Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Að sjá ekki stöðuna eins og hún er, er alvaralegt.

Að skuldarstaöa þjóðarinnar sé 40 prósentum meira en áætlanir voru reiknaðar út frá er mjög alvaralegt, og lýsir miklu og alvaralegu ábyrgðarleysi hjá ráðamönnum þjóðarinnar að vera ekki með skuldarstöðu þjóðarinnar á hreinu...ef einhver á að vera með þessa stöðu á hreinu hjá okkur þá á það að vera Fjármálaráðherra vor, og standa svo frammi fyrir okkur þjóðinni, sem er að missa aleigu sína, er að breyta öllum sínum lífsvenjum til að mæta þessum þrengingum sem eru nú þegar komnar og telja okkur þjóðinni trú um að leiðin út úr þessu sé að taka ICESAVE skuldina á okkur í viðbót, sýnir mikið ábyrgðarleysi, og dómgreindarskort.

Að ætlast til að þjóðin taki á sig byrðar sem eru ekki hennar...er ekki hægt.

Að hlusta á þetta bull, að við eigum bara að taka þetta á okkur, vitandi það að allar tölur segja að við munum aldrei ráða við þetta, fyrir utan það að okkur ber ekki einu sinni skylda að borga þennan reikning, hvað þá lagaleg séð, og er að viðurkennast núna á Alþingi...Landsbankinn hefði farið á hausin og innistæðutryggingarsjóður með, og það er betra að þjóðin öll fari á hausin frekar en...... Ja hverjir.. Ætti að vera næsta spurning... Er nóg að horfa á þessa skuldarstöðu okkar til að sjá að við þjóðin munum aldrei geta ráðið við þetta. Hafnið þessum óhroðareikningi sem er ekki okkar þjóðarinnar Alþingi...

Alþingismenn þið voruð kosnir vegna stefnu ykkar....

Hvar er hún....

Þið hlutuð ekki kosningu fyrir þessum vinnubrögðum...að troða skuldum annara á okkur, sem okkur ber ekki einu sinni skylda að borga....

Nú ef þið Alþingismenn eruð með svona góð laun, og eigið svona mikinn pening, að þið persónulega getið borgað þetta, þá verðið þið persónulega með nöfnum að gangast fyrir þessari ábyrgð og borga þennan reikning, þið viljið það.

Þjóðin getur ekki gengið í ábyrgð fyrir þessu, og hún vill það ekki, veit nefnilega að hún þarf það ekki...

Stöndum vörð um okkur Íslendingar og gætum hagmuna okkar, Ríkistjórnin er ekki að gera það, að hugsa um okkar hag. Kveðja.


mbl.is Alvarlegar dylgjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjun á stærra sem vert er að skoða.

Það er hægt að sjá viðvörunbjöllu hér sem ber að skoða strax,  og hugsa hvernig hún gæti endað. Allt byrjaði á sínum tíma rólega, en fór stig versnandi, og allir vita hvernig endaði.

Að allt er að byrja aftur rólega, en samt öðruvísi rólega, er pínulítið uggvænlegt, uggvænlegt vegna þess að það er mikil og öðruvísi reiði núna í fólkinu en var, alvarlegri reiði sem hefur dýpri rætur, og hana ber að skoða. Hugsunin um hvernig þessi rólegu mótmæli byrjuðu síðast, og fóru svo stig versnandi ætti að vera áhyggju efni fyrir Ríkistjórn.

Hvaða áhrif þessar þrengingar sem orðnar hafa hjá okkur þjóðinni nú þegar, og þjóðin er að reyna allt sitt til að takast á við af skynsemi, og er henni nú þegar erfitt fyrir, ætti að vera alveg nóg fyrir alla að takast á við.

En vitandi það sem mun skella stax á okkur þjóðinni núna eftir áramót er allt annað mál, og maður þorir varla að hugsa  hvað það gæti þýtt fyrir heimilin og geðheilsu landsmanna. Ég óttast svolítið þær afleiðingar sem eiga efir að koma af þessu, Það er erfitt að standa frammi fyrir fjölskyldu sinni sem fyrirvinna, faðir, móðir, eiginmaður eða eiginkona, eða aðrir einstaklingar og vita það að maður getur ekki mætt þörfum fjölskyldu, staðið við skulbindingar sínar, brauðfætt heimili sitt. Er það erfið byrði að bera fyrir hvern og einn.

Þessi orð, Pabbi er alltaf svo reiður, og mamma pirruð, eru skelfilegar afleiðingar af þessari stöðu, og ættu að vera ríkistjórn áhyggju efni, því þessi staða er komin til vegna aðgerðarleysis hennar.


mbl.is Úthýst úr Alþingishúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleiki.

Sá veruleiki sem blasir við okkur Íslendingum í dag, að Forsætisráðherra vor, og Fjármálaráðherra láta hóta sér....fær mann til að spá í hvert það leitar áfram, skyldi það vera til samsstarfsmanna þeirra ? Það gæti útskýrt þessa þögn sem er þar.

Steingrímur sagði, að öllum þætti ósanngjarnt og rangt að ekki væri hægt að leysa málið með það í huga....

Bíðum nú við, með hvað í huga á hann við, að öllum þætti þetta ósanngjarnt og rangt þetta mál.. Já Guð minn almáttugur, hverjum finnst það ekki ? 

Eða það að  hennar Háttverðuga Jóhanna Sigurðardóttir, og hans Háttvirtur Steingrímur J. Sigfússon láti hóta sér... og þess vegna eigum við Íslendingar bara að þegja og borga..

Vitandi það bæði tvö að þessi aðgerð þeirra kallar ánauð yfir okkur, ánauð sem þarf ekki..þá hef ég eitt að segja þeim... Þó þið séuð hótunar hæf....þá táknar það ekki að þjóðin sé það líka.

Öll stjórnarsamstaðan sem lætur hóta sér má vita það líka, að þó þau séu hótunar hæf, Þarf það ekki að tákna að þjóðin sé það líka... Kveðja.

Verjum okkur Íslendingar. Ekkert réttlætir að okkur sé fórnað.


mbl.is Skuldabyrðin enn meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarsamstaðan til skammar.

 Er að fylgjast með Alþingi.. og ég spyr.. hvar er stjórnarsamstaðan.. Ríkistjórnin..

Hverslags aðferðarfræði er það að krefjast þess að fólk vinni út í eitt. Vinni út í eitt í máli sem er eitt það skelfilegasta sem hent hefur Íslensku þjóðina  SÓLÓ...

Að ætlast til að hægt sé að vinna til fulls, skila fullum afköstum, og mannsæmandi vinnubrögðum þá verða allir að mæta í vinnuna...og hvar er Ríkistjórnin... og hennar fólk,  þora þau ekki að mæta í vinnuna  og standa með svari sínu. Af hverju þau telja betra að þjóðin borgi bara og fari í ánauð. Sérstaklega þar sem það er ljóst að við þurfum ekki að borga.  Það verður ljósara með hverjum tímanum sem líður, að það er einhvað að þarna innandyra hjá stjórnarsamstöðunni. Nokkuð ljóst eftir þessi vinnubrögð í dag á Alþingi.

Þeim var vorkun í morgun, og það lá við að maður fyndi til með þeim, verið að tala um fundarstörf forseta og stjórnarsamstaðan sem loksins lét sjá sig, missti sig, hver á fætur annari í ICESAVE...En þora svo ekki að koma og ræða það þegar má...

Góður vinnuveitandi veit líka hvað þarf að gera til að fólkið hans skili  vönduðum og góðum vinnubrögðum, og það er að hugsa vel um fólkið sitt, og erum við að horfa á svoleiðis vinnubrögð á Alþingi okkar Íslendinga ?

Þessi vinnubrögð og framkoma við þá sem að eru að leggja sig fram eftir fremsta megni og getu til að passa hagsmuni okkar, og sína fram á hver rökin á fætur annarri sem allar benda bara enn frekar á að það er ekki okkar að borga þennan ólánsreikning, koma með upplýsingar sem segja okkur líka að það séu einar lygarnar í viðbót. Skuldarstaða þjóðarinnar miklu verri en fjármálaráðherra hefur viljað láta vera, og ICESAVE ekki einu sinni inni í þessari skuldarstöðu okkar, þetta er alvaralegt kæruleysisbrot, hjá manni sem hefur með fjármál heillar þjóðar að gera. Og finna sig knúinn til að ljúga segir bara hálfa söguna, sá sem er að ljúga er ekki bara að ljúga að öðrum, hann er að ljúga að sjálfum sér númer 1. 2 og 3. Bendir til að Steingrímur er ekki að geta horfst í augu við réttu myndina.

Og hvað gerir samstaðan frekar en að ræða það sem þarf að ræða, jú stígur upp í pontu og vælir um málþóf hjá andstöðunni...og hversu vittlaust er þetta.

Það er ljóst að stjórnarandstaðan er alveg fullkomlega fær til að mæta langri vinnutörn, og tala af viti, en því miður er ekki hægt að segja það hjá samstöðunni...hefur ekki kjarkin til að standa með sér. Hefur engan spennuþröskuld, og engan vegin getu til að vinna  undir þessu álagi sem er. Hvað er hægt að gera þarna er stór spurning, en mikilvæg, og er ljóst að aðgerðar vegnar þessarar vanhæfni hjá ráðamönnum þjóðarinnar þarf að bregðast við.

Stjórnarandstaðan á heiður skilið fyrir þessa vinnu sína, frammistöðu, og baráttu, og verður hennar allavega minst með það í huga í framtíðinni. 

Þetta er ekki hægt að segja með stjórnasamstöðuna, og ætti fólk að leggja andlit hennar vel á minni sitt, svo við Íslendingar getum bent afkomendum okkar á þá sem vildu endilega fórna okkur þjóðinni fyrir aðgöngumiða inn í ESB.

Verð ég að minnast á eitt sem kom fram í dag, og það varðar þessa lánabók Landsbankann. Þar sem þessi banki á að vera eini banki landsmanna aftur.. ef maður er að skilja fjármálaráðherra rétt, þá er það réttur okkar að fá að sjá hverjir skulda okkur, og hverjum við Íslendingar skuldum þarna.. 

Stjórnarandstaða standið ykkur, þjóðin hugsar til ykkar. Það er ekki hægt að ljúga svona endarlaust og segja eitt í dag og annað á morgun, eins og þjóðin er að horfa á hjá Jóhönnu og Steingrími, og hvað þá að vera með fjármálaráðherra sem veit ekki einu sinni hver fjárhagstaða þjóðar sinnar er. Kveðja.


mbl.is Ísland stefnir í greiðsluþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FER..TIL...

Það var nefnilega það...Hverjir eru Eigendur á þessu félagi...Fer-til ehf...
mbl.is Vilja reisa risaverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjóða birginn

Það er lágmark og á að vera skylda, krafa, og réttur okkar Íslendinga, að Ríkistjórnin Öll mæti núna niður í Alþingi, allir Þingmenn sömuleiðis, standi vaktina sína, vinni fyrir kaupi sínu sem þjóðin er enn að borga þeim, úr því málið er farið í þann farveg að það á að klárast núna, og það verði ekki farið úr þingsal fyrr en mælandaskrá tæmist. Þá er það skylda þeirra og ábyrgð gagnvart þjóðinni að vera til staðar til að svara.

Til að mælendaskrá tæmist, þarf ríkistjórnin að standa fyrir svörum og svara.

Ég skora á alþingi að stöðva þetta bull tafarlaust, láta kalla Ríkistjórnina ALLA inn á Alþingi strax, og taka þá slaginn, segja þjóð sinni hversvegna hún eigi að fara í ánauð fyrir þennan reikning sem hún á ekki einu sinn. Öðruvísi klárast ekki mælendaskráin.

Að ætlast til að mælendaskráin tæmist án svara er FYRRA.


mbl.is Þingfundur þar til mælendaskrá er tæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingar svik.

Af hverju ætti þjóðin að borga ICESAVE er en spurt um, og svo sannarlega þörf á, þar sem að þeirri spurningu er ekki svarað en ..

Samfylkingarflokkurinn er  eini flokkurinn sem á eftir að fara í saumana á varðandi ástæðu þess hvers hversvegna þjóðin ætti að borga þessa óreiðuskuld.

Vegna vangá á óábyrgum loforðum kannski... fjármálaráðherra sagði í gær...engir ósýndir pappírar í þessu máli lengur.... þegar hann segir engir.. þá efast maður um heiðarleika orða hans því miður, engir og ekkert hjá honum hafa sýnt okkur að þá er eitthvað... og enginn ósýndur pappír...getur ekki einhver athugað þetta fyrir okkur Íslendinga...

Nöfn Samfylkingarinnar á þessum tíma voru hún nafna mín Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, og óska ég henni alls þess besta í lífi sínu, og því sem hún er búin að ganga í gegnum vegna veikinda sinna. Björgvin G Sigurðsson líka ef ég fer með rétt mál, og sjálfsagt fleiri, en nöfn sem voru uppi á borðum aðalega þessi.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur komið fram og sagt sitt í þessu, það sem hún sagði, að sér finndist ríkistjórnin okkar koma fram eins og hún sé argasti sökudólgur í þessu máli, segir mikið um hennar viðhorf á stöðu okkar í þessu máli.

Nú þá er Björgvin G. Sigurðsson næstur, og í hvaða stöðu hann var vita allir, gaf hann einhver loforð um greiðslu á þessu...?  Hann var látin víkja úr sæti sínu fyrirvara laust þarna ef mig minnir rétt, Hvarf bara allt í einu án skýringar. Svo maður spyr gæti verið að það væri verið að leggja þessar byrðar á okkur vegna einhvers sem gerðist þar...

Það er ekki hægt að Fjármálaráðherra komi fram og segi, það er ekki hægt  segja hversvegna þjóðin  eigi að borga....hún á bara að borga...

Hann verður að vera ábyrgur orða sinna, ábyrgur gagnvart þjóð sinni númer eitt tvö og þrjú.

Af hverju ég segi að Samfylkingarflokkurinn sé eini flokkur sem á eftir að fara ofan í saumana á er vegna þess að, Sjálstæðisflokkurinn er búinn að fá sína útreið, og ef þessi ástæða sem má ekki segja frá væri frá þeim flokki komin, þá er alveg ljóst að það væri komið upp á borð. Eins er hægt að segja um Framsóknarflokkinn, það væri svo sannarlega komið fram ef að þetta leyndarmál ætti heima þar á borði. Nú flokkur Steingríms J. Sigfússonar var í andstöðu, svo varla að finna sökudólg þar innan dyra, Borgarhreyfingin ekki til þarna, en Samfylkingin var við völd ásamt Sjáfstæðisflokknum, og þau völd sem að Samfylkingin var með þarna þarf að skoða betur, hafa völd og áhrif Samfylkingarinnar á þessum tíma aldrei verið skoðuð, það er eins og þátttaka þess flokks þarna sé heillög.

Skíturinn leitar alltaf í heimahús aftur. Það sem er sorglegt í þessu öllu saman er að Steingrímur J Sigfússon og hans flokkur skuli vera tilbúinn að taka allan skítinn á sig, allan skítinn sem Samfylkingin á kannski með réttu.

En þetta eru vinnbrögð sem Samfylkingin  hefur  notað áður, og er sorglegt að sjá.

Það er ekki hægt að þessari ICESAVE skuld verði skellt á bak okkar ef að það þarf ekki, og engin lagastoð til sem segir að við verðum eða okkur beri lagaleg skylda að borga....................

Er ekki einhver sem getur farið ofan í saumana á þessu fyrir okkur Íslendinga, á þessari stöðu sem er komin upp. Stöðu sem mun ef nær fram að ganga setja okkur í óbætanlegt tjón, ekki bara fjárhagslegt, heldur andlegt tjón líka.  ALÞINGI HAFNIÐ ÞESSUM HROÐAREIKNINGI...HANN ER EKKI OKKAR AÐ BORGA.    Kveðja að sinni.


mbl.is Yndislega ótrúlega ómerkilegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirvara um veð í eignum okkar á að taka í burtu.

Já þetta er orðið spurning um fyrir hvern hans Háttvirtur fjármálaráðherra vor er að vinna...

Var að hlusta á hann á Alþingi, þar sem hann virðist leggja allt í sölurnar til að þessi hroða lánasamningur lendi á röngum herðum, okkur Íslendingum, frekar en á réttum eigendum hans, sem þjóðin hefur reyndar ekki en fengið að sjá nöfnin á, og kalla ég eftir því að þjóðinni verður birtur sá nafnalisti, þá kom þessi spurning í huga minn... Nú ef hann er að vinna með hag okkar Íslendinga  að leiðarljósi... sem hann á að vera að gera, og alltaf hafi staðið til að virða Eignir okkar Íslendinga, og allir sammála því beggja megin hafs eins og hann sagði í fyrirspurn á Alþingi, að það standi aldrei til að grípa til þessara veðsetningar, veðsetningar sem er samt verið að fara fram á af Bretum og Hollendingum að verði virtar í þessum samningi, og að þær verði samþykktar með þessum lánasamningi sem hann vill setja á herðar okkar á Alþingi, að það muni aldrei koma til að grípa til þessarar veðsetningar... Þá spyr maður... HVERS VEGNA ERU ÞÁ EKKI TEKIN ÚT ÞESSI ÁKVÆÐI UM  VEÐSETNINGAR Á EIGUM OKKAR Í ÞESSUM LÁNASAMNINGI::::EF ALDREI STANDI TIL AÐ GRÍPA TIL ÞESSARAR VEÐSETNINGAR HVORT SEM ER ?   ÞAÐ ER ÞESSARAR VEÐSETNINGAR Á ÖLLUM OKKAR EIGUM íSLENDINGA.

Það er ljóst að Bretar og Hollendingar vilja fá sitt rán borgað til baka, sem og við Íslendingar líka. Bretar beita greinilega öllum sínum þrýstingi til að fá sitt, og það þarf að skoða, hvert sá þrýstingur er að fara.

Vissulega liggur fyrir undiritaður samningur milli 3. þjóða eins og fjármálaráðherra vor er að segja á Alþingi, En HÁLF undiritaður.... og gleymir að nefna það líka sem og ástæðu þess að hann er bara hálf undiritaður, væntanlega vegna þess að það er óþægilegt að viðurkenna það fyrir sjálfum sér, og hvað þá þjóð sinni, að maður hafi unnið óvönduð vinnubrögð. En án samþykki Alþingis en, svo Alþingi fyrir hönd okkar Íslensku þjóðar sem kaus ykkur til valda, hugsið um okkar hag, hans Háttverðugi fjármálaráðherra vor er ekki að gera það, krefjist þess að Ákvæðin fyrir veðsetningum á eignum okkar verða tekin út fyrirvarlaust, án tafar, strax, áður en lengra er haldið.....með ICESAVE, ef ekki kemur til að grípa til þeirra eins og hann segir, þá eru þeir óþarfi þarna inni. Valda bara leiðindum.  Kveðja.


mbl.is Hagstæðustu kjör sem fást
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarandstaðan að vinna verk sem Ríkistjórnin lofaði Þjóð sinni...

Steingrímur segir að Sjálfstæðisflokkurinn verði að horfast í augu við það að....

Þjóðin hafi falið vinstri flokkunum að leiða Landið út úr ógöngunum.

Er Fjármálaráðherra ekki við góða heilsu...

Vissulega treysti þjóðin þeim kosningarloforðum sem þessir vinstri flokkar lofuðu þjóð sinni.

En hver voru þessi loforð sem þessir blessaðir flokkar lofuðu þjóð sinni, það veitir greinilega ekki af því að rifja þau upp, því alveg er ljóst að þessir flokkar muna ekki sín eigin loforð.

V.G. Ekki inn í ESB. Ekki þjóðarinnar að borga þessa óreiðuskuld sem var verið að reyna að láta þjóðina borga þá þegar... Slá skjaldborg utan um heimilin í landinu og fyrirtækin..ÍSLENDINGA..

Samfylkingarflokkurinn lofaði ósköp svipuðu..Ekki þjóðarinnar að borga þessa óreiðuskuld. Slá skjaldborg utan um  heimilin í landinu og fyrirtækin..ÍSLENDINGA.. og allt upp á borðum.. allir vissu um stefnu Samfylkingarinnar í ESB málum.

 Ef að þetta væru þau mál sem stjórnarandstaðan væri að setja út á, þá mundi ég, og margir aðrir skilja þessi læti öll sem fjármálaráðherra vor er að gera...

En hvaða verk eða vinnu er  stjórnarandstaðan að vinna... Reyna að berjast fyrir því að hann Steingrímur og hans Vinstri flokkar STANDI við SÍN eigin kosningarloforð..og ekkert annað.. Og hans Háttvirtur vogar sér að efast um hæfni Stjórnarandstöðunnar.

Þjóðin horfir á að Vinstri flokkarnir eru ekki að gera eitt eða neitt fyrir heimilin, fyrirtækin og fólkið í landinu, annað en að sigla öllu......ja hvert, læt það ekki einu sinni út úr mér.

Þjóðin ætti að þakka stjórnarandstöðunni fyrir þessa miklu og erfiðu baráttu sem hún er reyna að gera með því að gera allt sitt, til að þessi ósköp lendi allavega ekki baráttulaust á herðum okkar Íslendinga.

Stjórnarandstaðan að vinna verk sem ríkistjórnin lofaði Þjóð sinni, og Ríkistjórnin gagnrýnir...Hversu mikil vitleysa er þetta orðið allt saman....

Kveðja.


mbl.is Tókst að ljúka umræðu um fjáraukalög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1 Desember 2009.

Langar mig að byrja á því að óska þjóðinni til hamingju með daginn.

Á mínu heimili ólst ég upp við það að þessi dagur 1 Desember var dagur sigursins. Það var bakað fyrir þennan dag, og góður matur á borðum og fánar í stöng.

Hversu oft við Íslendingar getum fagnað þessum degi í framtíðinni, gæti verið í húfi og sjálfstæði okkar þar með líka, og finnst mér það alveg skelfileg tilhugsun..

.Við þessi duglega og sterka þjóð.

Við Íslendingar höfum gengið í gegnum allskonar vaxtarkippi og vaxtarverki í uppvexti okkar, og erum kannski að ganga í gegnum einn af þeim stærsta og þýðingarmesta núna, vaxtarkipp og lærdóm sem hver þjóð getur gengið í gegnum, og það er þroskinn varðandi peninga, gildi þeirra og tilgang í lífinu, og hversu mikið á þetta orð peningar að ráða líðan okkar og heilsu...

Öll vitum við að þeir eru nauðsynlegir með okkur í lífinu.

Partur af þroska í lífinu er meðal annars sá að vera alltaf af og til reglulega að endurmeta það sem lífið á að snúast um.

Ég ætla að hafa fulla trú á því að við  Íslendingar lærum af þessu allavega það að svona á ekki að koma fram við einn eða neinn eins og er verið að koma fram við okkur í þessu ICESAVE máli. Stöndum á rétti okkar sem sjálfstæð þjóð.

Ég tel stöðu okkar í að vera sjálfstæða þjóð og ráða okkur sjálf vera það mikilvæga, og meira virði fyrir okkur, en innganga í ESB og verða eitthvað lítið ríki.

Sínum þann  þroska sem þarf til að komast í gegnum þennan mikilvæga vaxtarkipp sem þjóðin er að fara í gegnum.

Mér finnst Landið mitt Ísland fallegt og fagurt, tært og hreint og mér þykjir vænt um það, finn þörf til að vernda það og gæta.

Höldum sjálfstæði okkar og fullveldi áfram.

En og aftur Íslendingar, Til hamingju með þennan dag.

Heimsýn verður með fögnuð í tilefni dagsins í salnum í Kópavogi milli 17 til 19 í dag, og veri allir velkomnir sem  þangað vilja koma og fagna með okkur deginum, og kynna sér meðal annars tilgang samtakana. Kveðja.

 


mbl.is Vilja að ESB-umsókn verði dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband