Færsluflokkur: Bloggar
22.9.2010 | 11:56
Er það þörfin sem á að ráða...
Það sem ég hef aldrei skilið almennilega er að það skuli vera settir kvótar á framleiðslur...
Ég hefði haldið að þörfin ætti að ráða þar en ekki kvótar...
Það er matarhungur í heiminum og af hverju í ósköpunum er þá ekki framleitt meira og haft ódýrara svo það sé hægt að mæta þessari matarþörf sem fólkið þarf allstaðar í heiminum...
Hverjir það eru sem að stjórna þessum kvótum á heimsvísu langar mig að fá að vita ef einhver veit, sem og af hverju HEIMINUM ÖLLUM sé stjórnað þannig að það sé LÁTIN vera viðvarandi fátækt og hungur viðloðandi...
Er þetta kannski gert til þess að fáir einstaklingar geti svalað DROTTNUNARÞÖRF sinni eða hvað...
Við skulum átta okkur á því að nóg gæti verið til fyrir alla í HEIMINUM að borða ef að vilji væri fyrir hendi að svo sé...
Varðandi okkur Íslendinga þá segi ég að núna sé tækifærið að koma sem við eigum að grípa og það er tækifærið sem þessi hreinleiki í umhverfisgæðum okkar lofti, grasi sem og vatni gefur okkur og sem gerir það að verkum að allt kjöt sem framleitt er af skepnu sem fengið hefur að alast upp undir berum himni í hreinu lofti með grænt vænt gras að bíta verður vinsælt í komandi framtíð...
það kom fram í þætti sem ég sá að í Bandaríkjunum til dæmis þá er almenningur farin að spá í það hvernig kjötið ólst upp sem það er að fara borða...
Þar á bæ vilja menn stefna á að í framtíðinni verði allt Lambakjöt sem alið er upp undir berum himni með ferskt grænt gras að aðal fæðu, það sem koma skal...
![]() |
Lambakjöt mun hækka í verði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2010 | 15:24
Ljótt mál...
Hún Margrét bendir á þennan eina stóra mikla punkt sem að allt þetta snýst um Icesave...
Það er þessi innlánssöfnun sem varð á þessa Icesave reikninga sem að hefði aldrei orðið svona mikil í vexti sínum ef að fyrr hefði verið gripið í taumana... Hvað þá vorið 2006....
Menn eiga að bera ábyrgð það á ekki að vera spurning, heldur er það hvers konar ábyrgð menn eiga að sæta vegna þessa....
Ég pesónulega segi að þeir sem að misstu vinnu sína vegna þessa á sínum tíma hafa vissulega tekið sína ábyrgð út og má deila um hvað hverjum og einum finnst þar, en það eru hinir sem að ennþá er að og einnig þeir sem að tæmdu allar fjárhirslur í fyrirtækjum sínum og skildu eftir sviðna jörð sem eiga eftir að fá sína refsingu...
Þetta mikla mál á að setja í hendur okkar Þjóðarinnar. Alþingi er ekki að ráða við þetta mikla spillingarmál vegna þess að þessi spilling er þar innandyra í Ríkisstjórninni og á meðan svo verður þá fær það sem að heitir réttlæti okkur til aldrei fram að ganga segi ég...
Stöndum vörð Íslendingar það er okkar velferð og okkar hagur sem á að skipta máli....
![]() |
Ógeðsleg framganga Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2010 | 14:44
Hvað segir Þjóðin...
Við skulum átta okkur á því að það erum við Þjóðin, Íslenskir skattgreiðendur sem að urðum fyrir þeim skaða sem að þetta MIKLA ÁBYRGÐARLEYSI OLLI AF VÖLDUM RÁÐHERRA OG ÞEIRRA MANNA...
Svo mér þætti næsta skref vera það eðlilegasta í stöðunni að kasta þessari miklu og stóru spurningu TIL OKKAR þJÓÐARINNAR...
Hvort það er það sem að við Þjóðin viljum... Að menn verði látnir sæta ábyrgð á gjörðum sínum, sem að í þessu tilfelli var að gera EKKI NEITT og fór sem fór þess vegna þegar í enda var komið...
Það á að setja þetta mikla mál í hendur okkar Þjóðarinnar vegna þess að Alþingi er ekki að geta annast það og hvað þá Ríkisstjórnin...
Ríkisstjórnin á víkja tafarlaust vegna þess að það eru einstaklingar þar innan um sem að voru líka fyrir þegar að þetta allt saman var að ske....
![]() |
Líkur á að stjórnin springi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2010 | 10:34
Ljót aðför Ríkisstjórnar...
Ég fer ekki ofan af því að Ríkisstjórn Íslendinga sem á að hugsa um velferð og hag Þjóðar sinnar hafi brugðist í einu og öllu gagnvart uppbyggingu í þessum bæ sem og öðrum...
Reykjanesbær er sá bær sem að verst hefur orðið úti í aðför Ríkisstjórnarinnar segi ég vegna þess að Reykjanesbær hefur alltaf verið duglegur og sjálfbær bær vegna dugnaðar og Sjálfstæði heimamanna...
Þegar litið er yfir farin veg og skoðuð eru samskipti Ríkisstjórnarinnar við Reykjanesbæ þá er ekki hægt annað en að fyllast skelfingu yfir þessari aðför sem Ríkisstjórnin er búin að gera þessum bæ. Hún er búin að blása hvert atvinnutækifærið á fætur öðru út að kortinu sem að þessi bær var með í býgerð og hvað gerist þegar að undirstöður fara...
Jú annað hvort rísa menn í lappirnar og mótmæla þessari aðför sem gerð var og er að gerast, eða sætta sig við það að ásettningur Ríkisstjórnarinnar sé að búa til fullt af ósjálfbjarga einstaklingum sem á spena hennar þurfa að halda...
Óskandi er fyrir Reykjanesbæ að þeir allir sem einn mótmæli þessari aðför Ríkisstjórnarinnar sem er búin að setja Reykjanesbæ í þessa erfiðu stöðu og engin annar...
![]() |
Óskað eftir tillögum um niðurskurð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2010 | 10:11
Svei og skömm...
Þegar maður lítur yfir farin veg hjá þessari nýju gömlu borgarstjórn og skoðar kosningarloforðin hjá þessum BESTAflokki þá langar manni að gráta yfir því að við virðumst ekki eiga neina aðra að sem vilja sjá um okkar hag en asna og fífl...
Gráta yfir þessum fífla og asnaskap sem er að eiga sér stað og gráta yfir því að við öll hin höfum látið fara með okkur eins og ASNA og fífl eingöngu fyrir fögur svikin loforð, og er allt og já allt sett í sölurnar bara til þess að fá góð laun...
Það er eins gott að þessi góðu laun séu þess virði hjá þessum einstaklingum og endist vel og lengi segi ég, vegna þess að það hlítur að fara að sjóða uppúr hjá okkur almenningi hvort sem það er hjá okkur Reykvíkingum eða Landsbyggðinni allri yfir þessari ÓSTJÓRN sem er í gangi....
Það er ekkert spáð í það hvort heimilin eigi ofan í sig og á....
Nei það er og var ekki málið eins og kom bersýnilega í ljós í gær þegar að einn af þeim sem var að fá launahækkun á sama tíma og hann var að sækja um hækkun á framfærslu til landsmanna sætti sig við nei til almennings vegna þess að hann er komin með sína hækkun eða leiðréttingu...
![]() |
Fimm milljónir í vasa varaborgarfulltrúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2010 | 00:58
Ríkisstjórnin rúin trausti...
Ég segi að Ríkisstjórnin sé endanlega búin að missa allt sitt traust...
Það er að verða komið vel á annað ár frá því að hún tók til starfa og hvernig er staðan í dag...
Vægast sagt skelfileg fyrir okkur Íslendinga segi ég vegna þess að það er að koma í ljós það sem að maður óttaðist mest og það er HVERNIG núverandi Ríkisstjórn er ekki síður minna flækt í þessa fjármálaóreiðu sem er búin að vera í gangi frekar en fyrrverandi Ráðherrar...
Skelfileg líka vegna þess að það er ekkert búið að ávinnast í uppgangi á atvinnulífinu sem kemur hagkerfinu í gang, ekkert búið að gera til að bjarga heimilunum og fyrirtækjum eins og lofað var...Ekki verið að tryggja að óreiðuskuldin Icesave verði ekki okkar að greiða eins og lofað var...
Svo skelfileg varð staða þessara Ríkisstjórnar um leið og hún ákvað að fórna okkur Íslendingum fyrir fjármálageiran segi ég og setti okkur í þessa erfiðu fjárhagsstöðu sem við erum í núna. Við skulum athuga það að Ríkisstjórn Jóhönnu tekst að setja Íslendinga í ævarandi skuldarfangelsi ef nær að ganga...
Nei þá er betra að við hin rísum upp og snúum þessari þróun við.
Við skulum athuga það að allt fjármálakerfið er meira og minna sýkt af ólöglegum gjörningum sem er búið að gera það að allt er farið uppfyrir sem heitir í lagi og skynsamlegt okkur til, það er allt búið að snúast um að bankarnir geti gengið og rúllað...
Til að Bankarnir geti rúllað þá þarf vinnandi fólkið til og peninga þess....
Með hliðsjón á því þá eigum við að snúa þessu við okkur í hag...
Ég vona að fréttir morgundagsins verði þær að Ríkisstjórnin sé fallin........
![]() |
Umskipti hjá Samfylkingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2010 | 18:20
Svikarar eða gungur...
Sorglegt finnst mér að lesa þessi orð hennar Jóhönnu að yfirgnæfandi líkur séu á að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi Utanríkisráðherra Íslendinga verði sýknuð....
Það er sorglegt að Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra skuli ekki gera sér grein fyrir því að verri stöðu er hún og hennar Ríkisstjórn í vegna framferði þeirra í Icesave gagnvart okkur Þjóð sinni...
Að við tölum ekki um ESB aðildarviðræður sem áttu bara að vera viðræður en voru aldrei viðræður einfaldlega vegna þess að ESB er ekki lengur með viðræður við þjóðir heldur fara þær Þjóðir sem þangað langar inn beint í aðildarferli...
Það að við Íslendingar skulum vera með svona mikla svikara við stjórnvöld er ekki hægt að láta viðgangast lengur...
Svikarar segi ég vegna þess að GUNGUR eru þau ekki, svikari lýgur til þess að ná sínu fram. Gunga er sá eða sú sem þorir ekki....
Svei og skömm segi ég til þessara Ríkisstjórnar og segi ég henni upp hér með frá þessum degi. Skömm og svei í veganesti sitt fær hún með sér frá mér...
![]() |
Gagnrýnir málsmeðferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.9.2010 | 12:21
AGS á leiðinni...
Er ekki í lagi með Fjármálaráðherra Íslendinga...
Forsetinn segir eitt og Fjármálaráðherra annað...
AGS er á leiðinni að klára sína 3. endurskoðun og var AGS ekki búin að setja skilyrði fyrir því að það yrði að vera búið að ganga frá Icesave svo sú endurskoðun geti gengið...
Íslendingar standa frammi fyrir því að Ríkisstjórnin segir að hún hafi ekki efni á því að búa okkur svo um hag að við Íslendingar eigum ofan í okkur og á. Það er búið að hækka allt sem hægt er í sköttum gjöldum á okkur svo ekki er hægt að fara meir ofan í okkar vasa. Það er verið að rétta þessum útrásavíkingum sem léku okkur svona grátt flest allar eigur okkar í boði Fjármálaráðherra Íslendinga svo ekki er af miklu að taka upp í þessa Icesave óreiðuskuld sem er ekki einu sinni okkar að greiða heldur þessa útrásavíkinga sem áttu þessa einkabanka...
Ég er komin með nóg af þessu bulli frá þessum aðilum sem eiga að vera að hugsa um okkar hag og velferð. Þetta er ekki að hugsa um hag okkar og velferð að setja okkur og okkar afkomendur í ánauð eingöngu til að geta gengið í augun á einhverjum erlendum aðilum...
Það að Fjármálaráðherra Íslendinga skuli ekki geta staðið með yfir 90% vilja þjóðarinnar sem segir "ekki okkar að borga þessa óreiðuskuld" er óskiljanlegt með öllu og gerir hann óstarfhæfan sem Fjármálaráðherra vegna þess að honum ber að hlusta og fara eftir vilja okkar Íslendinga vegna þess að það erum við sem borgum honum launin sín ......
Hvar eru fréttamenn með spurningar til Ríkisstjórnarinnar er lúta að þessum fögru kosningarloforðum sem reyndust svo innantóm orð sem eingöngu voru notuð til að komast til valda...
Fjármálaráðherra getur greinilega gasprað og gasprað á okkar kostnað eftir hans hentugleika, en það væri betra að hann gerði sér grein fyrir því að Ráðherraábyrgð hefur hann gagnvart Íslensku Þjóðinni og orð hans hafa ábyrgð fyrir hann þar...
![]() |
Steingrímur: Íslendingar munu borga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.9.2010 | 15:29
Allt upp á borðið...
Allt upp á borðið segi ég....
Ef að Alþingi á að geta skilað sinni vinnu vel og vandlega þá þarf öll gögn fram.
Til þess að heildarmynd geti verið á sýn þá verður allt að vera uppi. Að Ríkisstjórnin ætlist til þess að endanleg ákvörðun sé tekin út frá brot af gögnum á ekki að vera hægt...
Alþingi vinnur fyrir okkur og Ríkisstjórnin fyrir Alþingi.... Alþingi vinnur ekki fyrir Ríkisstjórnina...
![]() |
Trúnaði aflétt að hluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2010 | 15:16
Vönduð vinnubrögð viljum við...
Það er ætlast til þess að Alþingi vinni vinnuna sína vel og vandlega og Alþingi virðist gera sér grein fyrir því að til þess að svo sé hægt þá verður Alþingi eðlilega að hafa ÖLL gögn og upplýsingar um málefnið hefði maður haldið...
Var ekki sett út á þessi vinnubrögð...
Þettta er ekkert smá mál sem um er að ræða hérna, svo hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að Alþingi skili vönduðum og vel unnum vinnubrögðum ef Alþingi er ekki einu sinni að fá öll gögn...
Það er eitt sem að ég myndi vilja að sett yrði í lög með vinnureglur Alþingis og það er að áður en 1 umræðu er lokið og henni komið í 2. umræðu þá á að líða sólarhringur. Strax að morgni næsta dags og allir eru en sama sinnis um að fyrstu umræðu sé lokið þá er hún afgreidd til 2. umræðu, eins á að vera á milli 2. og 3. umræðu... Vitiborin manneskja veit að tíminn vinnur með henni og að góður nætursvefn skilar sínu, fljótfærni skilar sér aldrei vel...
Það eru mikilvægar ákvarðanir teknar á Alþingi er varða framtíð okkar Íslendinga, svo vönduð vinnubrögð viljum við væntanlega hafa....
Þögn og leynd sú er allir þessir Ráðherrar virðast hafa verið sammála um að hafa í hávegum á þessum tíma gagnvart okkur almenningi um hina raunverulegu stöðu sem var, gerði það að allt varð miklu, miklu, miklu verra en það hefði þurft að verða...
Það að Ráðamenn þorðu ekki að segja okkur frá þessari stöðu sem upp var komin er mjög alvaralegt mál, og það segir mér bara eitt að ALLIR VISSU UPP Á SIG SKÖMMINA....
Fyrir mér þá er ekki að ræða að Íslendingar verði gerðir að blórabögglum fyrir þessa menn og er mér alveg sama í hvaða flokki þessar manneskjur voru og eru, það sem við Íslendingar þurfum að hugsa núna er "hvernig getum við tryggt að svona verði ekki svo glatt farið með fé okkur aftur....
Fangelsi er það sem að menn óttast mest....
Þetta er mjög alvaralegt sem að gerðist með þessari þögn þeirra, og það á ekki að vera möguleiki á að Ráðamenn heilla þjóðar geti komist upp með það að segja að þetta hefði hvort sem er allt fallið svo tíma-setningin sem slík skiptir ekki höfuð málinu....
Það hefði ekki þurft að fara svona ílla, það eru allir sammála um....
![]() |
Umræðu frestað til mánudags |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
2015
2013
2012
2011
2010
2009
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar