Mögulega, kannski eða...

Tí hamingju allir þeir sem hafa átt undur höggi að sækja vegna þessa máls segi ég. Þetta er búið að vera einn rússíbani hjá Íslensku þjóðinni núna í rúmt eitt og hálft ár.

Rússíbani segi ég vegna þess að landsmenn héldu að ljós væri að koma þegar núverandi Ríkistjórn tók við. Ríkistjórn kom sem kaus að ganga undir nafninu Velferðar-Ríkistjórn. Tími Þessa Velferðar Ríkistjórnar er búin að vera myndi maður halda núna vegna þessa dóma sem að féllu á Miðvikudag.

Búin að vera segi ég vegna þess að Ríkistjórnin er... og var tilbúin að fórna öllum eignum sem og eigum Landsmanna. Þessi Ríkistjórn ákvað að taka Bankastofnanirnar og Tryggarfélög fram yfir velferð heimila Landsmanna sem og fyrirtæki.

Að það skuli engin innan Ríkisstjórnarinnar hafa séð þetta mikla brot sem er búið að fremja á Landsmönnum og gera eitthvað í því er ólíðandi í alla staði. Ef að þessi staða er ekki að segja okkur Íslendingum það að við þurfum að kjósa menn eftir menntun í þessi störf sem að Ríkistjórnin á að vera að vinna fyrir okkur þá veit ég ekki hvað er verið að segja okkur. Það er maður í fjárlaganefnd Ríkistjórnarinnar sem hefur alla hagsmuni að gæta í þessu máli vegna ólöglegra sölu á bankabréfum í einum bankanum sem er nú komin á okkar herðar að greiða í formi skatta, álaga og vasks... hann Árni Þór Sigurðsson.

 Þessi Ríkistjórn var og er tilbúin að fórna sálu Landsmanna til að komast inn í ESB...

Þessi Ríkistjórn á að koma sér frá tafarlaust áður en Landsmenn sleppa reiði sinni vegna þessa yfirgangs og óréttlætis sem er búið að ganga yfir okkur. Fjármálaráðherra lét það út úr sér í viðlali fyrir ekki löngu síðan að heimurinn væri ekki alltaf réttlátur og þess vegna eiga Íslendingar bara að borga Icesave... Forsætisráðherra lét það út úr sér rétt eftir kosningar að fjármál þjóðarinnar kæmi henni ekki við og hún hefði engan áhuga á þeim. Hefur mér alltaf fundist þessi yfirlýsing Forsætisráðherra vera á skjön við starf hennar. Forsætisráðherra Íslendinga á að hafa brennandi og mikin áhuga á öllu er viðkemur Íslandi og velferð Íslendinga á að hafa forgang í einu og öllu. 

Hjá Ríkistjórninni er allt búið að snúast um eitt orð núna PENINGAR...  Ríkistjórn Íslands á að fara frá tafralaust vegna þessa siðblindu sem hún er haldin og hefur þessi siðblinda stoppað allt sem heitir mannleg skynsemi í störfum fyrir okkur landsmenn vegna haturs á fyrrverandi Ráðamenn.

 Þessi dómur segir bara eitt og það er að það var brotið gróft á landsmönnum með Ríkistjórn í forsvari þar. Á sama tíma þá eigum við Íslendingar að þakka Hæstarétt sem stóð með Lansmönnum í þessu mikla broti sem var verið að fremja.


mbl.is Fá mögulega endurgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband