Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Svikarar eða gungur...

Sorglegt finnst mér að lesa þessi orð hennar Jóhönnu að yfirgnæfandi líkur séu á að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi Utanríkisráðherra Íslendinga verði sýknuð....

Það er sorglegt að Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra skuli ekki gera sér grein fyrir því að verri stöðu er hún og hennar Ríkisstjórn í vegna framferði þeirra í Icesave gagnvart okkur Þjóð sinni...

Að við tölum ekki um ESB aðildarviðræður sem áttu bara að vera viðræður en voru aldrei viðræður einfaldlega vegna þess að ESB er ekki lengur með viðræður við þjóðir heldur fara þær Þjóðir sem þangað langar inn beint í  aðildarferli...

Það að við Íslendingar skulum vera með svona mikla svikara við stjórnvöld er ekki hægt að láta viðgangast lengur...

Svikarar segi ég vegna þess að GUNGUR eru þau ekki, svikari lýgur til þess að ná sínu fram. Gunga er sá eða sú sem þorir ekki.... 

Svei og skömm segi ég til þessara Ríkisstjórnar og segi ég henni upp hér með frá þessum degi. Skömm og svei í veganesti sitt fær hún með sér frá mér...


mbl.is Gagnrýnir málsmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AGS á leiðinni...

Er ekki í lagi með Fjármálaráðherra Íslendinga...

Forsetinn segir eitt og Fjármálaráðherra annað...

 AGS er á leiðinni að klára sína 3. endurskoðun og var AGS ekki búin að setja skilyrði fyrir því að það yrði að vera búið að ganga frá Icesave svo sú endurskoðun geti gengið... 

Íslendingar standa frammi fyrir því að Ríkisstjórnin segir að hún hafi ekki efni á því að búa okkur svo um hag að við Íslendingar eigum ofan í okkur og á. Það er búið að hækka allt sem hægt er í sköttum gjöldum á okkur svo ekki er hægt að fara meir ofan í okkar vasa. Það er verið að rétta þessum útrásavíkingum sem léku okkur svona grátt flest allar eigur okkar í boði Fjármálaráðherra Íslendinga svo ekki er af miklu að taka upp í þessa Icesave óreiðuskuld sem er ekki einu sinni okkar að greiða heldur þessa útrásavíkinga sem áttu þessa einkabanka...

Ég er komin með nóg af þessu bulli frá þessum aðilum sem eiga að vera að hugsa um okkar hag og velferð. Þetta er ekki að hugsa um hag okkar og velferð að setja okkur og okkar afkomendur í ánauð eingöngu til að geta gengið í augun á einhverjum erlendum aðilum...

Það að Fjármálaráðherra Íslendinga skuli ekki geta staðið með yfir 90% vilja þjóðarinnar sem segir "ekki okkar að borga þessa óreiðuskuld" er óskiljanlegt með öllu og gerir hann óstarfhæfan sem Fjármálaráðherra vegna þess að honum ber að hlusta og fara eftir vilja okkar Íslendinga vegna þess að það erum við sem borgum honum launin sín ......

Hvar eru fréttamenn með spurningar til Ríkisstjórnarinnar er lúta að þessum fögru kosningarloforðum sem reyndust svo innantóm orð sem eingöngu voru notuð til að komast til valda...

Fjármálaráðherra getur greinilega gasprað og gasprað á okkar kostnað eftir hans hentugleika, en það væri betra að hann gerði sér grein fyrir því að Ráðherraábyrgð hefur hann gagnvart Íslensku Þjóðinni og orð hans hafa ábyrgð fyrir hann þar... 


mbl.is Steingrímur: Íslendingar munu borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt upp á borðið...

Allt upp á borðið segi ég....

Ef að Alþingi á að geta skilað sinni vinnu vel og vandlega þá þarf öll gögn fram.

Til þess að heildarmynd geti verið á sýn þá verður allt að vera uppi. Að Ríkisstjórnin ætlist til þess að endanleg ákvörðun sé tekin út frá brot af gögnum á ekki að vera hægt...

Alþingi vinnur fyrir okkur og Ríkisstjórnin fyrir Alþingi.... Alþingi vinnur ekki fyrir Ríkisstjórnina...


mbl.is Trúnaði aflétt að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vönduð vinnubrögð viljum við...

Það er ætlast til þess að Alþingi vinni vinnuna sína vel og vandlega og Alþingi virðist gera sér grein fyrir því að til þess að svo sé hægt þá verður Alþingi eðlilega að hafa ÖLL gögn og upplýsingar um málefnið hefði maður haldið...

Var ekki sett út á þessi vinnubrögð...

Þettta er ekkert smá mál sem um er að ræða hérna, svo hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að Alþingi skili vönduðum og vel unnum vinnubrögðum ef Alþingi er ekki einu sinni að fá öll gögn...

Það er eitt sem að ég myndi vilja að sett yrði í lög með vinnureglur Alþingis og það er að áður en 1 umræðu er lokið og henni komið í 2. umræðu þá á að líða sólarhringur. Strax að morgni næsta dags og allir eru en sama sinnis um að fyrstu umræðu sé lokið þá er hún afgreidd til 2. umræðu, eins á að vera á milli 2. og 3. umræðu... Vitiborin manneskja veit að tíminn vinnur með henni og að góður nætursvefn skilar sínu, fljótfærni skilar sér aldrei vel... 

Það eru mikilvægar ákvarðanir teknar á Alþingi er varða framtíð okkar Íslendinga, svo vönduð vinnubrögð viljum við væntanlega hafa....

Þögn og leynd sú er allir þessir Ráðherrar virðast hafa verið sammála um að hafa í hávegum á þessum tíma gagnvart okkur almenningi um hina raunverulegu stöðu sem var, gerði það að allt varð miklu, miklu, miklu verra en það hefði þurft að verða...

Það að Ráðamenn þorðu ekki að segja okkur frá þessari stöðu sem upp var komin er mjög alvaralegt mál, og það segir mér bara eitt að ALLIR VISSU UPP Á SIG SKÖMMINA....

Fyrir mér þá er ekki að ræða að Íslendingar verði gerðir að blórabögglum fyrir þessa menn og er mér alveg sama í hvaða flokki þessar manneskjur voru og eru, það sem við Íslendingar þurfum að hugsa núna er "hvernig getum við tryggt að svona verði ekki svo glatt farið með fé okkur aftur....

Fangelsi er það sem að menn óttast mest....

Þetta er mjög alvaralegt sem að gerðist með þessari þögn þeirra, og það á ekki að vera möguleiki á að Ráðamenn heilla þjóðar geti komist upp með það að segja að þetta hefði hvort sem er allt fallið svo tíma-setningin sem slík skiptir ekki höfuð málinu....

Það hefði ekki þurft að fara svona ílla, það eru allir sammála um....


mbl.is Umræðu frestað til mánudags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvor lýgur...

Það sem mig langar að vita er hvort það sé Fjármálaráðherra Íslendinga Steingrímur J. Sigfússon sem er að segja Þjóðinni ósatt eða Viðskiptablaðið...

Steingrímur var spurður um þetta í gær og þvertekur fyrir að nýtt tilboð sé í gangi...

Þessar lygar er ekki hægt að líða lengur og það verður að fara að reka þessar lygar jafnóðum ofan í þessa ráðamenn í Ríkisstjórninni svo það sé hægt að gera þeim grein fyrir því að svona vinnubrögð er ekki það sem að við Þjóðin líðum... Það skiptir engu máli í hvaða sæti í Þjóðfélagsstiganum fólk er lygar eiga ekki að líðast...

Við höfum boðorðin tíu sem part af okkar siðareglum í lífinu okkar og að við Íslendingar skulum vera með Ríkisstjórn sem finnst alveg sjálfsagt að ljúga út og suður er ekki sjálfsagt og á ekki að vera...

Vanhæf er þessi Ríkisstjórn í alla staði og á hún að hafa vit á því að koma sér frá tafarlaust vegna þess að heiðarleiki var það meðal annars sem að þjóðin kallaði eftir í síðustu kosningum og það er ekki heiðarleiki að láta kjósa sig meðal annars á þeirri forsendu að óreiðureikningurinn Icesave sé ekki þjóðarinnar að borga, en svo um leið og fólkið komst til valda þá er allt, já allt gert til að reyna eins og hægt er að koma þessum óhroða á herðar okkar til borgunar...

Það á að fara með Icesave fyrir dómstóla og Íslendingar eiga að leita réttar síns í þessu mikla ÓRÉTTLÆTIS máli sem þetta Icesave mál er fyrir mínum augum hjá okkur Íslendingum...

 


mbl.is Nýtt Icesave-tilboð í undirbúningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin er eiðsvarin til að hugsa um hag og velferð okkar...

þetta er að verða háttur Steingríms J. Sigfússonar Fjármálaráðherra að koma með fréttir annan daginn um að núna sé allt að verða svo gott og kreppan komin út í enda eftir hans orðum. Svo undartekningarlaust koma fréttir á eftir sem segja allt annað...

Þetta er mjög alvaraleg staða sem er komin upp og er ekki hægt að ætlast til þess að þessar Hjálparstofnanir taki að sér það hlutverk sem á að vera í höndum Ríkisstjórnarinnar, það er að sjá til þess að allir eigi ofan í sig og á.......

Þessi Ríkisstjórn er Vanhæf í öllu.

Þessi Ríkisstjórn lýgur að okkur Landsmönnum....

Það er spurning hvort það verði ekki að vekja upp kröftug mótmæli til þess að koma þessum svikaaðilum sem í Ríkisstjórn eru frá tafarlaust....

Veit Ríkisstjórnin ekki að hún er eiðsvarin til að hugsa um hag og velferð okkar Landsmanna á þann hátt sem er okkur fyrir bestu...

Hvernig getur Ríkisstjórnin heimfært það að betur fari um fólkið hennar út á götu í eymd og volæði...


mbl.is Erfiður vetur framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei takk...

Við Íslendingar höfum ekki efni á því að taka fleiri lán...

Það er ekki til peningur til að gera eitt eða neitt vegna þess að þessi Ríkisstjórn sem er við völd heldur að hún geti bara rekið þjóðfélagið á lánum á lán ofan og skattahækkunum þar á til að geta leikið sér... 

Það sem á að gera er að henda atvinnulífinu í gang og auka framleiðslu í landinu...

Það þarf að fara að vinna fyrir þessum samansöfnuðu skuldum í Ríkissjóði en ekki að taka fleir lán, og hvað þá lán sem er á himinháum vöxtum vegna skuldarstöðu þjóðarinnar....

Hingað og ekki lengra með samvinnu AGS.


mbl.is Þriðja endurskoðun að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er hneyksluð...

Það verð ég að segja að ég er hneyksluð á þessum vinnubrögðum Samfylkingarinnar.....

Vissulega er Ingibjörg Sólrún ekkert með hreinna borð en hin, en hún var svo sannarlega ekki ein...

Það sem er að slá mig er að Ingibjörg Sólrún sé það útspil sem Samfylkingin fórnar. Það gleymist algjörlega að Ingibjörg Sólrún veiktist alvaralega á þessum tíma og fékk varamann inn sem mig minnir að hafi verið Össur Skarphéðinsson... Að ráðast á Ingibjörgu Sólrún getur vel verið rétt en það á að taka hina fyrir líka, það er ekki lengur hægt að líða þessi vinnubrögð Samfylkingarinnar sem er greinilega svo Sið-blind að sálu Þjóðarinnar selja þau frekar en að viðurkenna mistök...

Það er komið í ljós að Ingibjörg Sólrún og Össur Skarphéðinsson hafi haldið mikilvægum upplýsingum frá Björgvini G Sigurðssyni á þessum mikilvæga tíma, svo hvað er málið að kalla hana eina fyrir eiginlega annað en að hana ætlar Samfylkingin að gera að blórabögli að þessu mikla klúðri sínu frekar en að viðurkenna mistök eins og segi að ofan...

Svei og skömm segi ég...


mbl.is Ingibjörg Sólrún ræðir stöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála er ég honum...

Ég er sammála orðum Herra Ólafs Ragnars Grímssonar Forseta Íslendinga að þessar skuldir ( Icesave ) sem til urðu vegna misgjörða hjá eigendum þessara Einkabanka sé ekki okkar almenna skattborgara að greiða og þar af leiðandi ekki okkar að borga...

Aftur á móti þá er ég ekki eins viss um að þessi staða sem uppi er með Icesave hafi ekki áhrif á ESB umsókn Íslendinga...

Annað er búið að hljóma í eyrum okkar frá Bretum og Hollendingum þar sem okkur Íslendingum hefur verið hótað akkúrat með þessu...

Ekkert ESB nema Icesave verði borgað...

Öðruvísin hótanir höfum við Íslendingar fengið frá Fjármálaráðherra okkar Steingrími J Sigfússyni, þar sem hann fór svo langt að segja að við Íslendingar gætum dáið úr þorsta ef við borgum ekki Icesave... Hann hefur líka sagt að við Íslenskir skattgreiðendur eigum bara... Óréttlæti eða réttlæti, Svona væri þetta bara heimurinn væri ekki alltaf réttlátur sagði hann við Norskan blaðamann ef ég man rétt.

Það þarf að rannsaka af hverju Fjármálaráðherra sé svona borgunar-glaður gagnvart þessum Icesave óhroða og hvað gerði það að hann gaf undirskrift sína í skjóli nætur fyrir greiðslu á þessum óhroða reikning án þess að svo mikið sem lesa hvað hann var að kvitta fyrir....

Þetta eru mjög alvaraleg vinnubrögð...

Svona vinnubrögð frá starfsfólki er ekki hægt að líða og á ekki....

Þar sem að ég vil ekki í ESB og ég á engan þátt í þessum Icesave óhroða þá segi ég að það á að hætta öllu þessu Icesave funda-rugli, Íslenska þjóðin á að fara í klossana sína núna og fara með þetta mikla ÓRÉTTLÆTISMÁL Icesave fyrir dómsstóla tafarlaust og hefði átt að vera búið að því...


mbl.is Ósanngjarnar kröfur um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð spurning...

Hann er að segja og gera það sem að Ríkisstjórnin ætti að vera að segja og gera varðandi Icesave.

Varðandi ESB og þessa spurningu þá er hún eðlileg miða við það sem við erum búin að vera vitni að í samskiptum. 

Það er spurning hvor Ríkisstjórn Íslendinga sé gengin í þennan ESB klúbb...

Ríkisstjórnin veit það sama og þjóðin veit um skyldu sína til þessa Icesave-óreiðuskuldar sem eru nákvæmlega engar vegna þess að það er ekki okkar Íslenskra skattgreiðenda að borga þessa Icesave óreiðu.

ESB eða ekki... þá er eitt á hreinu og það er að við látum ekki setja okkur í ánauð og eymd bara til þess að geta mætt kröfu fárra Íslenskra einstaklinga, já ég segi fárra Íslenskra einstaklinga sem vilja í ESB vegna þess að það er innan við 30% Þjóðarinnar sem vill í þennan ESB klúbb ef klúbb er hægt að kalla...

 


mbl.is Hvers konar klúbbur er þetta?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband