Allt fyrir AGS og ESB...

Maður verður orðlaus....

Er verið að segja okkur það að Forsætisráðherra Íslendinga sem vill í ESB og veit að þangað inn fær hún ekki nema Íslendingar borgi Icesave með öllum þeim tilheyrandi kostnaði sem Bretar og Hollendingar krefjast, þá sé hún Jóhanna Sigurðardóttir tilbúin til að eyðileggja Þjóð sína og Land....

Vissulega varð hrun í heiminum sem teygði anga sína hingað, en það urðu líka nokkur stór stykki af bankaránum framin hérna á Íslandi, og það sem við Íslendingar erum að horfa upp og verða fyrir er að þessu öllu saman er skellt á bak okkar Íslenskra skattgreiðenda til greiðslu af Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir vitandi að við munum aldrei geta borgað þessar birðar sem eru ekki einu sinni okkar...

Hvar eru þeir sem að rændu öllu og rupluðu...

Ef að þessi viðbrögð og framkoma Ríkisstjórnarinnar er vegna þess að annars kemst Jóhanna Sigurðardóttir ekki með Þjóð sína í ESB þá segi ég kippum þessari umsókn tafarlaust til baka, þetta eru ómannúðlegar aðgerðir sem er verið að gera á okkur og mikið óréttlæti sem er verið að beita okkur af eigin Ríkisstjórn sem veit það að ef Þjóðin rís upp í Sjálfstæði sínu þá fær hún ekki í ESB...

Þetta er svívirða og það á ekki að vera hægt að koma svona fram við okkur...

Vanhæf Ríkisstjórn sem ég vil í burtu tafarlaust....


mbl.is „Fólk rekið úr landinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband