Að ryðja brautina fyrir aðra getur verið í margri mynd.

Að ryðja brautina fyrir aðra getur verið í margri mynd segi ég. Ef Ríkið getur gengist í ábyrgð fyrir hlut Björgúlf yngri og fyrirtæki hans í þessu verkefni, þá getur ríkið alveg eins gengið inn sem hluthafi í staðinn í þetta verkefni og Björgúlfur settur út.(Að ganga í ábyrgð er að segja ég get borgað ef eigandinn getur ekki.) svo þess vegna segi ég þetta.

Það á að vera krafa okkar Íslendinga til Verne Holding að þeir finni annan fjárfestir í staðinn fyrir Björgúlf og fyrirtæki hans ef þeir vilja koma að þessu verkefni. Þjóðin á að krefjast þess. Við Íslendingar flestir okkar, erum aldnir upp í sterku réttlætu og siðferði, og þessi leið Ríkistjórnarinnar er hrópandi óréttlæti þar.

Að ryðja nýja braut er alltaf þarfaverk, en hverjir ryðja þá braut á ekki að vera sjálfsagt í svona braut eins og hér er verið að tala um. Það væri gaman að fá lista yfir fyrirtæki og verslanir sem þessi maður á í hér á landi, svo við Íslendingar sjálfir getum ákveðið hvort við viljum styrkja fyrirtæki hans eða ekki.

Það er hægt versla hina ýmsu þjónustu og vöru á hinum ýmsu stöðum. Verum vakandi Íslendingar yfir þessu, þetta hefur nefnilega líka með siðferði okkar og réttlæti að gera hvernig verður tekið á þessu. Að þessi leið skuli verða valin af ríkistjórninni sem hún er að fara, er alveg óskiljanleg nema hún persónulega hafi einhverra hagsmuni að gæta í þessu máli... Höldum vöku okkar.  Kveðja.


mbl.is Samningur við Verne ryður braut annarra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr, heyr. Burt með Börgólf úr íslensku atvinnulífi. Við erum að fara borga stærstu skulbindingu sem þjóðin hefur farið í vegn hlutafélsgs í eigu Björgólfs. Í mínum huga er  það bara nóg. Þeir sem sitja á þingi í dag hafa ekki mitt umboð í fleiri samninga vegna, við eða fyrir Björgólf Thor. Gs.

Guðlaugur (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband