Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Er verið að koma aftan að okkur...

Það er nefnilega það. Það hefur verið þannig í öllu þessu ferli hjá Jóhönnu og Steingrími að við Íslenskir skattborgarar skulum bara borga þetta hvort sem okkur líkar betur eða ver... Þegar Steingrímur er að segja að við öll berum ábyrgð á þessu þá er það ekki rétt hjá honum enn það sem hann á kannski við er að hann perónulega sjálfur skrifaði undir greiðslu á þessu reikning án þess að hafa samþykki til, og hvað það þýðir fyrir hann...

Það verður að stoppa þessa vitleysu strax. Við vitum að við munum ekki ráða við þetta, þau vita það líka en er alveg sama... Bretar og Hollendingar vita það líka, en hjá þeim þá hafa þeir veðsetningar í öllu landinu okkar ef við getum ekki borgað og það munu þeir nýta sér um leið og þeir geta...

Hvaða samning það er verið að tala um finnst mér að við eigum að fá að vita og hvernig drög hans hljóma. Jóhanna og Steingrímur hafa ekki umboð fyrir þessum samningi sem að þjóðin var að fella með afgerandi niðurstöðu síðustu helgi, og þar sem að annað lánafyrirkomulag hefur ekki verið samþykkt þá kemur eiginlega ekkert annað til greina en að um fyrri samning sem þjóðin var að fella sé að ræða...

Það sem að liggur fyrir hjá Jóhönnu að gera á Alþingi núna og mun hafa forgang er að koma í gegn sem allra fyrst öllum þeim lagabreitingum sem á eftir að gera til að sníða Ísland að hætti ESB og kom það fram í viðtali við hana. Það var ekki að setja björgun heimilana, fyrirtækja eða að taka á atvinnuleysinu sem þjóðin er að glíma við í forgang. Nei klára að fá lagabreitingarnar í gegn svo þjóðin hennti ESB. aðild. Steingrímur og Jóhanna þið hafið ekki leyfi til að gera þetta... Þjóðin sagði álit sitt á vinnubrögðum ykkar í þessu Icesave máli... Hvað vakir fyrir ykkur núna... er það að keyra annað eins Icesave í gegnum Alþingi og búið er að gera í þessu Icesave máli og á meðan vinnið þið tíma á bak við tjöldin með þetta pukur ykkar fyrir ESB... Vanhæf til verka öll sömul segi ég og krefst ég þess að þið víkjið úr stólum ykkar tafarlaust. Það verði stoppað allt sem heitir umræður með þetta Icesave á meðan við þjóðin fáum fólk sem vill vinna vinnuna sína vinnunnar vegna fyrir okkur. Höldum vöku okkar. Icesave er ekki okkar að greiða frá upphafi. Ég vil kosningar sem allra fyrst núna. Það er ekki hægt að setja þessar byrðar á herðar okkur og knésetja vegna þess bara... Kveðja


mbl.is Samstarf orðið aukaatriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hvern á að fara í viðræður...

Þetta er alveg ótrúlegt allt saman, á sama tíma er ekki nema þriðjungur þjóðarinnar hlyntur aðild... Hvað er að stjórna þessu aðildarferli fer maður að hugsa núna....

Það er ljóst að meiri hluti þjóðarinnar vill ekki í þessar aðildarviðræður svo ekki er það að ráða för...

Það eru líka að heyrast gígantískar tölur varðandi kostnað á þessu ferli 3 milljarða er nefnt hér á bloggi, á sama tíma og það er ekki til peningur til að hjálpa HEIMILUNUM í landinu eða FYRIRTÆKJUNUM, sem eru ekki fjármálafyrirtæki segi ég því þeim virðist vera hjálpað út í eitt. Það þarf að taka alveg nýja stefnu núna það er ljóst og hún er ekki ESB það er ljóst líka. Við þurfum að rífa okkur upp segja hingað og ekki lengra.... Það er ekki hægt að það verði reynd kúgunaraðferðin í þessu máli eins og sú sem er búin að viðgangast í meðferð með þetta Icesave mál. 

Að segja að það sé engin samgangur á milli Icesave er ekki rétt. Það er ósjaldan búið að nefna það  í eyru okkar að ef við borgum ekki Icesave þá muni það hafa áhrif á umsókn Íslendinga í ESB.... Hvað þýðir það eiginlega, það þýðir að það er samgangur... 

Krefjumst þess að þessi umsókn verði dregin til baka tafarlaust, tafarlaust vegna þess að við meiri hluti Íslendinga sem er andvígur þessari aðild erum MEIRI hluti. Það á annars að fara fram Þjóðaratkvæðagreiðsla tafarlaust vegna þessa lélega fylgis sem er með þessari umsókn áður en meiri peningum er kastað í þetta ferli... Verum Sjálfstæð þjóð með fullveldi. Við vitum hvað í okkur býr eins og við vitum munin á réttlæti og ranglæti, við erum hörku dugleg í okkur og engin á að vita betur hvað okkur er fyrir bestu nema við sjálf...

Ekkert ESB segi ég.   Kveðja.


mbl.is Icesave ótengt inngöngu í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vil að þessi...

Ég vil að þessi Ríkistjórn axli ábyrgð á gjörðum sínum sem og orðum. Hún er búinn að vera með þennan samning í rúmt ár, og allt komið á byrjunarreit aftur...

Þessi Ríkistjórn setti pólitíkst líf sitt að veði fyrir þennan samning sem að þjóðin var að fella með meirihluta mun...

Það hefur engin nema Ríkistjórnin haldið því fram að þetta hverfi bara, og að halda því fram að þjóðin haldi slíkt er ekki rétt og sínir fádæma heimsku að láta frá sér svona ummæli, það mætti halda að þau haldi að við höfum ekkert á milli eyrnanna. Standið við orð ykkar öll og víkjið tafarlaust frá. Hafið vit á því að vita hvenær komið er nóg og tími til að fara. Þjóðin er að mótmæla ykkur og hvað ætlið þið að gera í því... þjóðin vil að þið standið við orðin ykkar og víkjið og hvað ætlið þið að gera í því... Að gera ekki neitt er ekki að gefa góða ímynd út á við. Sannar bara fáfræði og eigin heimsku að halda að það sé bæði hægt að gefa loforð og svíkja svo jafnóðum og það er snúið sér á hina hliðina því sú hlið lítur betri út. Hver er trúverðugleiki Ríkistjórnarinnar úti í Bretlandi og Hollandi núna þar sem Jóhanna Steingrímur Össur eða hver er, eru búinn að gefa hvert loforðið á fætur öðru um greiðslu á þessum Icesave, og að þetta sé alveg að koma....en kom svo aldrei heldur eitt stórt NEI frá þjóðinni sem finnst hún ekki eiga að borga þennan Icesave reikning... Höldum vöku okkar áfram það er full þörf á.  Kveðja.


mbl.is Kosningarnar ljúka ekki málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða samning er hann að tala um..

Ég vil fá að vita hvaða samning hann Steingrímur er að tala um. Það er engin samningur í gildi, samningurinn sem var fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna er ekki lengur í gildi... Hann er fallin á tíma. Svo hvaða samning er verið að ganga útfrá spyr ég...

Þarf ekki að búa til annan samning svo hægt sé að tala um samning... 

Fór sú vinna fram á Alþingi og fór svo gjörsamlega framhjá mér... eða er verið að leika sóló eina ferðina enn...


mbl.is Minnti á pólitíska ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er það komið til skila..

Mikið var það nú gott segi ég að einhver áttaði sig á því hversu lítið spenntir við Íslendingar erum fyrir þessari inngöngu í ESB.

Þriðjungur þjóðarinnar segir í fréttinni að styðji aðild svo tveir þriðju eru á móti, þá má velta því fyrir sér hvort það sé ekki betra að stoppa þessa umsókn strax og spara alveg helling af pening, helling segi ég því það hafa komið þær fréttir að það muni kosta á annan milljarð króna þetta ferli. Afhverju má ekki spara þá peninga úr því að það er vitað fyrirfram að þetta verði fellt..  Áfram Ísland segi ég og ekkert ESB. Höldum vöku okkar.. Kveðja.


mbl.is Áhyggjur af áhugaleysi Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra sagði síðast í gær...

Forsætisráðherra okkar hún Jóhanna Sigurðardóttir sagði síðast í gær í Silfur Egill að það væri ENGIN tenging á milli Icesave og Alþjóðagjaldeyrissjóðins, sagði reyndar að mig minnir að hún þyldi það ekki þegar fólk væri að halda þessu fram að það væri samband þarna á milli...

Svo koma svona fréttir daginn eftir, reyndar samskonar fréttir í gær frá Svíþjóð.

Þessi samningur sem er búið að vera að semja um er EKKI Í GILDI ef þau eru ekki að átta sig á því, það mætti halda það eftir fréttum að dæma í dag, það liggur við að það sé látið bara eins og það hafi bara ekkert gerst...

Það gerðist nefnilega mjög mikið ... samningur sem er búið að vera rifrildi um í rúmt ár er fallinn, og ekki lengur gildur, svo eftir hvaða samning er verið að fara í dag, veit einhver um það... Eru veðsetningar í landi okkar og þjóð í þeim samning sem og auðlindum... 

Þarf ekki að ákveða hvað á að vera næsta skref í þessu máli í gegnum Alþingi...

Fyrir mér þá er ég hrædd um að það er annar skrípaleikur farin af stað... bara það, að kvöldi kosningadags komu Jóhanna og Steingrímur fram og sögðu nýr samningur liggur fyrir... daginn eftir þá segir Steingrímur það að við skulum athuga það að það er engin samningur sem liggur á borðinu, í dag þá er að koma  meir og meir í ljós hversu langt er í samkomulag. Ekki fundur fyrr en í vikulok segir Steingrímur núna...Eins og ég segi þá fæ ég það á tilfinninguna að það sé verið að hafa okkur að fíflum af ríkistjórn okkar. Af hverju má ekki fara réttu leiðina í þessu langar mig að vita... Það eru ansi margir búnir að stíga fram í þessari Ríkistjórn og segja við okkur fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, ef þjóðin fellir þennan samning þá fer Ríkistjórnin frá. Svo allt tal um að kosningin hafi ekki verið að segja nei við þessum vinnubrögðum í leiðinni og við höfnuðum því að taka ábyrgð á þessum reikningi Icesave er bara ekki rétt, og þetta er staða sem að ríkistjórnin er búinn að koma sér sjálf í með orðum sínum.

Það er nefnilega akkúrat það sem við vorum að gera í þessari kosningu, að fella þennan samning út af borðinu. Ríkistjórnin á að taka ábyrgð á þessu klúðri sínu. Klúðri sem hún er búin að valda með þessum vinnubrögðum sínum á þessu Icesave máli eins og komið er í ljós núna rúmlega ári seinna og allt komið á byrjunarreit aftur, mér er alveg sama þó að hún hafi fengið þetta mál í arf, það var hennar að vinna að þessu máli fyrir okkar hönd, með okkar velferð í huga, og það hefur Ríkistjórnin ekki verið að gera.. Það er ekki að ræða það fyrir mér að þau komi nálægt þessu máli að nýju núna, og tala ekki um eftir þessa afgerandi höfnun þjóðarinnar á þessu samningi. Ég krefst þess að það taki Þjóðstjórn við tafarlaust, og Ríkistjórnarkosningar undirbúnar í kjölfarið, það má reyna að gera ráð fyrir að þær gætu orðið sem fyrst á eftir Borgarstjórnarkosningunum. Að heyra allt tal um að við höfum ekki efni á að lenda stjórnarskiptum núna, viðkvæmir tímar, eitt er á hreinu fyrir mér og það er að við Íslendingar höfum ekki heldur efni á þessari stefnu sem að Ríkistjórnin er að fara í þessu máli, það skulum við átta okkur á, svo þá er betra að gera breytinguna strax. Mér nægði að hugsa um þessar spurningar... Verður þjóðin sátt við að þurfa að borga bara vegna þess að lífið er ekki alltaf réttlátt... Sátt við að tapa eignum sínum... Sátt við að verða sett í ánauð næstu áratugi... Nei það er ég hrædd um ekki. Ég er annsi hrædd um að þjóðin verði ekki sátt nema að þetta Icesave fari í gegnum Dómstóla... Verum vakandi þetta er framtíðin okkar. Við flest okkar stofnuðum ekki þessa Icesave skuld. Svo mikið vitum við.  Kveðja.

 


mbl.is Sænsk lán háð Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá byrjar ballið aftur..

Jæja þá byrjar ballið aftur... Hótanir yfir því að þetta gæti komið fyrir okkur eða þetta gæti skeð ef við ekki...

Stjórnarkreppa segir hann að gæti komið, ég bara spyr hvað er annað en stjórnarkreppa núna ? það vantaði ekki yfirlýsingarnar strax eftir að kjörstöðum lokaði 6 mars 2010. Yfirlýsingar frá Jóhönnu og Steingrími um að það væri komin nánast nýr samningur... Jóhanna sagði reyndar að það væri komin nýr samningur, í Kastljósi í gær sagði Steingrímur að við skyldum athuga það að nýr samningur lægi ekki fyrir. Það er ekkert að marka eitt eða neitt frá þeim. Það sem ég er aftur á móti farin að velta fyrir mér er hvort þessi pressa sem er á þeim núna að klára bara málið eins og þau segja hafi eitthvað með aðildarumsóknarferli Íslendinga inn í ESB. sem á að taka fyrir núna í mars að mig minnir, leiðrétti mig einhver ef ég er að fara með rangt þar, en mig minnir að það eigi að gerast núna í mars. Jóhanna sagði síðast í gær að það væri ekkert samband á milli AGS og Icesave. Við lesum það í fréttum í gær að Finnar ætli ekki að lána Íslendingum fyrr en það sé frágengið Icesave.... Hvað er þetta annað en samtengt hérna...   

Þessi Ríkistjórn á víkja tafarlaust hún nýtur ekki traust hjá okkur fólkinu í vinnubrögðum, eins og sýndi sig í þessari mikilvægu þjóðaratkvæðagreiðslu sem var um Icesave þar sem þjóðin er að hafna þessum vinnubrögðum sem ríkistjórnin vil fara. Ekkert ESB segi ég, og ekkert Icesave í þeim búningi eins og Ríkistjórnin vil okkur. Verum vakandi áfram, það er ljóst að við þurfum þess núna.  Kveðja.


mbl.is Björn Valur: Gæti leitt til stjórnarkreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkistjórnin á að víkja tafarlaust...

Hverslags bull og vitleysa er þetta segi ég. Ef að það eru búnar að vera svona jákvæðar og góðar samningsviðræður í 3 vikur eins og gefið er í skyn hér í þessari frétt, af hverju lét Ríkistjórnin þá þessa þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram spyr ég...

Af hverju felldi hún þá ekki sjálf samningin úr gildi sem að þjóðin var að fella með afgerandi hætti spyr ég líka...

Eða er þetta ein lygin í viðbót til að kaupa sér lengri tíma...

Það að samningarnir voru felldir og Bretar og Hollendingar búnir að fella fyrri samningin táknar að það er engin samningur til að semja um...

Það táknar að núna á fara þá leið sem er rétt. Það er ljóst líka að við Íslenskir skattgreiðendur erum ekki þeir sem að stofnuð þessa Icesave skuld alveg sama hvað Fjármálaráðherra heldur fram, svo það þarf að fá úr því skorið hver á að vera ábyrgur fyrir því að greiða þennan Icesave reikning úr því að það tókst ekki að rassskella okkur til greiðslu á honum. Eins og ég segi rétt á að vera rétt og úr því verður að fá skorið í þessu máli. Ríkistjórnin er rúin trausti í störfum sínum og algjörlega vanhæf í starfi með þetta mál eins og önnur sem að hún hefur átt að vera að sinna en ekki mátt vera að vegna þess hversu upptekin hún er búin að vera í því að keyra Landið inn í ESB umgjörð á sama tíma og hún hefur verið að reyna að troða þessu Icesave á herðar okkar til greiðslu. Skammist ykkar Ríkistjórn þið eruð búinn að vera uppvís að ansi mörgum lygum til okkar og komast upp með ýmislegt til þessa í vinnubrögðum, allt frá að lesa ekki gögn og skjöl, og hvað þá reikninga áður en skrifað er undir fyrir greiðslu, í að mæta drukkinn í Alþingissal á mikilvægri stundu í vinnu. Það er komið nóg af þessum bulli segi ég og krefst ég þess að þið víkjið tafarlaust úr sætum ykkar nú þegar. Þið hafið ekki mitt umboð fyrir áframhaldandi samningsviðræðum í þessu Icesave klúðri sem er ykkar klúður eins og það er orðið í dag, ykkar klúður. Vanhæf Ríkistjórn sem á að víkja tafarlaust.  Kveðja.


mbl.is Ríkisstjórnin hefur fulla trú á viðunandi niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilaboðin sem að þjóðin er að gefa..

Skilaboðin sem við þjóðin erum að gefa með þessari kosningu er númer eitt finnst mér að við gefum enga ríkisábyrgð fyrir greiðslu á svona reikning eins og Icesave. Þetta fólk sem átti þessa Einkabanka ásamt þeim sem stjórnuðu þeim eru þeir sem eiga að bera ábyrgðina á þessum reikning, það voru þau sem að ollu þessu ekki við Íslenskir skattgreiðendur hvað sem að Fjármálaráðherra segir eins og hann gaf í skyn í sjónvarpsviðtalinu núna kl. 22.

Í upphafi skal endir skoða stendur skrifað í fræðiritum, og í upphafi á þessu máli var sú ákvörðun tekin að við Íslenskir skattgreiðendur værum gerð ábyrg fyrir greiðslu á þessum Icesave reikning en ekki þeir sem að bjuggu hann til......

Ríkistjórnin þarf að standa við orð sín núna það er ljóst, og Þau voru að hún færi frá ef að þjóðin myndi ekki samþykkja þennan samning sem að hún var að fella. Að Ríkistjórnin skuli ekki sjálf hafa fellt þennan samning þegar ljóst þótti að þjóðin myndi gera það er erfitt að skilja, og koma svo og kvarta yfir því að kosningin sé nú hálf marklítil og ótæk sem slík er sorgleg réttlæting á vandræðalegri stöðu sem er komin upp vegna fyrri orða hennar. Forsætisráðherra sem og Fjármálaráðherra segja núna að ÞAÐ SÉ KOMIN NÝR SAMNINGUR...

Þessi samningur sem að þjóðin er að fella er í leiðinni að opna alveg nýja stöðu fyrir okkur það skulum við átta okkur á, og eins að við höfum allan þann tíma sem að við þurfum til að leysa þetta Icesave mál, það fer ekki frá okkur svo mikið vitum við ætla ég að vona. Ég ætla að leyfa mér að óska okkur Íslendingum til hamingju með þessa glæsilegu Þjóðaratkvæðakosningu sem var að ljúka.  Kveðja.


mbl.is Nær allir segja nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sláum met í mætingu...

Forsetinn sínir okkur Íslendingum virðingu og fær hann heiður í hatt sinn frá mér fyrir það. Hversu gott væri það fyrir okkur ef við Íslendingar gætum sett met í mætingu á þessa mikilvægu Þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á morgun, þar sem að við fáum að segja vilja okkar með hvort við viljum eða viljum ekki gefa Fjármálaráðherra okkar Ríkisábyrgð fyrir greiðslu á þessum Icesave reikningi sem er eign annara en okkar Íslenskra skattgreiðenda.

Notum þennan mikilvæga rétt okkar. Hann mun hafa mikið að segja um framtíð okkar og Lýðræði .

Látum ekki beita okkur svona kúgunum eins og er verið að gera í þessu máli hérna og segjum nei. Þessi van-virðing sem að Ríkistjórnin sínir okkur þjóð sinni með að ætla ekki að mæta á kjörstað segir það sem segja þarf um hug hennar til þjóðar sinnar.  Kveðja. 


mbl.is Ólafur Ragnar ætlar að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband