Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
8.12.2009 | 02:01
Fjárlaganefnd á að fara í frí.
2 umræðu á Alþingi um ICESAVE á ekki að ljúka fyrr en fjárlaganefnd hefur skilað niðurstöðu og Alþingi samþykkt.
Það er stór spurning hvort fjárlaganefnd sé ekki bara orðin vanhæf með þetta mál. Vanhæf vegna kæruleysis í vinnubrögðum, pressu, þreytu og álags yfir þessu máli. Langir vinnudagar langt fram á kvöld, vannærð vegna þrælkunnar vinnu ráðamanna sinna, og Jólin að koma.
Þessir menn halda ekki lengur huga við efni á fundum sínum,( blogg Sigmundar Ernis) svo það ætti að leysa þessa menn frá þessu máli, og senda þá í gott frí.
Ég efa ekki að það sé hægt að fá hæfa góða einstaklinga þarna úti sem eru til í að koma að þessu fyrir okkur, sem eru tilbúnir fyrir lítinn pening og þessarar erfiðu stöðu okkar sem við erum í vegna þessa máls, sem hægt er að biðla til um aðkomu að þessu, og vilja bera hag okkar þjóðarinnar fyrir brjósti sér, sem gætu myndað góðan hóp af fagmönnum, sem gæti verið hópur lögfræðinga, hagfræðinga, viðskiptafræðinga og fleiri. Utan úr bæ, þetta geta ekki vera innandyra menn vegna vantrausts sem er komið hjá þjóðinni. Miða við þá tölu sem þarf jafnvel 6 menn. (Hugmynd) og láta þá klára þetta mál fyrir Íslands hönd. Það þarf vönduð og góð vinnubrögð hér, og það má ekki líðast að þetta stærsta mál okkar hingað til verði unnið meira með annari hendinni áfram, eins og margir myndu segja.
Það verður að gefa þessu þann tíma sem þarf, þetta er það stórt mál fyrir okkur, og svona mál vinnast ekki á 2 tímum, eða nokkrum dögum, það er hverjum heilvita manni það ljóst, og við skulum vona að ráðamenn okkar séu þar í hóp.
Svo gefum okkur frekar að þeir séu orðnir of þreyttir, og öll vitum við hvað gerist eða flest okkar þegar langir vinnudagar eru farnir að renna í eitt, álagi linnir ekki, og ekki sér fyrir endan á ef vel á gera, svo það þarf að gefa þessum mönnum frí, og kalla aðra að.
Fáum góða vinnu á þetta, rétt á að vera rétt, nú ef niðurstaða á eftir að leiða það í ljós að okkur ber að borga, þá er komin grunnur til að setjast niður og skoða hvernig á gera það, en taka á því þegar að því kemur. Kveðja.
Ágreiningurinn leystur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2009 | 12:21
Glansmynd á okkar kostnað.
Hverslags sýndarmennska er þetta.
Að utanríksráðneytið, og þá væntanlega Utanríkisráherra okkar skuli sjá meiri þörf á að styðja menntaverkefni sem miðar að því að AUKA skólaaðgang, og BÆTA gæði menntunar barna í Paderhéraði í norður Úganda er alveg óskiljanlegt núna vegna þess að.....
Þetta er gert á kostnað okkar Íslendinga, og eins og staðan er hérna heima núna, þá væri óskiljanlegt að þetta framlag fengi ekki gagnrýni.
Allir skilja það að stundum er maður meira aflögufær, og stundum minna. Gott og þarft verkefni Barnaheilla í starfi er ég ekki að gagnrýna, og er mikilvægt að það komi hér fram fyrir mig sem persónu, en við Íslendingar erum núna í erfiðri stöðu. Svo erfiðri stöðu að við eigum ekki sjálf fyrir skólabókum barna okkar tólum eða tækjum vegna okkar erfiðu stöðu. Sem er vegna allra þeirra skerðingar sem eru yfir okkur að dynja vegna þessa hruns í fjármálaheiminum og ICESAVE krafna sem eru ekki okkar. Staðan svo erfið hjá stórum hluta Íslendinga, barnafjölskyldum sem og öðrum einstaklingum, að við erum með langar biðraðir í viku hverri af fólki, sem leitar eftir mataraðstoð. Eigin þjóð sem stendur frammi fyrir því að lífsskilyrði sinna eigin ófæddu barna í komandi framtíð eru að skerðast frá og með janúar 2010. Svo þessi sýndarmennska hjá ríkistjórninni hérna út á við, er alveg óskiljanleg. Íslendingar eru að súpa dauðan úr skel liggur við að maður segi, á meðan við verðum áhorfendur á svona vinnubrögðum. Nei maður hlítur að gagnrýna svona vinnubrögð á svona tímum. Ríkistjórnin verður að fara líta sér nær.
Utanríkisráðherra ætti að skammast sín. kveðja.
Utanríkisráðuneytið styður Barnaheill | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2009 | 09:01
Smánarleg Ríkistjórn
Eðlileg samskipti segir maðurinn, já það getur vel verið að svona vinnubrögð séu eðlileg í sumum tilfellum.
En að lesa það að Bretar og Hollendingar hafi verið svo óöruggir með lagalegu hliðina sína á þessu, og ef við munum nú öll ummælin sem eru búinn að falla um ábyrgð okkar, Axla Ábyrgð, Axla Ábyrgð, sem við erum ekki ósjaldan búinn að heyra síðustu daga. þá er forkastanlegt hvernig Ríkistjórnin okkar gefur algjöran skít í okkur Íslendinga, og reynir allt til að knésetja okkur í samvinnu með Bretum Hollendingum og AGS, og allt til að Jóhanna fái miðan sinn í ESB, og einhverjum nöfnum innan Landsbankans hlíft. Lánabók bankans upp á borð núna...
Að Bretar og Hollendingar hafi verið svo óöruggir með lagalegu hliðana, og hafi ekki viljað búa við þá lagalegu óvissu að fá kannski bara það sem hefði verið til í innistæðutryggingarsjóði og í eignum bankans, fær mann til að hugsa...er Steingrímur ekki búinn að vera að reyna telja okkur trú um að þessar endurheimtur innan bankans í eignum muni greiða þetta allt, Er hann kannski búinn að ljúga líka af okkur með þessar eignir allar, og virði þeirra, og hvað erum við að lesa hér, að ekki voru eignirnar nægar, og ótryggar líka greinilega fyrir Breta og Hollendinga. Þetta segir okkur í raun að ekki króna af þessu öllu saman er okkar að greiða. Bretar og Hollendingar vissu það allan tímann að ábyrgð okkar Íslensku þjóðarinnar var enginn, og er þá enginn. Að Jóhanna og Steingrímur hafi kosið að fórna okkur þjóðinni í þessum leik er öllu verra að heyra fyrir okkur og sárt að verða fyrir því að Ríkistjórnin virði ekki þegna sína meir.
Vanhæf Ríkistjórn. Krefst afsagnar hennar tafarlaust vegna siðleysi og siðblindu sem hún er haldinn. Kveðja.
Eðlileg samskipti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2009 | 00:49
Íslendingar krefjist afsagnar Ríkistjórnar tafarlaust.
Þetta eru alvaralegar fréttir hér á ferð, að þetta skulu hafa átt sér stað fyrir Alþingiskosningarnar, meðan minnihluti Samfylkingarinnar og Vinstri Græna var treyst fyrir þjóðinni, áður en gengið var til kosningar.
Þetta útskýrir af hverju þau hafa ekki getað staðið við þessi fögru, já fögru kosningarloforð sín, sem er ágætt að rifja aðeins upp, allavega eitt..2 og urðu 3.
EKKI ÞJÓÐARINNAR AÐ BORGA ÓREIÐUSKULDIR ANNARA ICESAVE...
SKJALDBORGIN UTAN UM HEIMILIN Í LANDINU...
ALLT UPP Á BORÐUM...
Ég hef stundum talað um þennan lífshring í lífinu. Ég hef nokkru sinnum sagt að það er ástæða af hverju þetta ICESAVE hefur ekki gengið upp. Svo vill Steingrímur Jóhann Sigurðsson að Landsbankinn verði eini ríkisbankinn með þessu öllu innandyra, sem tryggingainnstæðusjóður ætti að vera með á sínum herðum.
Þessi Ríkistjórn er búin að hafa þjóð sína að fífli liggur við að ég segi. Ljúga og ljúga upp í opið geðið á okkur, og það er ekki hægt að líða.
Þessi óheiðarleiki strax í byrjun fyrir Alþingiskosningar, segir okkur að Ríkistjórnin hefur allann tíman ætlað sér að fara þessa leið. Þessi ótti hennar gagnvart þjóðinni er skiljanlegur þegar maður les þetta. Lofaði þjóðarakvæðagreiðslum á öll málefni ef því var að skipta, bara til að fá atkvæði, og eru svo liggur við búinn að setja þjóðina í brunarúst.
Ef þau hafa ekki vit á því að víkja sjálf, þá verður þjóðin að krefjast þess að ríkistjórnin víkji tafarlaust í morgunsárið, ef þau sjá ekki sóma sinn sjálf. Kveðja.
Icesave-póstar á Wikileaks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.12.2009 | 16:57
Að verða stór getur stundum verið erfitt.
Það að vera fullvalda er ábyrgaðmikið hlutverk fyrir hvern og einn. Að vita hvað maður vill með hliðsjón af því hvað er manni fyrir bestu, án þess að stíga á rétt annara og troða um tær, er kúnst og mikið ábyrgðar hlutverk.
Að vera fullvalda er líka að vita mun á réttu og röngu. Sannleikann frá ósannleikanum.
Að vera fullvalda er líka að vera meðvitaður um að vera barn...
Varðandi þennan vaxtarkipp og þessa vaxtarverki sem ég vil meina að við séum í miðjunni á núna, og erum að fara í gegnum skiptir sköpun fyrir okkur hvernig við tökum á, og hvernig við Íslendingar stígum þessi mikilvægu skref í framtíðinni hefur svo sannarlega með það að gera að vera fullvalda, og Sjálfstæðir einstaklingar.
Hef ég aðeins komið inn á þennan vöxt okkar og þroska í skrifum mínum undir nafninu 1.Desember.2009. Öllum velkomið að lesa hann. En þar nefni ég þetta í sambandi við þetta orð Peningar. Sé ég okkur í miklum vaxtarverkjum þar, og jafnvel svo miklum á kafla, að það verður spurning hvort við viljum verða Fullorðin, viljum halda Sjálfstæði okkar og Fullveldi eða ekki.
Hvað það þýðir að stíga ekki þessi skref, og gefa bara eftir allt saman, ICESAVE á okkur til greiðslu þó okkur beri ekki lagaleg skylda til, inn í ESB þýðir stýring á okkur úr fjarðlægð, og hvað sem við segjum og tautum, þá verður ekki hlustað á okkur vegna smæðar okkar, svo bara litið á þessa þætti þá er alveg ljóst að við munum ekki ráða okkur sjálf, og það sér hver heilvita maður. Svo Sjálfstæði okkar minnkar mikið, mjög mikið, og það er ég að sjá fara ekki vel í okkur, Fullveldið er farið þarna líka, það segir sig bara sjálft, og þarf ekki frekari útskýringar. Yrðum við sátt við að geta ekki gengið um landið okkar eins og við höfum getað hingað til þegar okkur langar... Allt verður hólfað niður, og við munum jafnvel þurfa leyfi til að komast út í náttúruna. Öll græn svæði verksmiðju vædd, það má spyrja sig hvort það sé það sem viljum.
Við munum ekki ráða hversu mikinn afgang af innkomu okkar við munum eiga, (þegar komin vísir að því) Alveg sama hversu stuttur eða langur vinnudagurinn verður, allt yfir vissa upphæð verður tekið í burt í skattaformi, formi sem verður sniðið þannig að skuldarstöðu hvers og eins, og allt umfram greiðslubyrði plús framfærslu verður skattur og fjarlægt úr launaumslagi. ICESAVE borgun. Við munum ósköp lítið geta sagt inn í ESB. Svo Sjálfstæð verðum við ekki þarna.
Fiskimiðinn okkar, 200 mílurnar sem við Íslendingar börðumst ekkert smá fyrir, það fer, og alveg sama hvað hver segir hér og hverju verður lofað með fagurgali Utanríkisráðherra okkar, þá eru fiskimið okkar eitt af því sem ESB vill fá. Hafa ýmsar fréttir komið fram sem segja ,,betri tíð í vændum innan ríkja ESB vegna aðildarumsóknar Íslendinga í ESB,, var meðal annars ein fyrirsögn í blaði um daginn, en megin málið við munum ekki ráða hverjir veiða, og hvar við Íslandsstrendur, og þess frekar að við fáum að ráða löndunarstöðum.
Er hægt að benda á marga, marga þætti áfram hérna, Landbúnaðinn, garðyrkjuna, blómabændur ásamt fleirum, en aðalspurningin hér er viljum við verða stór eða ekki. Þegar ég skoða þetta svona, þessa stöðu sem við erum í, með þetta val en sem við höfum..ekki búið að troða ICESAVE en á okkur eða inngöngu í ESB, og það alveg ljóst að Sjálfstæði okkar fer, og Fullveldi, Er þá ekki betra að taka því sem því fylgjir að verða stór og fullorðin og axla ábyrgð á landi okkar og okkur sjálfum, á réttan hátt eins og fullorðið fólk.
Ef ég væri að tala við ykkur elsku þjóð ( vonandi einhverja.) þá mundi ég segja ykkur að mér finnst við vera að missa svo mikið af okkur sjálfum ef þessi leið verður stiginn, það er inn í ESB og með þessa lítilsvirðingu á bakinu sem okkur er sýnd með þessum ICESAVE óhróðsreikningi, að við verðum bara að borga, og vera bitur allt okkar líf fyrir það, þá er það spurning hversu miklu við höfum að tapa á því að segja bara núna nei takk við ESB. Ekki núna, en þökkum samt gott boð. ICESAVE gerðum við svipað við. Við vitum að það voru Íslendingar sem rændu einstaklinga eigum sínum, Breskum, Hollenskum og Íslenskum einstaklingum sem og fleiri. Að ætlast til að við Íslendingar berum einir alla ábyrgð á gjörðum þessara einstaklinga er ekki hægt, og er allveg ljóst að fjámálaeftirlit allra þessara landa og Íslands líka brugðust skyldu sinni varðandi þessum einkabönkum, og bara að hleypa þessum fyrirtækjum inn í landið og leyfa þeim að stofna fyrirtæki þar, ætti ekki að vera hægt án þess að eftirlit sé með. Við Íslendingar, og ætla ég að leifa mér að orða þetta svona, en eins og ég segi, við Íslendingar höfum sagt að við sé öll af vilja gerð til að bæta þann skaða sem varð þarna ef við getum, við höfum boðist til að greiða þá lágmarksríkisábyrgð sem hvíla á þessum reikningum, þó að við Íslenska þjóðin höfðum engin lög þarna sem skylduðu okkur til að gera það, þá höfum við boðist til að gera þetta, svo að heyra að við séum hrokafull og í sjálfsvorkun, og viljum ekki borga er ekki rétt, ég er ekki á því. Við erum í þessum vexti að vita hvað á að gera næst. Við eigum landið okkar með fullt að ónýttum tækifærum í dag, og stöndum frammi fyrir því að verða að auka tekjur okkar. Jarðir um allar sveitir eigum við sem hægt væri að setja smá bændur á með búskap, og hvernig það væri hægt að framkvæma í framkvæmd, þá höfum við Íslendingar aldrei verið löt, alltaf tilbúinn að hjálpa og gera, ef við getum, þetta hugarfar verðum við að taka upp og allir að vinna að einu, margar hendur gera stórt. það kostar að gera lagfæringar, en þær geta kostað mis mikið, Að laga og bæta það sem til staðar er, þó nýtt sé ekki þarf að vera leiðarljós, og þannig hugarfar og margar hendur gera stórt verk létt. Það er hægt að fara á atvinnuleysishópinn okkar og finna marga þar sem væru meira en lítið til í að taka þátt í þessari uppbyggingu okkar sem við yrðum að setja í gang, þetta er nefnilega framtíð sögunnar okkar sem hér er verið að skrá, hvernig við rísum út úr þessari kreppu, segjum peningar eru nausynlegir, en lífið er ekki þeir. Á jörðum okkar er hægt að vera með kúabændur, nautgripabændu, svínabændur, fjárbændur, hrossabændur, fuglabændur og margt sjálfsagt fleira, en gefa þessari uppbyggingu 2 til 3 ár, til að komast á laggir og sjá svo hvað framleiðslan gefur af sér í tekjur í ríkisjóð, hvernig ætti nú að vera mögulegt að hrinda þessu í framkvæmd spyrja margir, en þá eigum við til eina leið sem hefur verið farin áður í sögunni okkar svona, kvótasamningar, og jarðarleigu samningar gerðir við fjölskyldurnar. Er þetta tímabil í sögunni okkar og hægt að lesa um í öldinni 1700 til 1800. og gætum við alveg nýtt okkur aðferðarfræðina sem er notuð þarna í grunninn hjá okkur.
Varðandi fiskinn okkar og mið, og þá stöðu sem er í landinu, þá höfum við fullt af frystihúsum með miklu innan dyra sem hægt er að laga og koma í gagnið, við eigum fullt af handlægnu fólki, allir vilja taka þátt í þessu verkefni þjóðarinnar, gefa fiskiveiðar frjálsar á smærri skip og báta í 2 til 3 ár, og allur fiskur heim í hús. Öll viðskipti út úr landinu eiga að fara fram í Íslenskri krónu og ekkert annað, Ísland á eftir að verða eitt af betri matvæla húsum framtíðarinnar. það er svo margt sem við getum gert ef við bara viljum verða fullorðin, Sjálfstæð, og ráða okkur sjálf. Alla vega það er allt til að vinna fyrir okkur, og er þessi listi minn engan vegin fullkomin, en stærri í huga mér.
Að við Íslendingar gefum okkur það í jólagjöf að vera ábyrg og dugleg, Sjálfstæð og Fullvalda þjóð væri gjöf sem við munum alltaf þakka okkur fyrir. Málið er að sjá hvernig við eigum og getum kæru Íslendingar gert þetta, og ég er að sjá okkur rísa upp. Stöndum saman um Land okkar og okkur. Kveðja. ps. vona að mér fyrirgefist villur ef eru.
Tekist á um fullveldið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2009 | 23:33
Fyrir ESB.
Þá eru Jóhanna og Steingrímur að gera þetta klárt á þessum væng fyrir inngöngu sína í ESB. Það er verst að þau eru ekki að gera sér grein fyrir þvi að þjóðin vill ekki þarna inn með þeim, (kannski stór orð Þjóðin) en meirihluti hennar allavega. Er ekki hægt að segja þeim að fara nú að stoppa þennan yfirgang og frekju sem og vanvirðingu sem þau eru að sína þjóðini sinni með þessum aðgerðum sínum öllum.
Ég krefst þess að Alþingi taki þetta háttarlag sem þau eru að sýna þjóð sinni með þessum aðgerðum sínum til umræðu tafarlaust. Það er lágmark að þjóðin fái að kjósa um þessa aðildarumsókn hennar Jóhönnu inn í ESB áður en lengra er haldið tala nú ekki um á meðan það er ekki heldur búið að afgreiða þennan ICESAVE reikning og allt hangir á þeirri spítu þar. Það kostar pening að breyta öllu þessu, og hvað þá ef meiri hluti þjóðarinnar vill ekki inn. Ef Jóhanna og félagar eru hrædd við niðurstöðu þjóðarinnar, þá hafa þau ekkert að gera í þeim embættum sem þau eru í. Þau verða að láta slag standa núna. Þjóðfélagið er á suðupunkti vegna frammkomu þeirra við sig, og þessar aðgerðir sem er verið að gera hér, eru væntanlega gerðar í skjóli nætur, og settar svo fram í búning sem lætur líta út að fyrir að séu mikið útpældar og hugsaðar. HINGAÐ OG EKKI LENGRA. Þjóðaratkvæðagreiðslu strax um það hvort við viljum þarna inn. Kveðja.
Mótmæla fækkun ráðuneyta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2009 | 22:17
Sorglegt.
Að sjá þróunina sem þessar hækkanir allar munu leiða, og afleiðingarnar af þeim er kunna verða, er það sem mig langar aðeins að minnast á að aðalmáli hér.
Afleiðingarnar á sálartetrið okkar sem er þegar byrjað, hvað sem allir segja þá skilar þetta sér beint þangað hjá öllum. Þeim sem hafa samvisku og metnað í að standa blikkið sitt eins og maður kallar það, og er það ekki ósk okkar allra, að geta staðið okkur...
Öll vitum við að það eru breyttir tímar, og ekkert verður eins í framtíðinni, og öll vitum við það að það verður að skapa verðmæti svo hjólið snúist. Öll, vonandi öll erum við tilbúinn að taka á okkur tímabundnar þrengingar, annað eins höfum við gert, og höfum svo sannarlega sýnt hvað í okkur getur búið ef á hefur þurft að reyna í sögu okkar.
Að standa með þennan ICESAVE reikning yfir höfði okkar, Reikning sem er ekki okkar ( Reikningur Einkabanka Landsbankans ) Reikning sem þjóðin veit að hún þarf lagalega ekki að borga, en er þröngvað samt á herðar okkar og mun hafa þær afleiðingar að við öll sem einn förum í ánauð, og hvaða líðan kallar það á hjá þjóðinni þegar staðan er orðin þannig, Jú Reiði, Vonbrigði, vonleysi og kvíði. Hjá foreldrum og bara hjá öllum sem ábyrgð hafa skiptir mála að geta staðið sig, borgað það sem maður þarf að borga, og átt ofan í sig og á. Að standa frammi fyrir því að þurfa að velja hvort það verður til fæði og klæði, eða borga reikningana á engin að þurfa að standa frammi fyrir í okkar þjóðfélagi, en er nú þegar að gerast, þó að ekki helmingurinn af öllum skattahækkununum og álögunum séu komin á sem koma munu..
Hvaða afleiðingar á framtíðina okkar og barna þetta mun hafa með tillit að þessu sjónarmiði geta aldrei orðið góðar. Allir alltaf pirraðir, pirraðir og reiðir yfir að geta ekki staðið blikkið sitt, og allir ég segi allir munu kenna þessum óhroða reikningi ICESAVE að nafni um, ungafólkið mun alast upp við biturð og reiði. Við Íslendingar munum verða þung á sál okkar, reið og örg yfir að við skyldum hafa látið bjóða okkur þetta, En hvað, við létum samt gerast.(Ef verður) Kúga okkur og plata með fagurgali frá Ríkistjórn, og þar verða mannanöfn nefnd á heimilum, svo hvaða framtíð af fólki verður til við það...Jú fólki sem veit hverjum verður kennt um, og hvert þessi staða skilar sér er náttúrulega beint til barnanna okkar, og þaðan til barna þeirra og áfram. Kynslóð af fólki sem er alið upp í fullt að reiði.
Nei þá er betra að láta minnast þess í sögunni að við Íslendingar allir sem einn reyndum allt sem við gátum til að verja Sjálfstæði okkar og Fullveldi. Hvernig það skráist í söguna, verður allt eftir því hvernig við tæklum þessa stöðu núna eins og sagt er á fótboltamáli, og er það í okkar höndum núna kæru íslendingar og er mikilvægt að við öll séum meðvituð um þessa stöðu, en með máli mínu er ég að segja líka að þetta er allt í hendi okkar núna, það er þetta val sem við stöndum frammi fyrir, hvort við ætlum að sæta þessari kúgun sem er verið að beita okkur, sæta þessum ómannúðlegu vinnubrögðum sem Ríkistjórnin er að láta viðgangast á Alþingi. Alþingi okkar sem Ríkistjórn ber að hlíða. Allir vita það að til að skila góðum vinnudegi, þá skiptir góður svefn og góð næring miklu máli, og rannsóknir sýnt beint samhengi þarna á milli. Það eru mikilvæg mál þessi skattamál okkar, og á ekki að hlaupa með þau. þetta ICESAVE mál á engan vegin heldur að hlaupa með, tala ekki um eins og staðan er í dag. Það virðist engu máli skipta hvernig á að búa þennan pening til sem þarf að skaffa svo hægt sé að mætta útgjöldum ríkisins, peningurinn skal tekin hvernig sem farið verður að af okkur í aðgerðum Ríkistjórnar, og væri nú ekki betra að fá að vita hvernig er hægt að búa hann til fyrst ? það er alla vega skynsamlegra.. Að lesa það í fréttum núna að ICESAVE skal samþykkt og sett í lög fyrir áramót segir okkur að Steingrímur Jóhann Sigfússon Fjármálaráðherra okkar er enn og aftur að vinna óvönduð vinnubrögð, búinn að segja áður að það verði unnið vel og vandlega í þessu máli sem og öðrum málum, snúa sér svo við á næsta blaða-fréttamann og segja KLÁRA KLÁRA fyrir áramót... Ég bara spyr, er hægt að líða svona vinnubrögð, hann vitandi af þeim upplýsingum sem þjóðin fékk í gær af þessum fundi sem átti sér stað með AGS mönnum.... Er von nema að maður veltir því jafnvel fyrir sér hvort hann sé kannski búinn að vaka of lengi, Maður sem setur kröfur á samstarfsmenn sína þarf að geta staðist þær kröfur sjálfur, og getur ekki sett kröfur sem hann getur ekki staðist sjálfur, nema veikur eða fatlaður sé, og ekki veit ég til þess hjá honum. Það er ljóst á hans mönnum og Samfylkingarmönnum að þau eru ekki að geta staðist þessar kröfur sem lagt er á þau, og ætlast til af þeim í vinnunni inn á Alþingi, geta ekki mætt og fjallað um málin og unnið þau út frá því sem þarf að gera vegna álags. Það er ekki hægt að ætlast til að stjórnarandstaðan vinni ein. það er ekki hægt að Alþingi fái ekki þann tíma sem þarf til að afgreiða málin, og svona mál sem ICESAVE er, og skattamálin okkar, það á ekki að afgreiða þessi mál án þess að vita hverjar verða afleiðingarnar af þeim breytingum sem er verið að gera.
Þá á hreynlega að gilda sú regla, að þegar lausn og leið er komin á mál, og hvað þá þessi mál ICESAVE og skattamálin, þá á að fara heim með það og sofa eina nótt á því áður en gengið er endalega frá búningi þess, og allir eru en sama sinnis daginn eftir. Forseti Alþingis á að sjá til þess að það séu unnin vönduð og góð vinnubrögð á Alþingi, og algjörlega óháð tíma. Unnið sé eftir stærð málefnis og efna, en ekki klukkunni. Þjóðin þarf að sjá að hún geti lifað á innkomu sinni, og það ræðst meðal annars á þessum málum. Kveðja.
Skattafrumvörp til nefndar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2009 | 13:34
Axla ábyrgð segir hann...
Axla ábyrgð, axla ábyrgð, segir maðurinn. Ekki skrítið þegar litið er til þess að hann er með hálfútfylltan lánasamning með nafni sínu sem greiðandi á,( Undirskrifað í skjóli nætur 5. Júni 2009.) en er svo ekki að fá ábyrgðarmenn með sér vegna þess hversu óendanleg upphæð er á honum og enginn treystir sér til að taka ábyrgð á svona láni. Þökkum fyrir Alþingi Íslendinga núna sem berst fyrir hag okkar.
Skelfilega dapurt mál segir hann líka, leiðinlegt og þar fram eftir götu. En ekki hvað hjá honum, þetta eru ekkert smá vandamál sem hann er búinn að koma sér í þarna.
Hann segist hafa tekið þann besta VALkost sem í boði var...hverjir voru aðrir valkostir hjá honum.. Þjóðin á rétt á að fá að vita það, það er jú verið að fara fram á að hún, ég, við Íslendingar borgum.. Hann segir einnig að þetta sé ekki einkamál okkar Íslendinga... hvað á hann við, það er verið að fara fram á að bara við Íslendingar borgum og enginn annar, og við sem vitum að okkur ber ekki skylda að borga þennan reikning, einfaldlega vegna þess að hann er ekki okkar. Að þjóðin fá engu um það ráðið hvort hún vilji taka á sig þessar Þjóðréttarlegu skuldbindingar getur bara ekki verið rétt... Og í framhaldi af þessum ummælum hans, þá spyr maður...Hver er búinn að skuldbinda okkur þjóðréttarlega séð...
Þjóðin er ekki skuldbundin fyrr en Alþingi er búið að gefa samþykki sitt, og Forsetinn samþykkja.
Ef þessi ICESAVE reikningur er ekki tilfallin til að fara með í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá veit ég ekki hvaða málefni gætu átt betur heima þar en þetta.
Að segja að við munum alltaf geta tekið málið upp seinna er sjálfsagt rétt hjá honum, það er alltaf hægt að koma kvörtunum frá sér, en segja svona vitandi hvernig fyrirvararnir eru núna á þessu máli er mikið ábyrgðarleysi, og virðist frekar benda til að það er annsi miklu kastað til til að fá þennan reikning samþykktan.
Hann Steingrímur kemur mikið inn á að þau hafi verið kosin með trausti meirihluta þjóðar, og það er alveg rétt hjá honum, þau voru kosin, en hann er ekki að sjá að þau voru kosin vegna kosningarloforða sinna. Loforðum um hjálp fyrir þjóðina, loforða um skjaldborg utan um heimilin og fjölskyldurnar.. Og hvernig eru þau búin að koma fram við þjóðina sína þar...Skjaldborg utan um fyrirtækin og atvinnulífið.. Og hvað eru þau búinn að gera þar....
Eitt er á hreinu, það að þau voru ekki kosin til að fara þessa leið sem þau eru að fara, og hefur maður stundum heyrt talað um að öll þessi kosningarloforð fyrir kosningar, séu bara blekkingar til að komast til valda.Og getur það vel verið svo sé. En þessar kosningar sem þau voru kosin í voru ekki alveg undir venjulegum kringumstæðum, svo maður gat ekki ímyndað sér að þau væru að sjá sér leik á borði.
Hvernig hann talar um okkur þjóð sína er ekki fallegt, eins og við séum andsnúinn honum vegna þess að við erum ekki sammála. Erum bara með skrílslæti og skrípaleik eins og hann hefur sagt.
Að axla ábyrgð í þessu ICESAVE máli sem og öðrum fjármálum, þýðir að það er aldrei hægt að ganga út frá öðru en því sem maður hefur. Hvað fer í rekstur, uppihald og útgjöld. Aðrar auknar skuldbindingar sem maður ræðst í, fara væntanlega eftir hver afgangur verður. Þannig mundi maður halda að gott bú ætti að vera rekið.
Sorglegt mál svo sannarlega.
Stöndum saman vörð um landið okkar. Það þarf okkur núna.
Verjum Sjálfstæði okkar og Fullveldi. Kveðja.
Samkomulag um afgreiðslu Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2009 | 20:51
Innan-ríkis-ráðuneyti...
Það var nefnilega það. Og einhvern veginn kemur þetta mér ekki á óvart að miða við aðrar aðgerðir sem hafa verið gerðar í skjóli... ja hvers.. af Ríkistjórn.
Verður með þessu skipting lagalegra stjórnsýslulegrar og fjárhagslegrar abyrgðar á milli Utanríkisráðuneytis og fyrirhugaðs Innanríkisráðuneyti....
Hvað þýðir þetta, jú nýtt ráðuneyti fyrir ESB.....kæra þjóð. Og Utanríkisráðuneytið ræður stjórnsýslu, en Innanríkisráðuneytið fjárhagslegri ábyrgð á Íslandi.
Er það það sem við viljum ? Eigum við ekki að fá að kjósa fyrst um það hvort við viljum í ESB, áður en sjálfstæði okkar fer í þetta Innan-Ríkis-Ráðuneyti, sem mun þá væntanlega þurfa að taka við öllum skipunum sem koma frá Utan-Ríkis-Ráðuneytinu, sem mun eiga heima hvar...
NEI HINGAÐ OG EKKI LENGRA KÆRA ÞJÓÐ...
Það er tímabært að kjósa um þetta núna áður en lengra er haldið, það er að verða ljóst.
Erum við tilbúin að vera fórnarlömb fyrir inngöngu Jóhönnu Sigurðardóttir og Össurar Skarphéðinssonar í ESB líka. Það er ekki nóg að reyna að troða óreiðuskuldum annara á okkur, heldur eru þau að sníða þetta þannig að það verður bara sagt kannski við okkur...því miður það er of seint að snúa við, svo þjóðin þarf kannski að fara undirbúa sig undir að lesa það í fréttum einn morguninn að inn í ESB er hún komin. Kveðja.
Varnarmálastofnun lögð niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.12.2009 | 14:12
Þora ekki að koma í pontu og svara því sem svara þarf.
Villl breyta þingsköpum segir manneskjan sem finnst við Íslendingar svo hrokafullir og sjálsumglaðir, að við hefðum bara gott af því að fá þessa blautu tusku framan í okkur sem ICESAVE er, og borga þennan reikning.
Las á bloggi hennar um það hvernig þessi ákvörðun hefði verið tekin, hver ætti að borga þennan reikning, það er eigendur hans eða við þjóðin, og maður frá háskólanum fengin til að meta það....
Niðurstaðan var þessi, það þyrti að lækka rostan í okkur, og við hefðum bara gott af því að borga þetta...
Hverjir áttu hagmuna að gæta hjá Landsbankanum verður þjóðin að fá að vita.
Hverjum er verið að hlífa hér....
Lánabók Landsbankann upp á borð strax...
Það er ekki hægt að setja okkur í ánauð fyrir svona vinnubrögð.
Á þetta fólk ekki að hugsa um okkar hag.....
Það er ósköp gott að geta bara breytt lögum og reglum eftir þörfum og hentugleika hverju sinni , svo menn geti losnað við að þurfa að standa frammi fyrir gjörðum sínum. kveðja.
Ólína vill breyta þingsköpum til að hindra málþóf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar