13, til 14 vinnudaga.
Er búið að hafa samband við þessa Bresku Lögfæðistofu..?
Getur hún komið að þessu..?
Þetta er mikilvæg spurning sem þjóðin þarf að vita um, hún fylgist vel með.
Það er ekki hægt að þjóðin horfi á vinnu gerða með annari hendinni í þessu máli lengur. Það verður að koma fagleg og rétt vinna á þetta, sem kemur er ekki ef klukkan ræður.
Jóhönna Sigurðardóttir lýsir yfir vonbrigðum vegna þess að allir sögðu ekki já við Icesave. Icesave sé stórt mál, og grundvallaratriði í efnahagsstefnu þessarar Ríkistjórnar Samfylkingarinar.
Jóhanna Sigurðardóttir er greinilega búin að gleyma kosningarloforðum Samfylkingarinar, en hún er heppin, vegna þess að ég er ekki búin að gleyma aðal loforðinu þeirra, en það var, Ekki þjóðarinnar að borga óreiðuskuldir annara...
Svo kannski má Jóhanna Sigurðardóttir þakka fyrir að það voru ekki allir búnir að gleyma.
Það er ekki öll von út enn 3. afgreiðsla á Icesave eftir á Alþingi, svo nú geta allir munað loforðið sem þau voru kosin fyrir. Ekki reikningur Þjóðarinnar. Kveðja.
Engin lokadagsetning í Icesave-málinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2009 | 09:07
Einkaskuld Sjálfstæðisflokksins.
Sorglegt fannst mér að horfa á Alþingi í gær.
Erum við Íslendingar með afvega leidda stjórnarsamstöðu og Ríkistjórn, sem vinnur verkin út frá hatri og reiði á Sjálfstæðisflokkinn, en ekki hvað er þjóðinni fyrir bestu með réttlæti í huga og Sjálfstæði okkar í fyrirrúmi..Alveg óháð flokknum.
Það var sorglegt að sjá samstöðuna hverja á fætur annari koma upp í pontu og segja JÁ vegna þess að viðkomandi hataði tiltekin flokk. Það voru margir Íslendingar sem horfðu á Alþingi í gær.
Það kom engin upp og sagði já vegna þess að lagalega og réttarfarslega þá bæri okkur skylda. Engin sagði já vegna þess að við værum svo rík, og þess vegna munaði okkur ekkert um að greiða þetta þó okkur bæri engin réttur til þess, hvað þá að einhver segði já vegna þess að það sé svo mikil uppkoma í atvinnulífinu og blómstrandi viðskipti við landið, og þess vegna ættum við bara að borga ímynd okkar út á við. Nei allir sem sögðu já, sögðu já vegna haturs á Sjálfstæðisflokkinn.
Mjög alvaralegar ásakanir komu þar fram í garð þessa flokks, að þetta væri Einkabanki Sjálfstæðismanna, og einkaskuld þessa flokks. Krefst ég þess að öll gögn sem stjórnarsamstaðan hefur um þessar upplýsingar verði gerð opinber fyrir augum allra. Þetta eru alvaralegar ásakanir hér á ferð gagnvart Sjálfstæðisflokknum.
Alvaralegast er hérna að maður fer að spyrja sig...
Er verið að vinna verkin verksins vegna með þjóðina í huga og hennar velferð í fyrirrúmi, eða er verið að vinna öll verk í Ríkistjórn til að hefna sín á Sjálfstæðisflokknum, og við þjóðin þurfum að gjalda þess. Ef þetta er einkaskuld þessa flokks, þá er þessi flokkur búin að gefa leyfi til þess að hann verði gerður ábyrgur með afstöðu sinni á þessu ICESAVE. Ef Samfylkingin er með pálman í höndunum þarna til að gera út um þennan flokk og hann þá gerður ábyrgur sem yrði ef rétt reynist af dómstólum, af hverju fer hún þá þessa leið spyr maður..
Af hverju er þá verið að setja þetta á bak okkar, setja okkur í ánauð og langvarandi fátækt inn í eilífina frekar en rétt á að vera rétt.
Þessi orð Steingríms J Sigfússonar, að það sé verið að vísa þaul KÖNNUÐU máli, en ekki vandlega og faglega unnu máli áfram, gefur ekki vísbendingu um að þetta fá öðruvísi meðferð en hefur tíðkast hingað til í þessu máli, og það verður ólíðandi. Að vonast til að þessi óhróðs reikningur verði orðin að lögum fyrir jól yrði alveg skelfileg Jólagjöf til þjóðarinnar. Og vísar það á að það er ekki verið að vinna vönduð og fagleg vinnubrögð, heldur eftir klukkunni, og það er líka alveg ólíðandi vinnubrögð. þetta hlýtur líka að ráðast á vinnu Lögfræðistofunnar í Bretlandi, er hægt að fá að vita það hvort hún er komin í málið fyrir okkar hönd... Kveðja.
Óvissa um hvenær Icesave- frumvarpið verður afgreitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2009 | 19:25
Hverjir eiga þessa Lífeyrissjóði...
Mér hefur fundist hugmyndir Íslensku lífeyrissjóðanna langt frá sínu eðlilega hlutverki í áhættu með fé félagsmanna sinna sem eru eigendur þessara peninga.
Fólk er skyldugt að borga, og þessum lífeyrissjóðum skylt að halda vel utan um fé almenningsins, í ávöxtun.
Nú er ljóst að þessir sjóðir sitja uppi með gífurlega mikla peninga, og staða heimilana og fólksins eins og hún er, og af hverju í ósköpunum hafa þessir sjóðir ekki greitt ARÐ til félagsmanna sinna spyr ég. Ég veit ekki betur en að erlendis sé þetta gert.
Það hlítur að vera réttur fólksins að fá arð af góðri fjárfestingu á fé sínu. Kveðja.
Lífeyrissjóðir stofna Framtakssjóð Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.12.2009 | 03:42
Skömm.
Að það sé ekkert meir um þetta að segja innan veggja Samfylkingarinnar segir okkur að allur sá flokkur er búinn að vera meðvitaður ALLAN tíman um óheiðarleikann í þessu máli. Vitað um öll skjöl og gögn, allar skýrslur sem er til um þetta stóra mál ICESAVE, og tekið þátt í að ljúga að þjóðinni meðvitað. Alveg frá því fyrir kosningar.
Að horfa á Alþingi hálf tómt, Forseti Alþingis Ragnheiður Ásta að geispa golunni, Árni Þór kemur og leysir hana af, og fer á kjaftasnakk við konuna við hlið sér.
Hverslags vinnubrögð eru þetta..?
Hvar er stjórnarsamstaðan.... og Ríkistjórnin, Þau voru kosin til að vinna að málefnum þjóðarinnar, svo ég spyr hvar eru þau...
Ef þau eru svo þreytt eftir daginn að þau hafa ekki úthald til að vinna vinnuna til enda, þá eiga þau að víkja tafarlaust. Það er lámark að þau vinni vinnuna sína sem þau voru kosin fyrir.
Ef þau eru svo þreytt dag eftir dag, að þau geti ekki, aldrei, klárað vinnudag, þá hljóta þau að sjá að það gengur ekki, frekar en það sem við erum að horfa á hjá fjármálanefnd, þessa keyrslu, þá eiga þau að segja okkur það, okkur vinnuveitendum sínum. Að ætlast til einhvers af öðrum sem maður getur ekki sjálfur er ekki raunverulegt. Ekki ef maður er frískur og hraustur.
Mér er ein spurning í huga, sem hefur reyndar áður komið í huga mér, höfum við Ísendingar ekki eitthvað sem heitir æðsta ráð...Við erum að horfa upp á, að það er verið að nauðga þeim sem nenna að vinna með ómannlegum vinnubrögðum á löngum vinnudegi, á kostnað hinns helmingsins það er stjórnarsamstöðunnar sem getur greinilega ekki mætt þessum langa vinnudegi. Með hliðsjón af öllu því sem kom uppúr földu skúffunum í dag, þá hefði maður haldið að þau yrðu að vera í vinnunni sinni. Svo ég spyr aftur HVAR ERU ÞAU...
Getur einhver sagt mér með þetta æðsta ráð.. ég er ekki alveg viss hvar ég heyrði það fyrst þetta orð.
Mér kom þetta líka í huga þegar við vorum allt í einu með 3 af æðstu mönnum okkar á sínum tíma mikið veika, Ingibjörg Sólrún, Davíð Oddsson og Geir H. Þá hvarlaði það að mér hvort við Íslendingar ættum ekki til eitthvað sem heitir æðsta ráð. Ráð sem segir til dæmis. Heyrðu elskan mín, nú skalt þú fara heim og láta þér batna, þau öll þrjú unnu mikið veik, og að vera mikið veikur þá skerðist þröskuldur manns í krafti, einbeittingu, og úthaldi, er með reynslu sjálf, en þá hvarlaði þetta að mér þarna á þessum tíma, og núna þá gæti þetta ráð til dæmis sagt, stopp við þessum hraða og þessum óvönduðu vinnubrögðum sem og kæruleysi sem er að einkenna vinnubrögð Ríkistjórnar og Alþingi núna vegna þreytu og áhugaleysis stjórnarsamstöðunar og Ríkistjórnar. Ef þessi vinnubrögð eru vegna álags og pressu þá eru menn ekki starfi sínu vaxnir. Nú ef þetta er vegna þess að þau kunna ekki að vinna vönduð og góð vinnubrögð, þá má alltaf taka þau í kennslu og kenna þeim, til dæmis hvernig fólk talar saman og hvernig fólk rökræðir hlutina fær niðurstöðu með nálgun á efni sem fylgir málefni, finnur lausn sem er unnin út frá þvi hvað er þjóðinni fyrir bestu, kynnir það fyrir þjóð, svo sofa menn eina nótt á þessu, líta yfir aftur daginn eftir, og ef allir eru sammála þá eftir nóttina, þá fer málið áfram. Það gæti útskýrt þessa lélegu mætingu og þetta litla úthald sem þau eru haldin að þau kunna ekki að vinna á Alþingi Íslendinga. Kveðja.
Vísar ágreiningi á bug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 1263
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar